-
Skipulagsráð - 389
Umsagnir sem bárust við kynningu skipulags- og matslýsingar vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 fyrir tengivirki í landi Reykja við Laugarbakka.
Umsagnirnar fela meðal annars í sér ábendingar sem tekið verður mið af áframhaldandi vinnslu tillögunnar og umhverfismats hennar.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að framkomnar umsagnir verði lagðar til grundvallar um áframhaldandi skipulagsvinnu og að unnið verði áfram tillaga að breytingu aðalskipulags ásamt umhverfismati og gerð deiliskipulags fyrir svæðið, í samræmi við framlagða skipulags- og matslýsingu.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Skipulagsráð hefur farið yfir framkomnar umsagnir og athugasemdir og tekur undir að við áframhaldandi vinnslu málsins verði tekið mið af þeim ábendingum sem þar koma fram. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra og aðlaga skipulagsgögn í samræmi við innsendar umsagnir, einkum er varðar náttúrufar og votlendi, vatnafar og mengunarvarnir, umferðaröryggi, veitur og mótvægisaðgerðir. Einnig skal afmörkun skipulagssvæðisins með tilliti til landamerkja Barðs og Melstaðar og tryggja að skipulagið taki mið af landamerkjum jarðanna.
Að lokinni úrvinnslu og uppfærslu skipulagstillögunnar verði málið lagt að nýju fyrir skipulagsráð til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Skipulagsráð hefur farið yfir framkomnar umsagnir vegna auglýstrar tillögu að deiliskipulagi Skrúðvangs á Laugarbakka. Ráðið tekur mið af þeim ábendingum sem fram koma í umsögnum og tekur tillit til þeirra við endanlega útfærslu skipulagsgagna.
Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillögu fyrir Skrúðvang á Laugarbakka og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi málsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Skipulagsráð hefur farið yfir þær umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar fyrir Nestún/lífskjarnasvæði. Ráðið tekur umsagnirnar til greina og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar og tekið verði mið af framkomnum umsögnun/ábendingum.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Skipulagsráð hefur farið yfir þær umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar fyrir Borðeyri. Ráðið tekur umsagnirnar til greina og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar og tekið verði mið af framkomnum umsögnun/ábendingum.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Skipulagsráð hefur yfirfarið fyrirliggjandi gögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Vatnsnesvegar (711) á 10,2 km kafla milli Síðuvegar (716) og Hringvegar (1).
Ráðið telur að með fullnægjandi hætti sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, helstu umhverfisáhrifum hennar og fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum. Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við framkvæmdina, enda verði við áframhaldandi hönnun, undirbúning og leyfisveitingar tekið fullt tillit til áhrifa á votlendi, vatnshlot, fornleifar, efnistöku og aðra viðeigandi umhverfisþætti.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Skipulagsráð hefur farið yfir tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 og leggur til við sveitarstjórn að gerð verði athugasemd við misræmi í afmörkun sveitarfélagamarka Húnaþings vestra og Húnabyggðar í fyrirliggjandi skipulagsgögnum. Ráðið leggur til að Húnabyggð, í samráði við ráðgjafa Húnaþings vestra, fari yfir og samræmi sveitarfélagamörkin áður en skipulagið verður staðfest.
Jafnframt verði við áframhaldandi vinnslu skipulagsins tryggt samræmi milli sveitarfélaganna um sameiginlega innviði og skipulagsforsendur sem ná yfir sveitarfélagamörk, einkum hvað varðar samgöngur, raforkuflutningskerfi, tengivirki og aðra þá þætti þar sem hagsmunir og innviðir sveitarfélaganna tengjast.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Málið hefur verið kynnt umsagnaraðilum og liggja nú fyrir umsagnir þeirra.
Skipulagsráð tekur undir framkomnar umsagnir og leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt samkvæmt framlögðum gögnum með eftirfarandi skilyrðum og ábendingum umsagnaraðila.
Framkvæmdir fari fram utan varptíma fugla og rask verði eins takmarkað og kostur er og vandað verði til frágangs.
Jafnframt skal fornleifaskráningu lokið og endanleg afstaða Minjastofnunar Íslands liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Skipulagsráð - 389
Skipulagsráð tekur málið til umfjöllunar. Þar sem ekki liggur fyrir skilgreind lóð á umræddu svæði í skipulagi er ekki unnt að úthluta lóð að svo stöddu.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við gerð deiliskipulagstillögu fyrir svæðið milli Brekkugötu, Lækjargötu og Höfðabrautar, þar sem m.a. verði tekin afstaða til lóðaskiptingar, aðkomu og annarra skipulagsforsendna. Við vinnuna verði haft samráð við lóðarhafa.
Bókun fundar
Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Nína Axelsdóttir varaformaður skipulagsráðs kynnti fundargerð.