Reglur Húnasjóðs og úthlutun 2026

Málsnúmer 2605072

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1280. fundur - 22.06.2026

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra vegna reglna og úthlutunar úr Húnasjóði 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur og felur sveitarstjóra að auglýsa úthlutun með umsóknarfresti til 12. júlí 2026.

Byggðarráð - 1283. fundur - 20.07.2026

Örn Arnarson vék af fundi kl. 14:09. Nína Axelsdóttir varaformaður byggðarráðs tók við stjórn fundarins.
Úthlutun Húnasjóðs fyrir árið 2026 var auglýst 23. júní 2026 með umsóknarfresti til 12. júlí. Alls bárust 9 umsóknir. 7 umsóknir uppfylltu skilyrði til úthlutunar samkvæmt úthlutunarreglum.

Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að veita eftirtöldum styrk að upphæð kr. 100.000.

Aðalheiður Sif Njálsdóttir,
Guðrún Helga Magnúsdóttir,
Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir,
Jóhanna Maj Júlíusdóttir Lundberg,
Inga Rut Ómarsdóttir,
Ragnar Bragi Ægisson,
Már Hermannsson.

Byggðarráð óskar styrkþegum til hamingju með námslokin og styrkinn. Sveitarstjóra er falin afhending styrkjanna.
Örn Arnarson kom aftur til fundar kl. 14:11 og tók við stjórn fundarins að nýju.
Var efnið á síðunni hjálplegt?