Loftgæði í ráðhúsi Húnaþings vestra

Málsnúmer 2609083

Vakta málsnúmer

Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 4. fundur - 01.10.2026

Sviðsstjóri fór yfir loftgæðaathugun í Ráðhúsinu.
Skýrsla sérfræðinga í loftgæðamælingum sýnir fram á alvarlegt ástand loftgæða í kjallara og fyrstu hæð ráðhússins. Loftgæði á efri hæð virðast innan marka en þarfnast þó skoðunar. Umhverfis, veitu-, og framkvæmdaráð leggur til að starfsemi ráðhússins verði flutt tímabundið úr húsinu yfir í Félagsheimilið Hvammstanga. Starfsemin verði þar til húsa á meðan beðið er eftir niðurstöðu úr frekari rannsóknum og brugðist hefur verið við þeim ábendingum og tillögum sem sérfræðingar mæla með.
Var efnið á síðunni hjálplegt?