Byggðarráð

1283. fundur 20. júlí 2026 kl. 14:00 - 14:36 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Styrksumsókn vegna háskólanáms

Málsnúmer 2606081Vakta málsnúmer

Lögð fram styrksumsókn frá Borghildi Heiðrúnu Haraldsdóttur, dags. 25. júní 2026, vegna háskólanáms.
Einnig lögð fram umsögn skólastjóra vegna umsóknarinnar. Í umsögninni kemur fram góð staða hvað varðar menntun kennara við Grunnskóla Húnaþings vestra en af 23 kennurum sem starfandi verða við skólann á næsta skólaári eru 20 með leyfisbréf og 3 ekki með leyfisbréf en langt komnir í kennaranámi.

Byggðarráð samþykkir samhljóða veitingu styrks til Borghildar H. Haraldsdóttur í samræmi við reglur þar um. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi um styrkinn og er jafnframt falið að gera tillögu að endurskoðun reglna um námsstyrki til starfsmanna sveitarfélagsins og leggja fyrir byggðarráð.

2.Umsókn um lóð við Brekkugötu 3

Málsnúmer 2607024Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Stóru Borgar ehf. um lóð að Brekkugötu 3 á Hvammstanga.
Byggðarráð tekur jákvætt í umsókn um lóð við Brekkugötu 3. Þar sem umrædd lóð er ekki til sem sjálfstæð lóð í skipulagi eða skráningarkerfum sveitarfélagsins er nauðsynlegt að málið verði unnið áfram á skipulagslegum grundvelli.

Byggðarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram og leggja það fyrir skipulagsráð. Byggðarráð leggur áherslu á víðtækt samráð við aðliggjandi lóðarhafa og umsækjanda með það að markmiði að kanna forsendur og móta skipulagstillögu sem geti skapað grundvöll fyrir stofnun og úthlutun lóðarinnar. Endanleg afgreiðsla úthlutunar getur ekki farið fram fyrr en nauðsynleg skipulagsvinna og eftir atvikum lóðastofnun hefur farið fram.
Örn Arnarson vék af fundi kl. 14:09. Nína Axelsdóttir varaformaður byggðarráðs tók við stjórn fundarins.

3.Úthlutun úr Húnasjóði 2026

Málsnúmer 2605072Vakta málsnúmer

Úthlutun Húnasjóðs fyrir árið 2026 var auglýst 23. júní 2026 með umsóknarfresti til 12. júlí. Alls bárust 9 umsóknir. 7 umsóknir uppfylltu skilyrði til úthlutunar samkvæmt úthlutunarreglum.

Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að veita eftirtöldum styrk að upphæð kr. 100.000.

Aðalheiður Sif Njálsdóttir,
Guðrún Helga Magnúsdóttir,
Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir,
Jóhanna Maj Júlíusdóttir Lundberg,
Inga Rut Ómarsdóttir,
Ragnar Bragi Ægisson,
Már Hermannsson.

Byggðarráð óskar styrkþegum til hamingju með námslokin og styrkinn. Sveitarstjóra er falin afhending styrkjanna.
Örn Arnarson kom aftur til fundar kl. 14:11 og tók við stjórn fundarins að nýju.

4.Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2607034Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna viðbótarframkvæmda við skólalóð Grunnskólans á Hvammstanga.
„Eignasjóður
Grunnskóli, endurbætur á skólalóð, kr. 6.500.000.
Hækkun eignfærðar fjárfestingar mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Við ákvörðun um framkvæmd við leiksvæði á skólalóð var ekki gert ráð fyrir í þessum áfanga að ráðist yrði í gerð tröppu frá sleppisvæði skólabíla upp að inngangi skólans. Við athugun kom í ljós að hagkvæmara er að ráðast í uppsetninguna samhliða vinnu við leikvöllinnn.

5.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2601028Vakta málsnúmer

Fundargerð 141. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lögð fram til kynningar.
Fundargerð 141. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

6.Félagsmálaráð - 270

Málsnúmer 2607005FVakta málsnúmer

Fundargerð 270. fundar félagsmálaráðs frá 20. júlí 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1283. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Félagsmálaráð - 270 Minnisblað sviðsstjóra um fyrirkomulag starfa í samfélagsmiðstöð lagt fram. Um er að ræða 3,8 stöðugildi. Ekki er um kostnaðarauka að ræða heldur tilflutning verkefna og starfshlutfalla. Félagsmálaráð samþykkir tillögur um störf og vísar þeim til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla félagsmálaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

    Byggðarráð fagnar framkomnum tillögum sem eru liður í heildstæðri skipulagningu á starfsemi samfélagsmiðstöðvar og þeirri samþættingu þjónustu sem í þeim felast. Sveitarstjóra er falið að auglýsa þau störf sem um ræðir.

Fundi slitið - kl. 14:36.

Var efnið á síðunni hjálplegt?