Félagsmálaráð

273. fundur 24. september 2026 kl. 13:00 - 14:30 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Patrekur Óli Gústafsson aðalmaður
  • Matthías Rúnarsson formaður
  • Ragnheiður Rún Sveinbjörnsdóttir aðalmaður
  • Dagný Sigurlaug Ragnarsdóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Henrike Wappler
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Félagsheimilið Hvammstanga - Innanhúshönnun

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt um afstöðu nemenda til skipulags í samfélagsmiðstöð sem félagsmálaráð vísar til hönnuðar. Félagsmálaráð óskar eftir fullbúnum teikningum af eldhúsi fyrir næsta fund þar sem búið er að eiga samráð við hagaðila um útfærslur.
Félagsmálaráð leggur áherslu á að fjármunir sem ætlaðir eru til endurbóta á þessu ári í félagsheimilinu verði nýttir fyrir áramót, m.a. í hönnun og kaup á búnaði ef ekki næst að fara í framkvæmdir.

2.Fundargerðir framkvæmdaráðs málefna fatlaðs fólks

Málsnúmer 2507013Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

3.Samfélagsviðurkenningar

Málsnúmer 2505012Vakta málsnúmer

Lagðar fram tilnefningar til samfélagsviðurkenninga. Félagsmálaráð felur sviðsstjóra að koma tillögu sinni til sveitarstjórnar.

4.Rekstrarleyfi Félagsheimilið Hvammstanga

Málsnúmer 2502055Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð hefur að undanförnu fjallað um fyrirkomulag viðburðahalds í Félagsheimilinu á Hvammstanga með hliðsjón af rekstrarleyfi hússins í flokki III og þeim reglum sem gilda um sölu og veitingu áfengis á viðburðum.

Ráðið hefur sérstaklega skoðað stöðu einkaaðila sem taka félagsheimilið á leigu og hyggjast selja áfengar veitingar á viðburðum. Samkvæmt ákvörðun sveitarfélagsins um fyrirkomulag rekstrarleyfis Félagsheimilisins verður sveitarfélagið ekki milligönguaðili um kaup á áfengi sem veitt eða selt er á slíkum viðburðum. Við þær aðstæður getur því komið til þess að viðburðarhaldari þurfi að sækja um tækifærisleyfi vegna viðburðarins. Í tengslum við slíkt leyfi getur jafnframt komið til greiðslu löggæslukostnaðar samkvæmt 34. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, að uppfylltum skilyrðum ákvæðisins.

Félagsmálaráð hefur farið yfir mögulegar leiðir til að haga fyrirkomulaginu með öðrum hætti, með það að markmiði að auðvelda viðburðarhald í félagsheimilinu og eftir föngum koma í veg fyrir að viðburðarhaldarar verði fyrir auknum kostnaði vegna löggæslu. Að mati ráðsins, að lokinni þeirri skoðun, hefur ekki fundist útfærsla sem samræmist gildandi laga- og reglugerðarumhverfi og þeirri ábyrgð sem fylgir rekstrarleyfi í félagsheimilinu, og er jafnframt ákjósanleg fyrir starfsemi þess.

Ráðið telur því ekki forsendur að svo stöddu til að breyta núverandi fyrirkomulagi en leggur áherslu á að áfram verði fylgst með mögulegum breytingum á laga- og reglugerðarumhverfi sem gætu skapað svigrúm til annarrar útfærslu.

5.Reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni í Húnaþingi vestra

Málsnúmer 2506031Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri upplýsti um breytingar á reglunum sem nauðsynlegt er að fara í. Sviðsstjóra falið að undirbúa breytingartillögur.

6.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

Málsnúmer 2601078Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:30.

Var efnið á síðunni hjálplegt?