-
Byggðarráð - 1290
Fært í trúnaðarbók.
-
Byggðarráð - 1290
Byggðarráð samþykkir samhljóða niðurfellingu á leigu íþróttamiðstöðvar vegna bocciamóts 31. október nk. svo fremi sem mótið sé haldið innan opnunartíma íþróttamiðstöðvar.
-
Byggðarráð - 1290
Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að vísa erindinu til fræðsluráðs til umfjöllunar.
Bókun fundar
Magnús Vignir Eðvaldsson og Viktor Ingi Jónsson véku af fundi kl. 15:05.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum.
Magnús Vignir og Viktor Ingi komu til fundar að nýju kl. 15:07.
-
Byggðarráð - 1290
Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar á 404. fundi sem haldinn var þann 11. júní 2026 verða fulltrúar Húnaþings vestra á þinginu eftirtalin: Magnús Magnússon, Nína Axelsdóttir, Viktor Ingi Jónsson og Magnús Vignir Eðvaldsson. Til vara: Örn Arnarson, Dagrún Kristinsdóttir, Eygló Hrund Guðmundsdóttir og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir.
-
Byggðarráð - 1290
Byggðarráð samþykkir samhljóða að afnot af húsnæði í eigu sveitarfélagsins verði gjaldfrjáls fyrir viðburði á barnamenningarhátíðinni Skúnaskrall sem haldin verður í október nk. Afnot skulu skipulögð í samráði við forstöðumann viðkomandi byggingar og ekki fela í sér rask á starfsemi eða viðbótarkostnað.
-
Byggðarráð - 1290
Eftirfarandi spurningar eru settar fram í erindinu.
Mun Húnaþing vestra endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa?
Svar: Í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 er gert ráð fyrir að gjaldskrár standi í stað milli ára. Með því móti er sveitarfélagið að koma til móts við alla íbúa og leggja sitt á vogarskálarnar til að skapa stöðugleika í landinu. Því er ekki þörf á endurskoðun fyrirhugaðra gjaldskrárhækkana, það stóð aldrei til að hækka gjaldskrár.
Hvaða aðgerðir hyggst Húnaþing vestra ráðast í til að tryggja nægilegt framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?
Svar: Nú þegar er nægilegt framboð lóða í samræmi við þá þörf sem fram kemur í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hefur jafnframt stuðlað að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með mjög myndarlegum hætti undanfarin ár, nú síðast með byggingu 10 íbúða húss sem tekið var í notkun í sumar með stofnframlagi og samstarfi við leigufélagið Brák. Sveitarfélagið var þriðja sveitarfélagið á landinu sem skilgreindi framlag sitt til aukins framboðs íbúðarhúsnæðis innan rammasamnings milli ríkis og sveitarfélaga árið 2024.
Hvernig hyggst Húnaþing vestra leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?
Svar: Í Húnaþingi vestra komast börn inn á leikskóla við 12 mánaða aldur. Engir biðlistar eru eftir leikskólaplássum. Sveitarfélagið hefur því þegar brúað bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og það fyrir löngu.
Hvaða aðrar aðgerðir telur Húnaþing vestra mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
Framlagning fjárlaga nú nýverið voru mikil vonbrigði ef litið er til stöðugleika í þjóðfélaginu. Að mati byggðarráðs væri mikilvægasta aðgerðin til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og stuðla að verðstöðugleika að hið opinbera drægi til baka fyrirhugaðar skattahækkanir sem munu bitna verst á heimilunum í landinu og stuðla að áframhaldandi hárri verðbólgu og háu vaxtastigi.
-
Byggðarráð - 1290
Í erindinu óskar sambandið eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 er gert ráð fyrir að gjaldskrár standi í stað milli ára. Með því móti er sveitarfélagið að koma til móts við alla íbúa og leggja sitt á vogarskálarnar til að skapa stöðugleika í landinu. Því er stefnt að því að gera gott betur en það sem Starfsgreinasambandið skorar á sveitarfélagið að gera í erindinu. Húnaþing vestra tekur að sjálfsögðu þátt í þjóðarsátt í framhaldinu ef til þess kemur að almenn sátt náist um það. Slík sátt kallar á samkomulag allra, atvinnulífs og opinberra aðila. Því var framlagning fjárlaga nú nýverið mikil vonbrigði með þeim skattahækkunum sem þar eru boðaðar og ekki eru til þess fallnar að skapa þjóðarsátt. Sveitarfélagið skorar jafnframt á einkaaðila að halda gjaldskrárhækkunum sínum í lágmarki því ekki gengur til lengdar að sveitarfélagið láti sínar gjaldskrár standa í stað eða haldi hækkunum í lágmarki ef sú þjónusta sem það kaupir af öðrum hækkar stöðugt.
-
Byggðarráð - 1290
Byggðarráð þakkar Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrirspurnina og upplýsir að þegar hefur verið skipað í þau ráð sem um ræðir.
-
Byggðarráð - 1290
Tvö tilboð bárust,
FK verk - heildarverð kr. 4.010.000.
Ingibjörn Pálmar Gunnarsson - heildarverð kr. 3.792.000.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 3.120.000.
Lægstbjóðandi hefur sagt sig frá tilboðinu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði FK verks. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi þar um í samræmi við verðfyrirspurnarskilmála og niðurstöðu verðfyrirspurnarinnar.
Bókun fundar
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Byggðarráð - 1290
Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
-
Byggðarráð - 1290
-
Byggðarráð - 1290
-
Byggðarráð - 1290
-
Byggðarráð - 1290
-
Byggðarráð - 1290
Nína Axelsdóttir varaformaður byggðarráðs kynnti fundargerð.