Byggðarráð

1284. fundur 27. júlí 2026 kl. 14:00 - 14:33 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri leggur fram drög að tímaáætlun vegna vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar áranna 2028-2030 fyrir sveitarsjóð og undirfyrirtæki.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða áætlun.

2.Ársreikningur Húnasjóðs 2025

Málsnúmer 2607041Vakta málsnúmer

Ársreikningur Húnasjóðs fyrir árið 2025 lagður fram til staðfestingar.
Byggðarráð samþykkir framlagðan ársreikning Húnasjóðs fyrir árið 2025 samhljóða og staðfestir hann með undirritun sinni.

3.Mál til umsagnar: Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar mál nr. 138/2026

Málsnúmer 2607043Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá dómsmálaráðuneytinu um mál nr. 138/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar.
Byggðarráð Húnaþings vestra fjallaði um málið á 1279. fundi sínum sem haldinn var þann 15. júní 2026. Var á þeim fundi tekið undir bókun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) varðandi málið. Svohljóðandi var bókað:

Byggðarráð tekur heilshugar undir bókun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er varðar mögulegar breytingar á skipan lögregluembætta. Ráðið geldur varhug við slíkum breytingum og óttast að þær muni hafa neikvæð áhrif á öryggi íbúa og leiða til fækkunar starfa þegar fram líða stundir. Við slíkt er ekki hægt að una.

Bókun SSNV var svohljóðandi:

Stjórn SSNV lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem mögulegar breytingar á skipulagi lögregluembætta kunna að hafa á þjónustu, störf og stjórnsýslu í landshlutanum. Stjórn SSNV leggur áherslu á að löggæsla á Norðurlandi vestra gegnir lykilhlutverki í öryggi íbúa, farsæld barna og ungmenna og samstarfi við sveitarfélög, skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustuaðila. Mikilvægt er að allar breytingar á skipulagi taki mið af sérstöðu dreifbýlis, miklum vegalengdum og þeim aðstæðum sem einkenna Norðurland vestra.

Stjórn SSNV telur mikilvægt að starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi vestra verði ekki skert og að tryggður verði áframhaldandi rekstur lögreglustöðva á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Þá er nauðsynlegt að standa vörð um þau sérhæfðu störf, þá þekkingu og það faglega starf sem byggt hefur verið upp innan embættisins á undanförnum árum.

Jafnframt leggur stjórn SSNV áherslu á að allar skipulagsbreytingar innan ríkisstofnana verði metnar með hliðsjón af byggðasjónarmiðum og áhrifum þeirra á atvinnu, þjónustu og samfélagsþróun í landshlutanum. Stjórnin telur mikilvægt að ákvarðanir um framtíðarskipan lögregluþjónustu á landsbyggðinni verði teknar í virku samráði við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Stjórn SSNV leggur áherslu á að hagsmunir íbúa og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra verði hafðir að leiðarljósi við alla stefnumótun og ákvarðanatöku um skipulag lögregluþjónustu í landshlutanum.

Byggðarráð ítrekar ofangreint nú þegar málið er komið til samráðs í samráðsgátt á áformastigi. Í áformaskjalinu er ítrekað minnst á að tilgangur breytinganna sé að efla starfsemi lögreglunnar. Það eru fögur fyrirheit en því miður hræða sporin hvað slík loforð stjórnvalda varðar.
Fundargerð 1. fundar umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs frá 14. júlí 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1284. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.

Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.

4.Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 1

Málsnúmer 2607001FVakta málsnúmer

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 1 Reglulegur fundir umhverfis-,veitu- og framkvæmdaráðs ákveðnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 13:00.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 1 Ráðið þakkar starfsfólki sviðsins fyrir kynninguna og leggur til við Byggðarráð að gerður verði viðauki uppá 6.500.000 kr.vegna framkvæmda við tröppur neðan við skólalóð.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 1 Ráðið felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir og upplýsa nefndina eftir þörfum.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 1 Ráðið felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og leggja fram tillögu að verklagsreglum á næsta fundi.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 1 Ráðið leggur til, sem viðbragð við úttektarskýrslu, að breyta skilgreiningu starfa innan sviðsins: Í stað leiðtoga veitna komi starf forstöðumanns framkvæmda og veitna sem verði verkstjóri áhaldahúss. Undir honum starfi svo starfsmaður veitna, umsjónarmaður fasteigna og umsjónarmaður hafna og Hirðu. Breytingin fjölgi ekki störfum þar sem gert var ráð fyrir þessum fjórum störfum innan áhaldahússins og sú tala verði óbreytt. Með þessu vonast ráðið til þess að skýrari verkaskipting verði innan sviðsins með skilgreindum hlutverkum og ábyrgð starfsmanna. Ráðið felur sviðsstjóra að leggja fram aðgerðaráætlun í samræmi við niðurstöðu skýrslunnar á næsta fundi ráðsins. Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis-, veitu og framkvæmdaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 14:33.

Var efnið á síðunni hjálplegt?