Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð

1. fundur 14. júlí 2026 kl. 09:00 - 11:15 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Þorleifur Karl Eggertsson varaformaður
  • Kolbrún Stella Indriðadóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
  • Ína Björk Ársælsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ingimar Ingimarsson
Dagskrá

1.Erindisbréf nefnda og ráða

Málsnúmer 2605065Vakta málsnúmer

Erindisbréf umhverfis-,veitu- og framkvæmdaráðs og siðareglur kjörinna fulltrúa í Húnaþingi vestra lagðar fram til kynningar.
Reglulegur fundir umhverfis-,veitu- og framkvæmdaráðs ákveðnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 13:00.
Inn á fundin komu Þórbergur, Heiða og Sigurður starfsmenn sviðsins

2.Staða verkefna Umhverfis,- veitu- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2606084Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri umhverfis,- veitu og framkvæmdasviðs fór yfir helstu framkvæmdaverkefni ársins og stöðu þeirra.
Ráðið þakkar starfsfólki sviðsins fyrir kynninguna og leggur til við Byggðarráð að gerður verði viðauki uppá 6.500.000 kr.vegna framkvæmda við tröppur neðan við skólalóð.
Af fundinum fóru Þórbergur, Heiða og Sigurður

3.Upplýsingar vegna yfirfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits til stofnana ríkisins

Málsnúmer 2606079Vakta málsnúmer

Upplýsingar frá Heilbrigðiseftirlitinu á Norðurlandi vestra, dags. 24. júní 2026, vegna yfirfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits til stofnana ríkisin og þau verkefni sem sitja eftir hjá sveitarfélögunum við yfirfærsluna.
Ráðið felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir og upplýsa nefndina eftir þörfum.

4.Verklagsreglur vegna framkvæmda - framkvæmdasamningar

Málsnúmer 2607015Vakta málsnúmer

Lagt fyrir uppkast að verklagsreglum vegna framkvæmda á vegum sveitarfélagsins.
Ráðið felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og leggja fram tillögu að verklagsreglum á næsta fundi.

5.Úttekt á starfsemi umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 2511056Vakta málsnúmer

Úttektarskýrsla á starfsemi umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviði lögð fram og kynnt.
Ráðið leggur til, sem viðbragð við úttektarskýrslu, að breyta skilgreiningu starfa innan sviðsins: Í stað leiðtoga veitna komi starf forstöðumanns framkvæmda og veitna sem verði verkstjóri áhaldahúss. Undir honum starfi svo starfsmaður veitna, umsjónarmaður fasteigna og umsjónarmaður hafna og Hirðu. Breytingin fjölgi ekki störfum þar sem gert var ráð fyrir þessum fjórum störfum innan áhaldahússins og sú tala verði óbreytt. Með þessu vonast ráðið til þess að skýrari verkaskipting verði innan sviðsins með skilgreindum hlutverkum og ábyrgð starfsmanna. Ráðið felur sviðsstjóra að leggja fram aðgerðaráætlun í samræmi við niðurstöðu skýrslunnar á næsta fundi ráðsins.

Fundi slitið - kl. 11:15.

Var efnið á síðunni hjálplegt?