Öldungaráð

14. fundur 03. nóvember 2026 kl. 10:00 - 11:43 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Guðmundur Sigurðsson formaður
  • Þorvaldur Böðvarsson varamaður
  • Kristín R. Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Jón Haukdal Kristjánsson varaformaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram.

1.Erindisbréf nefnda og ráða

Málsnúmer 2605065Vakta málsnúmer

Farið var yfir erindisbréf öldungaráðs. Guðmundur Sigurðsson var svo kjörinn formaður með öllum greiddum atkvæðum. Jón Haukdal Kristjánsson var kjörinn varaformaður með öllum greiddum atkvæðum.

2.Félagsheimilið Hvammstanga - Innanhúshönnun

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri kynnti framtíðarskipulag félagsheimilisins sem samþykkt var á félagsmálaráðsfundi þann 28. október 2026. Öldungaráð lýsir ánægju með skipulagið.

3.Aðgengismál

Málsnúmer 2511018Vakta málsnúmer

Öldungaráð beinir eftirfarandi atriðum til sveitarstjórnar:
-Aðgengi að Höfðabraut 6; háir kanntar á stétt fyrir utan, hátt frá stétt að inngangi og þungar hurðar.
-Fara yfir aðgengi á gagnstéttum þar sem víða er hátt og ekki niðurtekið.
-Bekkur ofarlega á Brekkugötu nýtist fáum og væri betur staðsettur út við Höfða.
-Aðgengi meðfram íþróttahúsi frá Hlíðarvegi.
-Tryggja merkingar og upplýsingar þegar framkvæmdir eru í gangi til að tryggja öryggi vegfarenda.

Einnig leggur öldungaráð til að sveitarstjórn óski eftir tillögum frá ráðinu vegna fjárhagsáætlunargerðar. Þá leggur öldungaráð til að sveitarstjórn og eftir atvikum aðrar nefndir, vísi málum sem varða eldri borgara til umsagnar ráðsins.
Bogi Kristinsson Magnusen mætti til fundar kl. 11:11.

4.Lífsgæðakjarni

Málsnúmer 2410027Vakta málsnúmer

Byggingar- og skipulagsfulltrúi greindi frá stöðu skipulags lífsgæðakjarna fyrir neðan Nestún. Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar að gera ráð fyrir undirbúningi við gatnagerð og veitur á svæðinu í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
Bogi vék af fundi kl. 11:34

Fundi slitið - kl. 11:43.

Var efnið á síðunni hjálplegt?