Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð

2. fundur 06. ágúst 2026 kl. 13:00 - 15:08 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Þorleifur Karl Eggertsson varaformaður
  • Kolbrún Stella Indriðadóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
  • Ína Björk Ársælsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ingimar Ingimarsson
Dagskrá

1.Staða verkefna Umhverfis,- veitu- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2606084Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir framvindu verkefna frá síðasta fundi.
Ráðið þakkar sviðsstjóra yfirferðina.

2.Verklagsreglur vegna framkvæmda - framkvæmdasamningar

Málsnúmer 2607015Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri lagði fram uppkast að verklagsreglum vegna framkvæmda.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að verklagsreglur um verksamninga verði samþykktar. Ráðið vísar jafnframt ákvörðun um lágmarksupphæð, verka sem þessar verklagsreglur ná yfir, til sveitarstjórnar.

3.Úttekt á starfsemi umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 2511056Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri lagði fram aðgerðaáætlun byggða á þeim tillögum sem skýrslan leggur til.
Ráðið þakkar fyrir þá ítarlegu aðgerðaáætlunarvinnu sem unnin hefur verið í framhaldi af úttekt KPMG á sviðinu og felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir og upplýsa ráðið reglulega um framgang áætlunarinnar.

4.Norðurbraut 32 - Fegrun svæðis og niðurrif

Málsnúmer 2602044Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri lagði fram minnisblað vegna málsins.
Ráðið leggur til að farið verði í verkið og felur sviðsstjóra að gera verðkönnun og athuga hvort verkið falli innan fjárhagsáætlunar eða hvort gera þurfi viðauka.

5.Snjómokstur Hvammstangi - Verðfyrirspurn

Málsnúmer 2604074Vakta málsnúmer

Farið yfir verðfyrirspurn vegna vetrarþjónustu fyrir Hvammstanga.
Sviðsstjóra falið að senda út verðfyrirspurn um alla vetrarþjónustu á Hvammstanga, mokstur gatna og gangstétta auk hálkuvarna.

6.Fjárhagsáætlun- Framkvæmda,- veitu- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2608001Vakta málsnúmer

Farið var yfir fjárfestingar og viðhaldsverkefni næsta árs.
Tekið til umræðu. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram miðað við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 15:08.

Var efnið á síðunni hjálplegt?