Byggðarráð

1294. fundur 12. október 2026 kl. 14:00 - 14:24 Höfðabraut 6
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Umsókn um rekstrarstyrk 2027

Málsnúmer 2610019Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Kvennaathvarfsins frá 6. október 2026 um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar 2027.

2.Persónuverndarstefna Húnaþings vestra 2027

Málsnúmer 2610020Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að persónuverndarstefnu Húnaþings vestra 2027.
Byggðarráð samþykkir framlögð drög að persónuverndarstefnu Húnaþings vestra 2027 samhljóða og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Stofnaðild að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga

Málsnúmer 2610023Vakta málsnúmer

Staðfesting á stofnaðild Húnaþings vestra í nýstofnuðum samtökum landbúnaðarsveitarfélaga.
Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga fór fram þann 7. október sl. Byggðarráð samþykkir samhljóða stofnaðild Húnaþings vestra að samtökunum. Ráðið fagnar jafnframt stofnun samtakanna enda er landbúnaður stærsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu og mikilvægt að um hana sé staðinn öflugur vörður.

4.Beiðni um stuðning við styrksumsóknir Farsældarráðs Norðurlands vestra

Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Farsældarráði Norðurlands vestra um stuðning við styrksumsóknir til forsætisráðuneytisins vegna verkefna sem snúa að farsæld barna í landshlutanum.
Um er að ræða 5 verkefni sem öll lúta að bættri umgjörð um börn og ungmenni í landshlutanum. Þátttaka sveitarfélagsins snýr að vinnuframlagi starfsmanna sveitarfélagsins við vinnslu verkefnanna og/eða húsnæði undir viðburði.

Byggðarráð lýsir samhljóða yfir stuðningi við verkefnin í samræmi við framangreindar forsendur.

5.Fræðsluferð sveitarstjórnarfulltrúa og sveitarstjóra 2027

Málsnúmer 2610033Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra dags. 9. október 2026 varðandi fræðsluferð sveitarstjórnarfulltrúa og sveitarstjóra til Noregs í ágúst 2027.
Byggðarráð samþykkir samhljóða þátttöku Húnaþings vestra í ferðinni með fyrirvara um ásættanlegan kostnað og felur sveitarstjóra að kalla eftir áhuga á þátttöku meðal sveitarstjórnarmanna.

6.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. september 2026 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:24.

Var efnið á síðunni hjálplegt?