Skipulagsráð

389. fundur 30. september 2026 kl. 14:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Fríða Marý Halldórsdóttir formaður
  • Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir aðalmaður
  • Nína Axelsdóttir aðalmaður
  • Guðni Þór Skúlason aðalmaður
  • Tómas Bergsteinn Arnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
  • Linda Sóley Guðmundsdóttir Fulltrúi á skipulags- og byggingadeild
Fundargerð ritaði: Linda Sóley Guðmundsdóttir
Dagskrá

1.Br. ASK-Tengivirki í landi Reykja-skipulags-matslýsing

Málsnúmer 2606018Vakta málsnúmer

Lögð er fram skipulags- og matslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og aðveitustöð í landi Reykja við Laugarbakka. Skipulags- og matslýsingin hefur verið kynnt í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust umsagnir frá umsagnaraðilum á kynningartíma.



Fyrir liggja umsagnir frá Mílu, Samgöngustofu, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Náttúruverndarstofnun, RARIK, Húnabyggð, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra og Vegagerðinni.

Skipulagsráð tekur umsagnirnar til umfjöllunar og afgreiðslu vegna vinnu við breytingu aðalskipulags, umhverfismat og gerð deiliskipulags fyrir svæðið.
Umsagnir sem bárust við kynningu skipulags- og matslýsingar vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 fyrir tengivirki í landi Reykja við Laugarbakka.
Umsagnirnar fela meðal annars í sér ábendingar sem tekið verður mið af áframhaldandi vinnslu tillögunnar og umhverfismats hennar.

Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að framkomnar umsagnir verði lagðar til grundvallar um áframhaldandi skipulagsvinnu og að unnið verði áfram tillaga að breytingu aðalskipulags ásamt umhverfismati og gerð deiliskipulags fyrir svæðið, í samræmi við framlagða skipulags- og matslýsingu.

2.Melstaður DSK br. tillaga

Málsnúmer 2604069Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar í Miðfirði og auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Breytingin felur m.a. í sér tilfærslu skipulagsmarka, stækkun skipulagssvæðis og breytta skipulagsskilmála vegna fyrirhugaðrar verslunar- og þjónustustarfsemi.
Skipulagsráð hefur farið yfir framkomnar umsagnir og athugasemdir og tekur undir að við áframhaldandi vinnslu málsins verði tekið mið af þeim ábendingum sem þar koma fram. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra og aðlaga skipulagsgögn í samræmi við innsendar umsagnir, einkum er varðar náttúrufar og votlendi, vatnafar og mengunarvarnir, umferðaröryggi, veitur og mótvægisaðgerðir. Einnig skal afmörkun skipulagssvæðisins með tilliti til landamerkja Barðs og Melstaðar og tryggja að skipulagið taki mið af landamerkjum jarðanna.

Að lokinni úrvinnslu og uppfærslu skipulagstillögunnar verði málið lagt að nýju fyrir skipulagsráð til umfjöllunar og afgreiðslu.

3.DSK-Skrúðvangur

Málsnúmer 2604050Vakta málsnúmer

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka. Tillagan tekur til um 15,1 ha svæðis og er markmið hennar að móta uppbyggingu fyrir ferðaþjónustu, verslun og þjónustu, m.a. með þjónustuhúsi, gestahúsum, tjaldsvæði, bílastæðum, aðkomu og gönguleiðum. Tillagan var auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og liggja nú framkomnar umsagnir og athugasemdir fyrir skipulagsráði til umfjöllunar.
Skipulagsráð hefur farið yfir framkomnar umsagnir vegna auglýstrar tillögu að deiliskipulagi Skrúðvangs á Laugarbakka. Ráðið tekur mið af þeim ábendingum sem fram koma í umsögnum og tekur tillit til þeirra við endanlega útfærslu skipulagsgagna.

Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillögu fyrir Skrúðvang á Laugarbakka og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi málsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.

4.DSK-Nestún-Hvammstanga

Málsnúmer 2607001Vakta málsnúmer

Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Nestún/lífsgæðakjarna á Hvammstanga. Skipulagið tekur til um 4,8 ha svæðis vestan Norðurbrautar og er markmið þess að móta heildstæða framtíðaruppbyggingu svæðisins, m.a. fyrir íbúðir, dvalarsvæði og stígakerfi. Skipulagslýsingin var kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og liggja nú framkomnar umsagnir og ábendingar fyrir skipulagsráði til umfjöllunar.
Skipulagsráð hefur farið yfir þær umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar fyrir Nestún/lífskjarnasvæði. Ráðið tekur umsagnirnar til greina og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar og tekið verði mið af framkomnum umsögnun/ábendingum.

5.Dsk-Borðeyri

Málsnúmer 2607002Vakta málsnúmer

Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Borðeyri. Skipulagið tekur til um 28 ha svæðis sem nær yfir þéttbýlið á Borðeyri og aðliggjandi svæði og er markmið þess að móta heildstæða framtíðaruppbyggingu svæðisins, m.a. varðandi lóðir, byggingarreiti, umferð, dvalarsvæði og útivist. Skipulagslýsingin var kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og liggja nú framkomnar umsagnir og ábendingar fyrir skipulagsráði til umfjöllunar.
Skipulagsráð hefur farið yfir þær umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar fyrir Borðeyri. Ráðið tekur umsagnirnar til greina og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar og tekið verði mið af framkomnum umsögnun/ábendingum.

6.Vatnsnesvegur, Húnaþingi vestra, Síðuvegur-Hringvegur

Málsnúmer 2609029Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Vatnsnesvegar á 10,2 km kafla milli Síðuvegar og Hringvegar í Húnaþingi vestra. Framkvæmdin felur í sér breikkun vegar, lagningu bundins slitlags, endurnýjun ræsa og tilheyrandi efnistöku.

Málið er lagt fram til umsagnar vegna ákvörðunar um hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati.
Skipulagsráð hefur yfirfarið fyrirliggjandi gögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Vatnsnesvegar (711) á 10,2 km kafla milli Síðuvegar (716) og Hringvegar (1).

Ráðið telur að með fullnægjandi hætti sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, helstu umhverfisáhrifum hennar og fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum. Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við framkvæmdina, enda verði við áframhaldandi hönnun, undirbúning og leyfisveitingar tekið fullt tillit til áhrifa á votlendi, vatnshlot, fornleifar, efnistöku og aðra viðeigandi umhverfisþætti.

7.Umsagnarbeiðni um breytingu á aðalskipulagi Húnabyggðar

Málsnúmer 2603093Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 ásamt greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdráttum. Tillagan felur í sér nýtt sameiginlegt aðalskipulag sem leysir af hólmi gildandi aðalskipulagsáætlanir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og Skagabyggðar. Þar er mörkuð stefna um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál sveitarfélagsins til ársins 2037.
Skipulagsráð hefur farið yfir tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 og leggur til við sveitarstjórn að gerð verði athugasemd við misræmi í afmörkun sveitarfélagamarka Húnaþings vestra og Húnabyggðar í fyrirliggjandi skipulagsgögnum. Ráðið leggur til að Húnabyggð, í samráði við ráðgjafa Húnaþings vestra, fari yfir og samræmi sveitarfélagamörkin áður en skipulagið verður staðfest.

Jafnframt verði við áframhaldandi vinnslu skipulagsins tryggt samræmi milli sveitarfélaganna um sameiginlega innviði og skipulagsforsendur sem ná yfir sveitarfélagamörk, einkum hvað varðar samgöngur, raforkuflutningskerfi, tengivirki og aðra þá þætti þar sem hagsmunir og innviðir sveitarfélaganna tengjast.

8.Gauksmýri - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2607032Vakta málsnúmer

Tekið er til afgreiðslu umsókn Lands og skógar um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis á um 92.ha svæði í landi Gauksmýrar, L144465. Framkvæmdin felur m.a. í sér að fylla upp í og stífla um 2.480m af skurðum og gerð nýs skurðar og frárennslisrásar, hækkun vatnsborðs Gauksmýratjarnar og færslu göngustígs, samkvæmt framlögðum gögnum
Málið hefur verið kynnt umsagnaraðilum og liggja nú fyrir umsagnir þeirra.

Skipulagsráð tekur undir framkomnar umsagnir og leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt samkvæmt framlögðum gögnum með eftirfarandi skilyrðum og ábendingum umsagnaraðila.
Framkvæmdir fari fram utan varptíma fugla og rask verði eins takmarkað og kostur er og vandað verði til frágangs.
Jafnframt skal fornleifaskráningu lokið og endanleg afstaða Minjastofnunar Íslands liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast.

9.Umsókn um lóð við Brekkugötu 3

Málsnúmer 2607024Vakta málsnúmer

Erindi vegna umsóknar um lóð við Brekkugötu 3. Byggðarráð Húnaþings vestra tók málið fyrir á 1283. fundi sínum þann 20. júlí 2026 og tók jákvætt í umsóknina. Þar sem umrædd lóð er ekki til sem sjálfstæð lóð í skipulagi eða skráningarkerfum sveitarfélagsins fól byggðarráð skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram á skipulagslegum grundvelli og leggja það fyrir skipulagsráð.
Skipulagsráð tekur málið til umfjöllunar. Þar sem ekki liggur fyrir skilgreind lóð á umræddu svæði í skipulagi er ekki unnt að úthluta lóð að svo stöddu.

Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við gerð deiliskipulagstillögu fyrir svæðið milli Brekkugötu, Lækjargötu og Höfðabrautar, þar sem m.a. verði tekin afstaða til lóðaskiptingar, aðkomu og annarra skipulagsforsendna. Við vinnuna verði haft samráð við lóðarhafa.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?