Byggðarráð

1290. fundur 21. september 2026 kl. 14:00 - 14:51 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sigríður Ólafsdóttir
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Sigríður Ólafsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, staðsett innan sveitarfélagsins, á grundvelli 3. og 4. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 14. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024

1.Fjölskyldusvið - Trúnaðarmál

Málsnúmer 2609075Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

2.Ósk um niðurfellingu á húsaleigu í íþróttamiðstöð vegna bocciamóts

Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra með beiðni um niðurfellingu á leigu á íþróttamiðstöð vegna bocciamóts.
Byggðarráð samþykkir samhljóða niðurfellingu á leigu íþróttamiðstöðvar vegna bocciamóts 31. október nk. svo fremi sem mótið sé haldið innan opnunartíma íþróttamiðstöðvar.
Viktor Ingi Jónsson vék af fundi kl. 14:12.

3.Tillaga um styttingu vinnuviku kennara 2026-2027

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga frá skólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra um styttingu vinnuviku kennara skólaárið 2026-2027.
Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að vísa erindinu til fræðsluráðs til umfjöllunar.
Viktor Ingi Jónsson kom til fundar að nýju kl. 14:14.

4.Boð á haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2609031Vakta málsnúmer

Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar á 404. fundi sem haldinn var þann 11. júní 2026 verða fulltrúar Húnaþings vestra á þinginu eftirtalin: Magnús Magnússon, Nína Axelsdóttir, Viktor Ingi Jónsson og Magnús Vignir Eðvaldsson. Til vara: Örn Arnarson, Dagrún Kristinsdóttir, Eygló Hrund Guðmundsdóttir og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir.

5.Ósk um endurgjaldslaus afnot af húsnæði vegna barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls

Málsnúmer 2609055Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra dags. 11. september 2026, með ósk um endurgjaldslaus afnot af húsnæði vegna viðburða á barnamenningarhátíðinni Skúnaskrall.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að afnot af húsnæði í eigu sveitarfélagsins verði gjaldfrjáls fyrir viðburði á barnamenningarhátíðinni Skúnaskrall sem haldin verður í október nk. Afnot skulu skipulögð í samráði við forstöðumann viðkomandi byggingar og ekki fela í sér rask á starfsemi eða viðbótarkostnað.

6.Fyrirspurnir vegna kjarasamninga

Málsnúmer 2609056Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Fagfélögunum dags. 14. september 2026, með fyrirspurnum um aðgerðir Húnaþings vestra til að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Eftirfarandi spurningar eru settar fram í erindinu.

Mun Húnaþing vestra endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa?
Svar: Í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 er gert ráð fyrir að gjaldskrár standi í stað milli ára. Með því móti er sveitarfélagið að koma til móts við alla íbúa og leggja sitt á vogarskálarnar til að skapa stöðugleika í landinu. Því er ekki þörf á endurskoðun fyrirhugaðra gjaldskrárhækkana, það stóð aldrei til að hækka gjaldskrár.

Hvaða aðgerðir hyggst Húnaþing vestra ráðast í til að tryggja nægilegt framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?
Svar: Nú þegar er nægilegt framboð lóða í samræmi við þá þörf sem fram kemur í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hefur jafnframt stuðlað að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með mjög myndarlegum hætti undanfarin ár, nú síðast með byggingu 10 íbúða húss sem tekið var í notkun í sumar með stofnframlagi og samstarfi við leigufélagið Brák. Sveitarfélagið var þriðja sveitarfélagið á landinu sem skilgreindi framlag sitt til aukins framboðs íbúðarhúsnæðis innan rammasamnings milli ríkis og sveitarfélaga árið 2024.

Hvernig hyggst Húnaþing vestra leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?
Svar: Í Húnaþingi vestra komast börn inn á leikskóla við 12 mánaða aldur. Engir biðlistar eru eftir leikskólaplássum. Sveitarfélagið hefur því þegar brúað bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og það fyrir löngu.

Hvaða aðrar aðgerðir telur Húnaþing vestra mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
Framlagning fjárlaga nú nýverið voru mikil vonbrigði ef litið er til stöðugleika í þjóðfélaginu. Að mati byggðarráðs væri mikilvægasta aðgerðin til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og stuðla að verðstöðugleika að hið opinbera drægi til baka fyrirhugaðar skattahækkanir sem munu bitna verst á heimilunum í landinu og stuðla að áframhaldandi hárri verðbólgu og háu vaxtastigi.


7.Þjóðarsátt um verðstöðugleika

Málsnúmer 2609066Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands, dags. 16. september 2026 vegna þjóðarsáttar um verðstöðugleika.
Í erindinu óskar sambandið eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.

Í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 er gert ráð fyrir að gjaldskrár standi í stað milli ára. Með því móti er sveitarfélagið að koma til móts við alla íbúa og leggja sitt á vogarskálarnar til að skapa stöðugleika í landinu. Því er stefnt að því að gera gott betur en það sem Starfsgreinasambandið skorar á sveitarfélagið að gera í erindinu. Húnaþing vestra tekur að sjálfsögðu þátt í þjóðarsátt í framhaldinu ef til þess kemur að almenn sátt náist um það. Slík sátt kallar á samkomulag allra, atvinnulífs og opinberra aðila. Því var framlagning fjárlaga nú nýverið mikil vonbrigði með þeim skattahækkunum sem þar eru boðaðar og ekki eru til þess fallnar að skapa þjóðarsátt. Sveitarfélagið skorar jafnframt á einkaaðila að halda gjaldskrárhækkunum sínum í lágmarki því ekki gengur til lengdar að sveitarfélagið láti sínar gjaldskrár standa í stað eða haldi hækkunum í lágmarki ef sú þjónusta sem það kaupir af öðrum hækkar stöðugt.

8.Notendaráð sveitarfélaga

Málsnúmer 2609034Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 8. september 2026 varðandi mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga.
Byggðarráð þakkar Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrirspurnina og upplýsir að þegar hefur verið skipað í þau ráð sem um ræðir.

9.Snjómokstur Hvammstanga - Verðfyrirspurn

Málsnúmer 2604074Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar vegna snjómoksturs á Hvammstanga.
Tvö tilboð bárust,

FK verk - heildarverð kr. 4.010.000.
Ingibjörn Pálmar Gunnarsson - heildarverð kr. 3.792.000.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 3.120.000.

Lægstbjóðandi hefur sagt sig frá tilboðinu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði FK verks. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi þar um í samræmi við verðfyrirspurnarskilmála og niðurstöðu verðfyrirspurnarinnar.

10.Mál til umsagnar: Frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl., 4. mál

Málsnúmer 2609071Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 4. mál, Frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón).
Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

11.Tilkynning um endurupptöku vegar á vegaskrá

Málsnúmer 2609035Vakta málsnúmer

Tilkynning Vegagerðinni um að vegur að bænum Bjargi í Miðfirði (L144063) hafi verið tekinn inn á vegaskrá sem héraðsvegur lögð fram til kynningar.

12.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer

Fundargerð 143. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 31. ágúst 2026, lögð fram til kynningar.

13.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026, lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð stjórnarfundar Markaðsstofu Norðurlands 28. ágúst 2026

Málsnúmer 2609054Vakta málsnúmer

Fundargerð fundar stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá 28. ágúst 2026, lögð fram til kynningar.

15.Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601077Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands. Annars vegar fundargerð 484. fundar frá 19. ágúst 2026 og hins vegar fundargerð 485. fundar frá 7. september 2026.

Fundi slitið - kl. 14:51.

Var efnið á síðunni hjálplegt?