Byggðarráð - 1291

Málsnúmer 2609009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 407. fundur - 15.10.2026

Fundargerð 1291. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Nína Axelsdóttir varaformaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1291 Lögð eru fram drög að svörum Húnaþings vestra við erindi og spurningakönnun innviðaráðuneytisins í tengslum við vinnu við gerð grænbókar um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.

    Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og leggur sérstaka áherslu á þau sjónarmið sem fram koma í svörunum um nauðsyn þess að einfalda regluverk, gæta meðalhófs við stjórnsýslukröfur á fámennari sveitarfélög og tryggja að fullnægjandi fjármögnun fylgi lögbundnum verkefnum og jöfnunaraðgerðum.

    Sveitarstjóra er falið að senda svörin til innviðaráðuneytisins.
  • Byggðarráð - 1291 Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.
  • Byggðarráð - 1291 Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs vegna beiðnar Fanneyjar Daggar Indriðadóttur um breytingu á launalausu leyfi sem veitt var á 1285. fundi byggðarráðs sem haldinn var þann 10. ágúst 2026. Í minnisblaðinu kemur fram að Fanney óskar eftir að launalaust leyfi hennar verði fellt niður frá og með 1. nóvember 2026 og hún taki þá aftur til starfa. Sviðsstjóri gerir ekki athugasemdir við beiðnina.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að launalaust leyfi Fanneyjar Daggar Indriðadóttur verði fellt niður frá og með 1. nóvember 2026 og að hún taki aftur til starfa frá þeim tíma.
  • Byggðarráð - 1291 Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður fulltrúi Húnaþings vestra á ársfundinum og mun fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins.
  • Byggðarráð - 1291 Byggðarráð Húnaþings vestra veitti umsögn um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505. mál á 157. löggjafarþingi, þann 23. mars 2026. Nú hefur frumvarpið verið lagt fram að nýju. Byggðarráð fagnar áframhaldandi endurskoðun sveitarstjórnarlaga með það að markmiði að skýra lagaumhverfi og efla stjórnsýslu sveitarfélaga. Ráðið telur þó að eftirfarandi athugasemdir úr fyrri umsögn þess eigi enn við.

    15. gr. - staðsetning sveitarstjórnarfunda
    Samkvæmt frumvarpinu skal halda fundi sveitarstjórnar innan staðarmarka sveitarfélags nema óviðráðanlegar aðstæður geri það ómögulegt. Byggðarráð ítrekar að upp geta komið málefnalegar ástæður til að halda fund utan sveitarfélags án þess að um óviðráðanlegar aðstæður sé að ræða. Ráðið leggur til að sveitarstjórn fái svigrúm til að ákveða slíkan fundarstað komi upp sérstakar aðstæður, enda sé tryggt að fundurinn sé auglýstur og að reglum um aðgang almennings að opnum fundum sé fylgt.

    30. gr. - aðgangur kjörinna fulltrúa að starfsstöðvum
    Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að kjörnir fulltrúar geti áfram óskað eftir að kynna sér starfsstöðvar sveitarfélagsins í samráði við stjórnendur. Sú regla kemur hins vegar ekki fram í lagatextanum sjálfum. Byggðarráð ítrekar tillögu sína um að hún verði tekin upp í 30. gr. Með því verði bæði réttur kjörinna fulltrúa og nauðsynlegt samráð við stjórnendur skýr.

    72. og 74. gr. - fjárhagsleg viðmið og áhrifamat
    Byggðarráð fagnar því að viðmið um heildarskuldir og skuldbindingar A-hluta sé áfram 130% af heildartekjum. Ráðið ítrekar jafnframt mikilvægi þess að reglur um mat á langtímaáhrifum fjárhagslegra ákvarðana taki mið af ólíkum aðstæðum sveitarfélaga.

    Samkvæmt 74. gr. þarf að meta fjárhagsleg áhrif ákvörðunar sem nemur hærri fjárhæð en 10% af heildartekjum sveitarfélagsins á komandi fjárhagsári. Nemi ákvörðunin 20% eða meira skal fá sérfróðan aðila sem ekki er tengdur sveitarfélaginu til að gera matið. Byggðarráð telur mikilvægt að nánari reglur og undanþágur samkvæmt ákvæðinu tryggi að framkvæmd þess verði hófleg og raunhæf fyrir sveitarfélög af ólíkri stærð. Áhrifamat þarf jafnframt að geta tekið tillit til þess þegar fjárfesting er nauðsynleg til að sinna lögbundnu verkefni eða er líkleg til að skila auknum tekjum til lengri tíma.




    110. gr. - álag á raunkostnað við samstarf sveitarfélaga
    Byggðarráð fagnar því að skýrar sé kveðið á um samninga þegar eitt sveitarfélag tekur að sér verkefni annars. Ráðið ítrekar þó athugasemd sína við heimild þjónustuveitandi sveitarfélags til að bæta álagi við raunkostnað án þess að skýr takmörk séu sett í lagagreininni. Í greinargerð er útskýrt hvaða óbeini kostnaður og áhætta geti réttlætt álagið, en sú afmörkun kemur ekki fram í ákvæðinu sjálfu.

    Byggðarráð leggur til að í 110. gr. verði tilgreint hvaða kostnaðarliðir geti fallið undir álagið og að sett verði skýr viðmið eða hámark um fjárhæð þess. Það myndi auðvelda sveitarfélögum að gera gagnsæja samninga og draga úr ágreiningi um kostnaðarskiptingu.

    Að öðru leyti vísar byggðarráð til fyrri umsagnar sinnar um málið. Ráðið áskilur sér rétt til að koma frekari sjónarmiðum á framfæri við meðferð frumvarpsins og er tilbúið til samtals við umhverfis- og samgöngunefnd.
  • Byggðarráð - 1291
Var efnið á síðunni hjálplegt?