Snjómokstur Hvammstangi - Verðfyrirspurn

Málsnúmer 2604074

Vakta málsnúmer

Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2. fundur - 06.08.2026

Farið yfir verðfyrirspurn vegna vetrarþjónustu fyrir Hvammstanga.
Sviðsstjóra falið að senda út verðfyrirspurn um alla vetrarþjónustu á Hvammstanga, mokstur gatna og gangstétta auk hálkuvarna.

Byggðarráð - 1290. fundur - 21.09.2026

Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar vegna snjómoksturs á Hvammstanga.
Tvö tilboð bárust,

FK verk - heildarverð kr. 4.010.000.
Ingibjörn Pálmar Gunnarsson - heildarverð kr. 3.792.000.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 3.120.000.

Lægstbjóðandi hefur sagt sig frá tilboðinu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði FK verks. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi þar um í samræmi við verðfyrirspurnarskilmála og niðurstöðu verðfyrirspurnarinnar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?