Félagsmálaráð

271. fundur 29. júlí 2026 kl. 13:00 - 14:45 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Patrekur Óli Gústafsson aðalmaður
  • Matthías Rúnarsson formaður
  • Ragnheiður Rún Sveinbjörnsdóttir aðalmaður
  • Dagný Sigurlaug Ragnarsdóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Henrike Wappler
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir mætti til fundar kl. 13:00

1.Félagsheimilið Hvammstanga - Innanhúshönnun

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Lagðar fram athugasemdir frá íbúafundi, fundi með hagaðilum og úr opnu samráði um tillögur að innanhússhönnun Félagsheimilisins Hvammstanga. Fjöldi athugasemda og ábendinga bárust. Félagsmálaráð fór yfir innkomnar ábendingar og athugasemdir og tók afstöðu til þeirra. Sviðsstjóra falið að koma niðurstöðu félagsmálaráðs til hönnuðar til að vinna málið áfram.
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir vék af fundi kl. 14:27

2.Frumvarpsdrög um breyttan útivistartíma barna

Málsnúmer 2607046Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð telur ekki ástæðu til að gera athugasemd við frumvarpið.

3.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

Málsnúmer 2601078Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:45.

Var efnið á síðunni hjálplegt?