DSK-Nestún-Hvammstanga

Málsnúmer 2607001

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 387. fundur - 01.07.2026

Tómas vék af fundi kl 15:19
Húnaþing vestra hefur hafið vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir Nestún. Með gerð deiliskipulagsins er markmiðið að móta heildstæða og skýra umgjörð um framtíðarnýtingu svæðisins, þar sem tekið verður tillit til staðhátta, aðliggjandi byggðar. Við gerð deiliskipulagsins verður lögð áhersla á að skipulagið samræmist gildandi aðalskipulagi, styðji við markmið sveitarfélagsins og skapi traustan grundvöll fyrir frekari hönnun, leyfisveitingar og framkvæmdir á svæðinu.



Fyrirliggjandi skipulagslýsing er unnin í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er henni ætlað að kynna forsendur, markmið og áherslur deiliskipulagsvinnunnar.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að skipulagslýsingin verði auglýst og kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnaraðilum, íbúum og öðrum hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum áður en tillaga að deiliskipulagi verður fullmótuð.

Skipulagsráð - 389. fundur - 30.09.2026

Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Nestún/lífsgæðakjarna á Hvammstanga. Skipulagið tekur til um 4,8 ha svæðis vestan Norðurbrautar og er markmið þess að móta heildstæða framtíðaruppbyggingu svæðisins, m.a. fyrir íbúðir, dvalarsvæði og stígakerfi. Skipulagslýsingin var kynnt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og liggja nú framkomnar umsagnir og ábendingar fyrir skipulagsráði til umfjöllunar.
Skipulagsráð hefur farið yfir þær umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar fyrir Nestún/lífskjarnasvæði. Ráðið tekur umsagnirnar til greina og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu deiliskipulagstillögunnar og tekið verði mið af framkomnum umsögnun/ábendingum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?