Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð

5. fundur 05. nóvember 2026 kl. 13:00 - 14:33 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Þorleifur Karl Eggertsson varaformaður
  • Kolbrún Stella Indriðadóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ingimar Ingimarsson
Dagskrá

1.Meðhöndlun úrgangs í Húnaþingi vestra

Málsnúmer 2609025Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála kynnir fyrir ráðinu tillögur að frekari þróun á meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu.
Ráðið þakkar verkefnastjóra umhverfismála kynninguna og leggur til við sveitarstjórn að haldinn verði íbúafundur þar sem mismunandi sviðsmyndir verða kynntar íbúum sveitarfélagsins.

2.Staða verkefna Umhverfis,- veitu- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2606084Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir stöðu framkvæmda á vegum sveitarfélagsins.
Ráðið þakkar yfirferðina.

3.Verklagsreglur vegna framkvæmda - framkvæmdasamningar

Málsnúmer 2607015Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingum á verklagsreglum vegna framkvæmda og framkvæmdasamninga.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að uppfærsla verklagsreglna vegna framkvæmda og framkvæmdasamninga verði samþykkt.

4.Starfshópur um málefni hitaveitu í Hrútafirði

Málsnúmer 2610058Vakta málsnúmer

Lagt fyrir erindisbréf starfhóps um málefni hitaveitu í Hrútafirði.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að starfshópur um hitaveitu í Hrútafirði verði stofnaður, erindisbréf vegna starfshópsins samþykkt og tilnefnir: Kolbrúnu Stellu Indriðadóttur, fulltrúa meirihluta sveitarstjórnar, sem jafnframt yrði formaður, Viktor Inga Jónsson, fulltrúa minnihluta sveitarstjórnar og Gunnar Þórarinsson, sem fulltrúa íbúa í Hrútafirði. Starfshópurinn heyri undir umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð og leggi fundargerðir sínar fyrir ráðið.

5.Loftgæði í ráðhúsi Húnaþings vestra

Málsnúmer 2609083Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála varðandi ráðhúsið.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að ráðhúsið við Hvammstangabraut 5 verði selt í núverandi ástandi og felur sviðsstjóra að leggja fram minnisblað um framtíðar húsnæðismöguleika fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 14:33.

Var efnið á síðunni hjálplegt?