Félagsheimilið Hvammstanga - Innanhúshönnun

Málsnúmer 2602015

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 269. fundur - 24.06.2026

Fríða Ósmann og Sindri Þórhallsson kynntu hugmyndateikningu af Félagsheimilinu Hvammstanga. Félagsmálaráð felur sviðsstjóra að halda kynningarfund fyrir íbúa og setja hugmyndateikningu í opið samráð.

Félagsmálaráð - 271. fundur - 29.07.2026

Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir mætti til fundar kl. 13:00
Lagðar fram athugasemdir frá íbúafundi, fundi með hagaðilum og úr opnu samráði um tillögur að innanhússhönnun Félagsheimilisins Hvammstanga. Fjöldi athugasemda og ábendinga bárust. Félagsmálaráð fór yfir innkomnar ábendingar og athugasemdir og tók afstöðu til þeirra. Sviðsstjóra falið að koma niðurstöðu félagsmálaráðs til hönnuðar til að vinna málið áfram.
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir vék af fundi kl. 14:27

Ungmennaráð - 81. fundur - 13.08.2026

Farið yfir tillögur að innanhúshönnun félagsheimilis. Sviðsstjóra falið að fá sjónrænni tillögur að félagsmiðstöð og kynna í 5. - 10. bekk til að fá fram skoðanir nemenda.
Var efnið á síðunni hjálplegt?