Beiðni um stuðning við styrksumsóknir Farsældarráðs Norðurlands vestra

Málsnúmer 2610027

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1294. fundur - 12.10.2026

Lögð fram beiðni frá Farsældarráði Norðurlands vestra um stuðning við styrksumsóknir til forsætisráðuneytisins vegna verkefna sem snúa að farsæld barna í landshlutanum.
Um er að ræða 5 verkefni sem öll lúta að bættri umgjörð um börn og ungmenni í landshlutanum. Þátttaka sveitarfélagsins snýr að vinnuframlagi starfsmanna sveitarfélagsins við vinnslu verkefnanna og/eða húsnæði undir viðburði.

Byggðarráð lýsir samhljóða yfir stuðningi við verkefnin í samræmi við framangreindar forsendur.
Var efnið á síðunni hjálplegt?