Félagsmálaráð

269. fundur 24. júní 2026 kl. 10:00 - 12:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Patrekur Óli Gústafsson aðalmaður
  • Matthías Rúnarsson formaður
  • Ragnheiður Rún Sveinbjörnsdóttir aðalmaður
  • Dagný Sigurlaug Ragnarsdóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Erindisbréf nefnda og ráða

Málsnúmer 2605065Vakta málsnúmer

Erindisbréf félagsmálaráðs og siðareglur kjörinna fulltrúa í Húnaþingi vestra lagðar fram til kynningar. Samþykkt að reglulegir fundir félagsmálaráðs verði síðasta miðvikudag í mánuði kl. 13:00

2.Samfélagsviðurkenningar

Málsnúmer 2505012Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um samfélagsviðurkenningar. Ein ábending barst úr opnu samráði. Félagsmálaráð samþykkir drög að reglum um samfélagsviðurkenningar með breytingum í samræmi við ábendingu úr opnu samráði.

3.Fagráð - málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2505058Vakta málsnúmer

Fundargerðir fagráðs í málefnum fatlaðra lagðar fram til kynningar.

4.Félagsheimilið Hvammstanga - Innanhúshönnun

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Fríða Ósmann og Sindri Þórhallsson kynntu hugmyndateikningu af Félagsheimilinu Hvammstanga. Félagsmálaráð felur sviðsstjóra að halda kynningarfund fyrir íbúa og setja hugmyndateikningu í opið samráð.

5.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

6.Tillaga um ráðningu húsvarðar við Félagsheimilið Hvammstanga

Málsnúmer 2606056Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að leggja til úrbætur á umsjón og eftirliti í félagsheimilinu fyrir næsta fund.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?