Ósk um endurgjaldslaus afnot af húsnæði vegna barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls

Málsnúmer 2609055

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1290. fundur - 21.09.2026

Lagt fram erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra dags. 11. september 2026, með ósk um endurgjaldslaus afnot af húsnæði vegna viðburða á barnamenningarhátíðinni Skúnaskrall.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að afnot af húsnæði í eigu sveitarfélagsins verði gjaldfrjáls fyrir viðburði á barnamenningarhátíðinni Skúnaskrall sem haldin verður í október nk. Afnot skulu skipulögð í samráði við forstöðumann viðkomandi byggingar og ekki fela í sér rask á starfsemi eða viðbótarkostnað.
Var efnið á síðunni hjálplegt?