Farsældarteymi

45. fundur 06. febrúar 2026 kl. 08:00 - 09:30 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Eydís Bára Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Fanney Dögg Indriðadóttir aðalmaður
  • Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Örn Finnsson aðalmaður
  • Guðný Kristín Guðnadóttir aðalmaður
  • Anna Berner aðalmaður
  • Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir aðalmaður
  • Sara Björk Þorsteinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, fræðslustjóri Húnabyggðar sat fundinn.

1.Farsældarteymi Húnaþings vestra

Málsnúmer 2310067Vakta málsnúmer

1. Ungmennaráð. Skipun nýs ungmennaráðs er á dagskrá sveitarstjórnar. Rætt um hvernig hægt er að auka virkni ráðsins. M.a. aldursbil, fundartíðni, tenging við stjórnsýslu, kjörna fulltrúa og fastanefndir, upplýsingagjöf, fjarfundamöguleika, tenging við nemendaráð o.fl.
2. Barnaþing. Verður 23. - 27. mars. Drög að uppsetningu þingsins verður send í næstu viku.
3. Krakkasveifla. Undirbúningur kominn vel á veg. Stefnt er að aðskildri dagskrá yngsta stigs og miðstigs og samvinnu við íþróttafélag um reglulegar æfingar innan dagskrár. Ákveðið að elsti árgangur leikskóla taki þátt í dagskrá krakkasveiflunnar sem hluti af aðlögun að skólagöngu í grunnskóla frá og 22. júní 2026.
4. Endurskoðun verklags farsældar. Frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Var efnið á síðunni hjálplegt?