Br. ASK-Tengivirki í landi Reykja-skipulags-matslýsing

Málsnúmer 2606018

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 387. fundur - 01.07.2026

Skipulags- og matslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og spennistöð í landi Reykja við Laugarbakka. Svæðið er í dag skilgreint sem landbúnaðarsvæði en fyrirhuguð uppbygging kallar á að landnotkun verði breytt í iðnaðarsvæði.
Svæðið er í gildandi aðalskipulagi skilgreint sem landbúnaðarsvæði, en fyrirhuguð uppbygging kallar á að landnotkun verði breytt í iðnaðarsvæði. Samhliða aðalskipulagsbreytingu verður unnið nýtt deiliskipulag þar sem m.a. verður kveðið á um afmörkun lóða, byggingarreiti, aðkomu, lagnaleiðir, öryggissvæði, frágang og aðra skipulagsskilmála vegna mannvirkjanna.

Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að auglýsa og kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og spennistöð í landi Reykja við Laugarbakka.

Skipulagsráð - 389. fundur - 30.09.2026

Lögð er fram skipulags- og matslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og aðveitustöð í landi Reykja við Laugarbakka. Skipulags- og matslýsingin hefur verið kynnt í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust umsagnir frá umsagnaraðilum á kynningartíma.



Fyrir liggja umsagnir frá Mílu, Samgöngustofu, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Náttúruverndarstofnun, RARIK, Húnabyggð, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra og Vegagerðinni.

Skipulagsráð tekur umsagnirnar til umfjöllunar og afgreiðslu vegna vinnu við breytingu aðalskipulags, umhverfismat og gerð deiliskipulags fyrir svæðið.
Umsagnir sem bárust við kynningu skipulags- og matslýsingar vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 fyrir tengivirki í landi Reykja við Laugarbakka.
Umsagnirnar fela meðal annars í sér ábendingar sem tekið verður mið af áframhaldandi vinnslu tillögunnar og umhverfismats hennar.

Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að framkomnar umsagnir verði lagðar til grundvallar um áframhaldandi skipulagsvinnu og að unnið verði áfram tillaga að breytingu aðalskipulags ásamt umhverfismati og gerð deiliskipulags fyrir svæðið, í samræmi við framlagða skipulags- og matslýsingu.
Var efnið á síðunni hjálplegt?