Starfshópur um málefni hitaveitu í Hrútafirði

Málsnúmer 2610058

Vakta málsnúmer

Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5. fundur - 05.11.2026

Lagt fyrir erindisbréf starfhóps um málefni hitaveitu í Hrútafirði.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að starfshópur um hitaveitu í Hrútafirði verði stofnaður, erindisbréf vegna starfshópsins samþykkt og tilnefnir: Kolbrúnu Stellu Indriðadóttur, fulltrúa meirihluta sveitarstjórnar, sem jafnframt yrði formaður, Viktor Inga Jónsson, fulltrúa minnihluta sveitarstjórnar og Gunnar Þórarinsson, sem fulltrúa íbúa í Hrútafirði. Starfshópurinn heyri undir umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð og leggi fundargerðir sínar fyrir ráðið.
Var efnið á síðunni hjálplegt?