Mál til umsagnar: Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar mál nr. 138/2026

Málsnúmer 2607043

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1284. fundur - 27.07.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá dómsmálaráðuneytinu um mál nr. 138/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar.
Byggðarráð Húnaþings vestra fjallaði um málið á 1279. fundi sínum sem haldinn var þann 15. júní 2026. Var á þeim fundi tekið undir bókun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) varðandi málið. Svohljóðandi var bókað:

Byggðarráð tekur heilshugar undir bókun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er varðar mögulegar breytingar á skipan lögregluembætta. Ráðið geldur varhug við slíkum breytingum og óttast að þær muni hafa neikvæð áhrif á öryggi íbúa og leiða til fækkunar starfa þegar fram líða stundir. Við slíkt er ekki hægt að una.

Bókun SSNV var svohljóðandi:

Stjórn SSNV lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem mögulegar breytingar á skipulagi lögregluembætta kunna að hafa á þjónustu, störf og stjórnsýslu í landshlutanum. Stjórn SSNV leggur áherslu á að löggæsla á Norðurlandi vestra gegnir lykilhlutverki í öryggi íbúa, farsæld barna og ungmenna og samstarfi við sveitarfélög, skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustuaðila. Mikilvægt er að allar breytingar á skipulagi taki mið af sérstöðu dreifbýlis, miklum vegalengdum og þeim aðstæðum sem einkenna Norðurland vestra.

Stjórn SSNV telur mikilvægt að starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi vestra verði ekki skert og að tryggður verði áframhaldandi rekstur lögreglustöðva á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Þá er nauðsynlegt að standa vörð um þau sérhæfðu störf, þá þekkingu og það faglega starf sem byggt hefur verið upp innan embættisins á undanförnum árum.

Jafnframt leggur stjórn SSNV áherslu á að allar skipulagsbreytingar innan ríkisstofnana verði metnar með hliðsjón af byggðasjónarmiðum og áhrifum þeirra á atvinnu, þjónustu og samfélagsþróun í landshlutanum. Stjórnin telur mikilvægt að ákvarðanir um framtíðarskipan lögregluþjónustu á landsbyggðinni verði teknar í virku samráði við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Stjórn SSNV leggur áherslu á að hagsmunir íbúa og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra verði hafðir að leiðarljósi við alla stefnumótun og ákvarðanatöku um skipulag lögregluþjónustu í landshlutanum.

Byggðarráð ítrekar ofangreint nú þegar málið er komið til samráðs í samráðsgátt á áformastigi. Í áformaskjalinu er ítrekað minnst á að tilgangur breytinganna sé að efla starfsemi lögreglunnar. Það eru fögur fyrirheit en því miður hræða sporin hvað slík loforð stjórnvalda varðar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?