Fræðsluráð

261. fundur 26. mars 2026 kl. 16:28 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir formaður
  • Halldór Sigfússon aðalmaður
  • Guðmundur Ísfeld aðalmaður
  • Eygló Hrund Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Ingi Hjörtur Bjarnason varamaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Rekstrarúttekt leikskóla og grunnskóla

Málsnúmer 2411036Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 260. fundi fræðsluráðs.
Farið yfir tillögur að hópastærðum frá nemendum í 5. - 10. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra. Fræðsluráð útbjó tillögur um viðmið í grunnúthultunarlíkani fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra og felur sviðsstjóra að setja þær í opið samráð.

2.Skóladagatal leikskóla 2026-2027

Málsnúmer 2601071Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 260. fundar fræðsluráðs.
Engar athugasemdir hafa borist. Fræðsluráð samþykkir skóladagatal leikskólans Ásgarðs fyrir skólaárið 2026-2027.

3.Skóladagatal grunn- og tónlistarskóla 2026-2027

Málsnúmer 2602071Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 260. fundar fræðsluráðs.
Engar athugasemdir hafa borist. Fræðsluráð samþykkir skóladagatal tónlistarskóla og grunnskóla fyrir skólaárið 2026-2027.

4.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

Málsnúmer 2601078Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

5.Farsældarteymi - 45

Málsnúmer 2512008FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
  • Farsældarteymi - 45 1. Ungmennaráð. Skipun nýs ungmennaráðs er á dagskrá sveitarstjórnar. Rætt um hvernig hægt er að auka virkni ráðsins. M.a. aldursbil, fundartíðni, tenging við stjórnsýslu, kjörna fulltrúa og fastanefndir, upplýsingagjöf, fjarfundamöguleika, tenging við nemendaráð o.fl.
    2. Barnaþing. Verður 23. - 27. mars. Drög að uppsetningu þingsins verður send í næstu viku.
    3. Krakkasveifla. Undirbúningur kominn vel á veg. Stefnt er að aðskildri dagskrá yngsta stigs og miðstigs og samvinnu við íþróttafélag um reglulegar æfingar innan dagskrár. Ákveðið að elsti árgangur leikskóla taki þátt í dagskrá krakkasveiflunnar sem hluti af aðlögun að skólagöngu í grunnskóla frá og 22. júní 2026.
    4. Endurskoðun verklags farsældar. Frestað til næsta fundar.

6.Farsældarteymi - 46

Málsnúmer 2603002FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
  • Farsældarteymi - 46 1. Verklag farsældar í Húnaþingi vestra. Unnin drög að endurskoðuðu verklagi farsældar í Húnaþingi vestra.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?