Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð

4. fundur 01. október 2026 kl. 10:00 - 12:07 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Þorleifur Karl Eggertsson varaformaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Ingimar Sigurðsson
  • Kolbrún Stella Indriðadóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir
  • Ína Björk Ársælsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ingimar Ingimarsson
Dagskrá

1.Loftslagsstefna Húnaþings vestra - aðgerðaráætlun

Málsnúmer 2609101Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála fór yfir Loftslagsstefnu sveitarfélagsins og vinnu við aðgerðaráætlun.
Ráðið þakkar kynninguna.

2.Meðhöndlun úrgangs í Húnaþingi vestra

Málsnúmer 2609025Vakta málsnúmer

Verkefnistjóri umhverfismála kynnti skýrslu Pure North fyrir nefndinni.
Ráðið þakkar kynninguna og felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja fyrir ráðið tillögur að frekari þróun á meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu.

3.Starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs

Málsnúmer 2510027Vakta málsnúmer

Farið yfir tillögur starfshópsins.
Umhverfis, veitu-, og framkvæmdaráð leggur til að gerð verði fýsileikaúttekt á möguleikum til stækkunar á leikskólanum ásamt því taka út núverandi húsnæði.

4.Staða verkefna Umhverfis,- veitu- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2606084Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Ráðið þakkar yfirferðina.

5.Drög að starfsáætlun umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 2609024Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri lagði fram drög að starfsáætlun umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs.
Ráðið þakkar yfirferðina.

6.Loftgæði í ráðhúsi Húnaþings vestra

Málsnúmer 2609083Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir loftgæðaathugun í Ráðhúsinu.
Skýrsla sérfræðinga í loftgæðamælingum sýnir fram á alvarlegt ástand loftgæða í kjallara og fyrstu hæð ráðhússins. Loftgæði á efri hæð virðast innan marka en þarfnast þó skoðunar. Umhverfis, veitu-, og framkvæmdaráð leggur til að starfsemi ráðhússins verði flutt tímabundið úr húsinu yfir í Félagsheimilið Hvammstanga. Starfsemin verði þar til húsa á meðan beðið er eftir niðurstöðu úr frekari rannsóknum og brugðist hefur verið við þeim ábendingum og tillögum sem sérfræðingar mæla með.

7.Brunahönnun Reykjaskóli

Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri lagði fram kostnaðaráætlun fyrir aðgerðir vegna brunahönnunar á eignum Reykjaeigna.
Umhverfis, veitu-, og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að farið verði í þær framkvæmdir sem eru í forgangi m.t.t. öryggissjónarmiða.

Fundi slitið - kl. 12:07.

Var efnið á síðunni hjálplegt?