Tillaga að skipan samgöngu- og innviðanefndar, ályktun haustþings SSNV 2026

Málsnúmer 2610046

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1295. fundur - 19.10.2026

Lögð fram ályktun frá haustþingi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 1. október 2026. Ályktunin varðar tillögu að skipan samgöngu- og innviðanefndar. Óskað er tilnefningar fulltrúa í nefndina.
Byggðarráð fagnar fyrirhugaðri endurskoðun Samgöngu- og innviðaáætlunar landshlutans. Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna eftirtalin í nefndina:

Sigurður Líndal Þórisson og Eygló Hrund Guðmundsdóttir.

Stjórn SSNV gengur frá skipan nefndarinnar þannig að hvert sveitarfélag í landshlutanum eigi einn fulltrúa og að kynjahlutföll í nefndinni verði sem jöfnust.
Var efnið á síðunni hjálplegt?