Melstaður DSK br. tillaga

Málsnúmer 2604069

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisráð - 386. fundur - 28.04.2026

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar í Miðfirði. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem staðfest var 26. júní 2013 og felur tillagan í sér tilfærslu skipulagsmarka, stækkun skipulagssvæðis og setningu nýrra og breyttra deiliskipulagsskilmála. Skipulagssvæðið er um 2,2 ha að stærð, staðsett um tveimur kílómetrum suðvestan við Laugarbakka og afmarkast af Norðurlandsvegi nr. 1 í norðri og Miðfjarðarvegi nr. 704 í austri. Markmið breytingarinnar er að skapa forsendur fyrir uppbyggingu verslunar- og þjónustustarfsemi, m.a. þjónustumiðstöðvar, eldsneytisafgreiðslu og hleðslustöðva.



Tillagan er unnin samhliða breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 þar sem gert er ráð fyrir að landnotkunarreitur VÞ9 verði færður um 500 metra til vesturs og skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði. Núverandi landnotkun á eldri staðsetningu fellur niður og fer svæðið þar í fyrra horf sem landbúnaðarland.



Með tillögunni fylgir náttúrufars- og mengunarvarnaúttekt vegna skipulagssvæðisins. Þar kemur fram að svæðið er að hluta votlendi og að þar séu vistgerðir með hátt eða mjög hátt verndargildi, auk þess sem fjallað er um vatnafar, flóðahættu, grunnvatn og mengunarvarnir. Í úttektinni eru lagðar til mótvægisaðgerðir, m.a. vegna röskunar á votlendi, ásamt skilmálum um fráveitu, olíuskiljur, stýringu yfirborðsvatns, vöktun og samráð við viðeigandi stofnanir.
Skipulags- og umhverfisráð tekur fram að deiliskipulagstillagan er unnin samhliða breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 þar sem gert er ráð fyrir að landnotkunarreitur VÞ9 verði færður um 500 metra til vesturs og skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði.

Skipulags- og umhverfisráð telur að fyrirliggjandi gögn og skilmálar tillögunnar taki með fullnægjandi hætti á þeim atriðum sem fram hafa komið við undirbúning málsins, meðal annars varðandi samræmingu við aðalskipulagsbreytingu, náttúrufar, vatnafar, mengunarvarnir, brunavarnir og mótvægisaðgerðir vegna röskunar á votlendi.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að tillaga að breytingu á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar í Miðfirði verði samþykkt til auglýsingar samhliða tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Var efnið á síðunni hjálplegt?