Umsókn um lóð við Brekkugötu 3

Málsnúmer 2607024

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1283. fundur - 20.07.2026

Lögð fram umsókn Stóru Borgar ehf. um lóð að Brekkugötu 3 á Hvammstanga.
Byggðarráð tekur jákvætt í umsókn um lóð við Brekkugötu 3. Þar sem umrædd lóð er ekki til sem sjálfstæð lóð í skipulagi eða skráningarkerfum sveitarfélagsins er nauðsynlegt að málið verði unnið áfram á skipulagslegum grundvelli.

Byggðarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram og leggja það fyrir skipulagsráð. Byggðarráð leggur áherslu á víðtækt samráð við aðliggjandi lóðarhafa og umsækjanda með það að markmiði að kanna forsendur og móta skipulagstillögu sem geti skapað grundvöll fyrir stofnun og úthlutun lóðarinnar. Endanleg afgreiðsla úthlutunar getur ekki farið fram fyrr en nauðsynleg skipulagsvinna og eftir atvikum lóðastofnun hefur farið fram.

Skipulagsráð - 389. fundur - 30.09.2026

Erindi vegna umsóknar um lóð við Brekkugötu 3. Byggðarráð Húnaþings vestra tók málið fyrir á 1283. fundi sínum þann 20. júlí 2026 og tók jákvætt í umsóknina. Þar sem umrædd lóð er ekki til sem sjálfstæð lóð í skipulagi eða skráningarkerfum sveitarfélagsins fól byggðarráð skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram á skipulagslegum grundvelli og leggja það fyrir skipulagsráð.
Skipulagsráð tekur málið til umfjöllunar. Þar sem ekki liggur fyrir skilgreind lóð á umræddu svæði í skipulagi er ekki unnt að úthluta lóð að svo stöddu.

Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við gerð deiliskipulagstillögu fyrir svæðið milli Brekkugötu, Lækjargötu og Höfðabrautar, þar sem m.a. verði tekin afstaða til lóðaskiptingar, aðkomu og annarra skipulagsforsendna. Við vinnuna verði haft samráð við lóðarhafa.
Var efnið á síðunni hjálplegt?