Byggðarráð

1289. fundur 14. september 2026 kl. 08:30 - 11:39 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson varamaður
  • Sigríður Ólafsdóttir varamaður
  • Eygló Hrund Guðmundsdóttir varamaður
  • Sigurður Líndal Þórisson varamaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Fundurinn var fundur aukins byggðarráðs vegna fjárhagsáætlunargerðar.

1.Fjárhagsáætlun 2027 - Gjaldskrár

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Byggðarráð leggur áherslu á að gengið verði út frá óbreyttum gjaldskrám frá árinu 2026. Nýr gjaldaliður verður þó í gjaldskrá Hammstangahafnar er snýr að heimild til gjaldtöku vegna geymslu efnis/vara á hafnarkanti til að koma í veg fyrir langtímastöðu á kantinum.

2.Fjárhagsáætlun 2027 - Frístundakort

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um nýtingu og þróun frístundakorta.
Magnús Vignir Eðvaldsson lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Ungmennum á aldrinum 16-18 ára er jafnframt heimilt að nýta frístundastyrk til greiðslu þátttökugjalda vegna skipulagðs íþrótta-, félags- og tómstundastarfs utan Húnaþings vestra, enda uppfylli starfsemin markmið þessara reglna og greiðsla sé staðfest með fullnægjandi gögnum. Upphæð frístundakorts hækki jafnframt í kr. 27.000.“

Formaður byggðarráðs lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:

„Ungmennum á aldrinum 16-18 ára er jafnframt heimilt að nýta frístundastyrk til greiðslu þátttökugjalda vegna skipulagðs íþrótta-, félags- og tómstundastarfs utan Húnaþings vestra, enda uppfylli starfsemin markmið þessara reglna og greiðsla sé staðfest með fullnægjandi gögnum. Fjárhæðin verði óbreytt á milli ára, eða kr. 25.000.“

Tillaga formanns byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Magnús Vignir, Eygló Hrund og Viktor Ingi sátu hjá.

3.Fjárhagsáætlun 2027 - Starfsáætlanir

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Lagðar fram starfsáætlanir forstöðumanna stofnana Húnaþings vestra til yfirferðar aukins byggðarráðs.
Lagðar voru fram til kynningar starfsáætlanir forstöðumanna fyrir árið 2026.

Byggðarráð þakkar forstöðumönnum fyrir vandaðar og metnaðarfullar starfsáætlanir fyrir komandi ár.

4.Fjárhagsáætlun 2027 - Styrkbeiðnir

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Innkomnar styrkbeiðnir lagðar fram til yfirferðar aukins byggðarráðs.
Farið var yfir umsóknir um styrki til félags-, menningar- og atvinnumála.

Fundi slitið - kl. 11:39.

Var efnið á síðunni hjálplegt?