Sveitarstjórn

403. fundur 13. maí 2026 kl. 15:00 - 16:15 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Þorleifur Karl Eggertsson oddviti
  • Magnús Magnússon varaoddviti
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Kolbrún Stella Indriðadóttir
  • Ingimar Sigurðsson aðalmaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Dagný Ragnarsdóttir
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Fundargerð 1276. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 403. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

1.Byggðarráð - 1276

Málsnúmer 2604002FVakta málsnúmer

Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1276 Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu.
  • Byggðarráð - 1276 Lögð fram niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa sem unnið var af Consensa fyrir Húnaþing vestra, Húnabyggð og Skagafjörð. Byggðarráð samþykkir mat umsjónarmanns útboðs og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 1.3 2601107 Vinnuskóli 2026
    Byggðarráð - 1276 Í minnisblaðinu kemur fram að með nýjum lögum sem tóku gildi 1. janúar 2025 er Vinnueftirlitinu heimilt að leggja stjórnvaldssektir á atvinnurekanda þegar ítrekað er brotið gegn vinnuverndarlögum. Á það til dæmis við þegar börn yngri en 13 ára eru ráðin til vinnu eða ungmenni ráðin til að vinna við hættulegar aðstæður. Leitað var upplýsinga frá Vinnueftirlitinu vegna málsins og í þeirra svari kom skýrt fram að börn 13 ára og yngri má ekki ráða til vinnu, nema til að taka þátt í menningar- eða listviðburðum, íþróttastarfsemi eða auglýsingastarfsemi en þá þarf ávallt að sækja um leyfi frá Vinnueftirlitinu. Í minnisblaðinu er óskað eftir afstöðu byggðarráðs til þess hvort láta eigi afmælisdag nemenda sem verða 13 ára á árinu gilda við ráðningu í vinnuskóla eða hvort vinnuskóli verði eingöngu fyrir nemendur 14 - 16 ára.
    Byggðarráð samþykkir að við ráðningu barna til vinnuskólans verði miðað við nemendur sem verða 14 - 16 ára á árinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1276 Í bréfinu kemur m.a. fram hvatning til sveitarfélaga og ungmennaráða þeirra til þess að standa fyrir krakkakosningum í tengslum við komandi sveitarstjórnarkosningar. Byggðarráð vísar erindinu til ungmennaráðs.
  • 1.5 2604004 Ársfundur 2026
    Byggðarráð - 1276
  • Byggðarráð - 1276 Fundurinn fór fram 19. apríl 2026. Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri, var fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
  • Byggðarráð - 1276 Byggðarráð samþykkir endurnýjun leigusamningsins til sömu nota og verið hefur til 5 ára í samræmi við framlengingarákvæði samningsins. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1276 Byggðarráð tekur undir athugasemdir bréfritara varðandi umferðaröryggi við Norðurbraut. Umferðarmál eru á höndum skipulags- og umhverfisráðs. Ráðið vísar erindinu til skipulags- og umhverfisráðs og starfandi starfshóps um gerð umferðaröryggisáætlunar.
  • Byggðarráð - 1276
  • Byggðarráð - 1276
  • Byggðarráð - 1276
  • Byggðarráð - 1276
  • Byggðarráð - 1276
Fundargerð 1277. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 403. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

2.Byggðarráð - 1277

Málsnúmer 2604005FVakta málsnúmer

Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1277 Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda og helstu verkefni á döfinni á sviðinu. Byggðarráð þakkar Ingimar greinargóða yfirferð.
  • Byggðarráð - 1277 Alls bárust 3 tilboð:

    Tveir smiðir ehf., kr. 24.918.157.
    HFA smíði ehf., kr. 36.203.235.
    Hvammstak ehf., kr. 34.729.172.

    Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.
    Bókun fundar Þorleifur Karl Eggertsson vék af fundi kl. 15:16 og Magnús Magnússon, varaoddviti tók við stjórn fundarins.

    Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

    Þorleifur Karl kom til fundar að nýju kl. 15:18 og tók við stjórn fundarins að nýju.
  • Byggðarráð - 1277 Lögð fram eftirfarandi tillaga:

    „Eignasjóður
    Íþróttamiðstöð, endurbætur heitur pottur



    kr. 12.000.000

    Hitaveita
    Endurnýjun á stofni hitaveitulagna Hvammstangabrautar


    kr. 22.000.000


    Hækkun eignfærðrar fjárfestingar




    kr. 34.000.000


    Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

    Endurbótum á heitum potti var ekki lokið fyrir síðustu áramót líkt og áformað var.

    Við opnun tilboða í endurnýjun stofns hitaveitulagna á Hvammstangabraut kom í ljós að kostnaðaráætlun var vanáætluð.

    Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.
  • Byggðarráð - 1277 Fjögur tilboð bárust:

    Sjótækni ehf., kr. 277.999.500.
    Vinnuvélar Símonar ehf., kr. 143.163.310.
    Línuborun ehf., kr. 155.807.958.
    Þróttur ehf., kr. 221.314.600.

    Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.

    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1277 Byggðarráð felur sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkið í samræmi við þá forgangsröðun sem fram kemur í úttektinni.
  • Byggðarráð - 1277 Saltberg ehf. undirbýr uppsetningu verksmiðju til saltvinnslu úr sjó á Hvammstanga. Í viljayfirlýsingunni lýsa Húnaþing vestra og Saltberg yfir sameiginlegum vilja til að finna starfseminni heppilega lóð sem og um aðgengi að heitu vatni og sjótöku til framleiðslunnar.
    Byggðarráð fagnar verkefninu enda mun það leiða til fjölgunar starfa og aukinna umsvifa í sveitarfélaginu. Byggðarráð samþykkir framlagða viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra undirritun hennar fyrir hönd Húnaþings vestra.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1277 Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 11 milljónir og hlutur sveitarfélagsins í samræmi við eignahlut, 29,43%. Verkefnið er brýnt en ekki er gert ráð fyrir fjármunum til þess á fjárhagsáætlun ársins 2026. Sveitarstjóra er falið að kanna styrkjamöguleika til verkefnisins áður en ákvörðun er tekin auk þess að afla upplýsinga um vilja annarra eigenda hússins að þátttöku í verkefninu.
  • Byggðarráð - 1277 Undanfarin ár hafa eftirfarandi verkefni verið skilgreind sem forgangsverkefni í Húnaþingi vestra:

    Vatnsnes.
    Borðeyri.
    Reykjatangi.
    Kolugljúfur.
    Stígakerfi við Hvammstanga og víðar.

    Sveitarstjóra er falið að auglýsa eftir tillögum íbúa að forgangsverkefnum og gera tillögu að áherslum sveitarfélagsins í áfangastaðaáætlun byggt á þeim og leggja fyrir byggðarráð.
  • Byggðarráð - 1277 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1277
  • Byggðarráð - 1277
  • Byggðarráð - 1277
  • Byggðarráð - 1277
  • Byggðarráð - 1277
Fundargerð 386. fundar skipulags- og umhverfisráðs lögð fram til afgreiðslu á 403. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

3.Skipulags- og umhverfisráð - 386

Málsnúmer 2603011FVakta málsnúmer

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti kynnti fundargerð. Magnús Magnússon vék af fundi kl. 15:20.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 386 Skipulags- og umhverfisráð tók til umfjöllunar tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 vegna Melstaðar í Miðfirði. Breytingin felur í sér tilfærslu á landnotkunarreit VÞ9, verslun og þjónusta, um u.þ.b. 500 m til suðvesturs. Skilmálar reitsins, umfang fyrirhugaðrar starfsemi og heimildir samkvæmt gildandi aðalskipulagi haldast óbreyttar.


    Ráðið telur að framlagður rökstuðningur sýni með fullnægjandi hætti að fyrirhuguð tilfærsla landnotkunarreits VP9 feli ekki í sér stækkun svæðis heldur einungis hliðrun innan sama svæðis, án breytinga á umfangi eða meginforsendum nýtingar. Jafnframt liggur fyrir að svæðið hefur takmarkað gildi til landbúnaðarnota og að breytingin hafi ekki veruleg áhrif á aðliggjandi landbúnaðarsvæði. Að mati ráðsins samræmist breytingin því skilyrðum 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og telst óveruleg breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026.

    Það er mat ráðsins, með vísan til gátlistans, að breytingin víki ekki verulega frá meginstefnu aðalskipulagsins, feli ekki í sér nýja landnotkun annars eðlis en þegar er gert ráð fyrir á svæðinu, auki ekki umfang landnýtingar, byggingarmagn eða starfsemi og hafi ekki veruleg áhrif á aðliggjandi landnotkun eða einstaka aðila.

    Þar sem breytingin felur í sér að land er tekið úr landbúnaðarnotum hefur skipulagsráð einnig tekið sérstaklega afstöðu til 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
    A-liður 5. gr. jarðalaga: Ráðið telur að landið sé ekki stærra en þörf krefur. Breytingin felur ekki í sér stækkun landnotkunarreitsins heldur tilfærslu hans innan sama svæðis, með óbreyttu umfangi og skilmálum. Fyrirliggjandi gögn gera grein fyrir því að landið hafi takmarkað gildi til hefðbundinnar jarðræktar, m.a. vegna landforms, jarðvegsaðstæðna og þess að það flokkist í flokk III samkvæmt flokkun ræktunarlands. Staðsetningin við gatnamót Norðurlandsvegar nr. 1 og Miðfjarðarvegar nr. 704 er jafnframt talin henta fyrir fyrirhugaða þjónustu- og verslunarstarfsemi vegna aðgengi við samgöngur. Aðrir staðsetningarvalkostir eru taldir lakari, annaðhvort vegna meiri áhrifa á verðmætara landbúnaðarland eða lakari tengingar við samgöngukerfið.

    B-liður 5. gr. jarðalaga: Ráðið telur að breytingin hafi ekki óásættanleg áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði. Fyrirliggjandi rökstuðningur gerir ráð fyrir að tilfærsla reitsins leiði til skýrari aðgreiningar milli þjónustustarfsemi og virkra eða mögulegra landbúnaðarsvæða, þar sem reiturinn færist fjær samfelldum ræktunarsvæðum. Breytingin er því ekki talin skerða raunhæfa möguleika til búrekstrar á aðliggjandi landi, enda verði afmörkun lóðar, aðkoma og vegtengingar útfærðar nánar í deiliskipulagi og í samráði við viðeigandi aðila.

    Með vísan til framangreinds leggur Skipulags- og umhverfisráð til við sveitarstjórn að samþykkja að farið verði með breytinguna sem óverulega breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsráð leggur jafnframt til að sveitarstjórn samþykki framangreinda afstöðu og rökstuðning samkvæmt 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og feli skipulagsfulltrúa að senda rökstudda tillögu um breytinguna til Skipulagsstofnunar til meðferðar og staðfestingar, ásamt gögnum málsins.

    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 386 Skipulags- og umhverfisráð tekur fram að deiliskipulagstillagan er unnin samhliða breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 þar sem gert er ráð fyrir að landnotkunarreitur VÞ9 verði færður um 500 metra til vesturs og skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði.

    Skipulags- og umhverfisráð telur að fyrirliggjandi gögn og skilmálar tillögunnar taki með fullnægjandi hætti á þeim atriðum sem fram hafa komið við undirbúning málsins, meðal annars varðandi samræmingu við aðalskipulagsbreytingu, náttúrufar, vatnafar, mengunarvarnir, brunavarnir og mótvægisaðgerðir vegna röskunar á votlendi.

    Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að tillaga að breytingu á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar í Miðfirði verði samþykkt til auglýsingar samhliða tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

    Magnús kom aftur til fundar kl. 15:21.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 386 Skipulags- og umhverfisráð hefur tekið til umfjöllunar tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 vegna Skrúðvangs á Laugarbakka, þar sem gert er ráð fyrir breytingu á landnotkun til verslunar og þjónustu. Samkvæmt greinargerð tillögunnar er gert ráð fyrir að svæði fyrir verslun og þjónustu, VÞ-3 Skrúðvangur, verði um 0,6 ha, og að svæði fyrir gróðurstöð, SL-1, stækki úr 3,32 ha í 3,99 ha. Þá kemur fram að ferðaþjónusta hafi þróast á svæðinu á undanförnum árum og að breytingin taki til staðfestingar á þeirri starfsemi, auk þess að afmarka hana betur gagnvart aðliggjandi landnotkun.

    Skipulags- og umhverfisráð telur að breytingin geti talist óveruleg breyting á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við mat á því er einkum horft til þess að breytingin víkur ekki verulega frá meginstefnu gildandi aðalskipulags, enda er um að ræða afmörkun og staðfestingu á starfsemi sem þegar hefur þróast á svæðinu. Landnotkun breytist ekki með þeim hætti að hún teljist annars eðlis eða ósamrýmanleg núverandi aðstæðum, þar sem fyrirhuguð verslun og þjónusta tengist þeirri ferðaþjónustu og þjónustustarfsemi sem fyrir er eða hefur verið að þróast á svæðinu.

    Ráðið vísar jafnframt til gátlista Skipulagsstofnunar um mat á því hvort breyting geti talist óveruleg. Þar kemur fram að tillagan víki ekki verulega frá meginstefnu aðalskipulags, að ný landnotkunarskilgreining samræmist ekki illa núverandi ástandi eða skilgreindri landnotkun á svæðinu, að umfang landnýtingar aukist ekki verulega og að svæðið njóti ekki sérstakrar verndar vegna náttúru- eða menningarminja. Þá kemur fram að stækkun landnotkunarreits nemi 2,2 ha, sem er undir almennu viðmiði Skipulagsstofnunar um að 3 ha geti almennt talist veruleg breyting, þó það sé háð mati hverju sinni.

    Að mati ráðsins hefur breytingin ekki áhrif á stórt svæði og felur ekki í sér ákvæði um byggingarmagn eða starfsemi sem líkleg er til að hafa veruleg áhrif innan eða utan skipulagssvæðisins. Þá er ekki talið að breytingin hafi mikil áhrif á einstaka aðila, svo sem vegna hávaða, lyktar, titrings, ryks, ásýndar eða umferðar, né að hún skerði verðmæti eða hagnýtingu fasteigna umfram það sem vænta má miðað við óbreytta landnýtingu eða skipulag.

    Með vísan til framangreinds, og þar sem breytingin felur fyrst og fremst í sér nánari afmörkun og staðfestingu á landnotkun sem er í samræmi við þróun og aðstæður á svæðinu, telur skipulags- og umhverfisráð að breytingin sé óveruleg í skilningi 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Skipulags- og umhverfisráð leggur því til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að samþykkja tillöguna sem óverulega breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og að tillagan verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 3.4 2604050 DSK-Skrúðvangur
    Skipulags- og umhverfisráð - 386 Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka. Tillagan tekur til uppbyggingar og afmörkunar svæðis fyrir ferðaþjónustu, verslun og þjónustu, þar á meðal gistingu, þjónustuhús, bílastæði, aðkomu, gönguleiðir og tengda aðstöðu. Á uppdrætti og í greinargerð kemur fram að skipulagssvæðið sé um 15,1 ha, að gert sé ráð fyrir þjónustuhúsi, allt að 15 gestahúsum, tjaldsvæði og bílastæðum, auk þess sem lögð er áhersla á að uppbygging taki mið af landi, landslagi og núverandi aðstæðum á svæðinu.

    Ráðið telur að tillagan sé í samræmi við fyrirhugaða landnotkun samkvæmt tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 fyrir svæðið, þar sem gert er ráð fyrir verslun og þjónustu á Skrúðvangi. Deiliskipulagstillagan felur í sér nánari útfærslu á fyrirhugaðri uppbyggingu, afmörkun byggingarreita, aðkomu, bílastæðum og innra skipulagi svæðisins.

    Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að samþykkja að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og að tillagan verði auglýst samhliða óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 vegna Skrúðvangs.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 386 Skipulags- og umhverfisráð hefur tekið fyrir umsókn Flaums ehf., eiganda jarðarinnar Núpsdalstungu, landnúmer L144090, um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu í Miðfirði. Samkvæmt umsókn er áformað að planta í um það bil 100 hektara skógræktarsvæði og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist sumarið 2027 og standi yfir í allt að fimm ár. Með umsókn fylgir afmörkun svæðis og greinargerð um fyrirhugaða framkvæmd.

    Ráðið telur að fyrirhuguð framkvæmd sé á landbúnaðarsvæði og samræmist gildandi Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026. Fyrir liggur að framkvæmdin er á þegar friðuðu beitarsvæði, að ekki sé um skráð verndarsvæði náttúruverndarlaga að ræða samkvæmt umsókn, að engar skráðar fornminjar séu á svæðinu samkvæmt minjaskrá og að votlendi verði ekki raskað, enda verði gróðursett í þurrt land sem hentar til skógræktar.

    Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að samþykkja útgáfu framkvæmdaleyfis vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu, með fyrirvara um að framkvæmdin verði í samræmi við framlögð gögn, afmörkun framkvæmdasvæðis og ákvæði skipulagslaga og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

    Jafnframt er áréttað að ef áður óþekktar fornminjar koma í ljós við framkvæmdir skuli stöðva framkvæmdir án tafar og tilkynna Minjastofnun Íslands, í samræmi við lög um menningarminjar.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 386 Breytingar á aðal- og deiliskipulagi við Víðihlíð bíða staðfestingar Skipulagsstofnunar. Að fenginni staðfestingu stofnunarinnar gerir skipulags- og umhverfisráð ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis Heilbrigðiseftilits. Ráðið bendir á að þegar seld er gisting þarf í öllum tilfellum að liggja fyrir rekstrarleyfi frá sýslumanni. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 262. fundar fræðsluráðs lögð fram til afgreiðslu á 403. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

4.Fræðsluráð - 262

Málsnúmer 2604009FVakta málsnúmer

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Fræðsluráð - 262 Skólastjóri leikskóla kynnti helstu atriði nýrrar skólanámskrár leikskólans og ný nöfn á deildum í skólanum, Ás, Borg og Fell. Einnig fór hún yfir helstu niðurstöður foreldrakönnunar.
  • 4.2 2603081 Kannanir
    Fræðsluráð - 262 Aðstoðarskólastjóri fór yfir niðurstöður starfsmannakönnunar.
  • 4.3 2604067 Grunnfærni
    Fræðsluráð - 262 Aðstoðarskólastjóri sagði frá skimun í skólanum á grunnfærni allra nemenda í námsþáttum á miðstigi og viðbrögðum við þeim niðurstöðum. Verklagið verður árlegt hér eftir skv. handbók um stoðþjónustu.
  • 4.4 2604068 Krakkasveiflan
    Fræðsluráð - 262
  • Fræðsluráð - 262
Fundargerð 268. fundar félagsmálaráðs lögð fram til afgreiðslu á 403. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

5.Félagsmálaráð - 268

Málsnúmer 2603009FVakta málsnúmer

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 79. fundar ungmennaráðs lögð fram til afgreiðslu á 403. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

6.Ungmennaráð - 79

Málsnúmer 2604007FVakta málsnúmer

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 13. fundar öldungaráðs lögð fram til afgreiðslu á 403. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

7.Öldungaráð - 13

Málsnúmer 2604010FVakta málsnúmer

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Öldungaráð - 13 Áhersluatriði Landsambands eldri borgara lögð fram til kynningar. Öldungaráð leggur til að sveitarstjórnarfulltrúi sitji í öldungaráði á nýju kjörtímabili til að styrkja tengingu sveitarstjórnar við ráðið. Öldungráð leggur einnig til að við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði viðmiðunarmörk afsláttar fasteignagjalda hækkuð í takt við krónutöluhækkun fasteignagjalda undanfarin ár.
  • 7.2 2511018 Aðgengismál
    Öldungaráð - 13 Öldungaráð vekur enn á ný athygli sveitarstjórnar á slæmu ástandi gangstétta og sumra göngustíga í sveitarfélaginu. Nauðsynlegt er að þessir mikilvægu innviðir þjóni öllum íbúum og ekki síst þeim sem eru fatlaðir og/eða hreyfihamlaðir. Eins þurfa allir íbúar að hafa greitt aðgengi að stofnunum sveitarfélagsins t.d. bókasafninu. Öldungráð óskar eftir samráði við undirbúning og hönnun þessara innviða. Einnig leggur öldungaráð áherslu á umferðaröryggi og fagnar gerð umferðaröryggisáætlunar og hvetur til þess að hún verði lögð fyrir ráðið áður en hún verður samþykkt.
    Öldungaráð vill ítreka staðsetningu bekkja og umhverfi þeirra.
  • 7.3 2410027 Lífsgæðakjarni
    Öldungaráð - 13 Öldungaráð fagnar eftirfarandi bókun sveitarstjórnar frá 11. sept. s.l. og leggur til að deiliskipulagi verði lokið á þessu ári þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir samkvæmt því árið 2027.

    "Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna að deiliskipulagstillögu við Nestún sem kallað er „Lífsgæðakjarni“ sem hefur það markmið að skapa fjölbreytt og aðgengilegt búsetuúrræði fyrir íbúa 50 ára og eldri. Verkefnið er hugsað sem heildstæð lausn þar sem lögð er áhersla á lífsgæði, nálægð við náttúru og virka samfélagslega þátttöku. Með það að leiðarljósi að móta framtíðarúrræði sem samrýmist stefnu sveitarfélagsins um fjölbreytt búsetuskilyrði og bætt lífsgæði eldri íbúa."
  • Öldungaráð - 13 Yfirlit um helstu verkefni fjölskyldusviðs lagt fram til kynningar. Sesselja Kristín fór einnig yfir helstu verkefni Snældunnar heimaþjónustu.

8.Ársreikningur Húnaþings vestra 2025 - síðari umræða

Málsnúmer 2602008Vakta málsnúmer

Ársreikningur Húnaþings vestra fyrir árið 2025 er hér lagður fram til síðari umræðu ásamt áritun óháðs endurskoðanda. Reikningurinn er gerður samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, lögum um ársreikninga nr. 3/2006 og reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Húnaþings vestra, þ.e. A- og B-hluta, var jákvæð um 135,2 millj. kr. á árinu 2025, þar af 18,6 milljónir vegna söluhagnaðar fastafjármuna. Fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir 32,9 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 75,8 millj. kr. samanborið við áætlað tap upp á 5,6 millj. kr.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu 2.558 millj. kr. í A- og B-hluta og jukust milli ára. Skatttekjur námu samtals 1.838 millj. kr. í samstæðunni. Laun og launatengd gjöld voru stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og námu 1.176 millj. kr.

Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt efnahagsreikningi A- og B-hluta nam 2.143 millj. kr. í árslok 2025 og eiginfjárhlutfall var 56,8%. Skuldahlutfall sveitarfélagsins var 64% þegar heimild sveitarstjórnarlaga er 150%. Engin ný lán voru tekin á árinu þrátt fyrir 145 millj. kr. lánsheimild í fjárhagsáætlun. Ekki hafa verið tekin lán síðan 2022 þegar tekið var 45 millj. kr. lán þegar lánaheimild var 150 millj. kr. Fjármagnskostnaður sveitarfélagsins var 24,6 millj. kr. samanborið við 39,3 millj. árið 2024, 88,5 millj. kr. árið 2023 og 103 millj. kr. árið 2022. Skuldaviðmið er nú 32%.

Á árinu 2025 var áfram lögð áhersla á uppbyggingu innviða og fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu alls 305 millj. kr. í A- og B-hluta. Meðal stærri verkefna voru framkvæmdir við grunnskóla, gatnagerð, hitaveitu, vatnsveitu og endurbætur á félagslegu húsnæði sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn telur niðurstöðu ársreikningsins staðfesta að rekstur sveitarfélagsins sé í jafnvægi þrátt fyrir áframhaldandi verðbólgu, hækkandi kostnað og umfangsmikil verkefni sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaðan er jákvæð og fjárhagsstaða sveitarfélagsins góð, sem skapar mikilvægan grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins og þjónustu við íbúa. Sveitarstjórn leggur áherslu á að fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins sé ávallt skynsöm og ábyrg, með það að markmiði að lágmarka lántökur eins og kostur er. Með því skapast aukið svigrúm til að standa undir framkvæmdum með eigin fé og nýta fjármuni sveitarfélagsins frekar til uppbyggingar og mikilvægra verkefna í þágu íbúa en til vaxtagreiðslna. Rekstur sveitarfélagsins er viðkvæmur fyrir utanaðkomandi áhrifum, ekki síst verðbólgu og háu vaxtastigi, og því skiptir áframhaldandi aðhald og ábyrgð í fjármálum miklu máli.

Sveitarstjórn þakkar stjórnendum stofnana og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir gott samstarf og ábyrgð í rekstri sveitarfélagsins á árinu 2025.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagðan ársreikning Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2025 við síðari umræðu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Helstu tölur úr ársreikningi 2025
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta: 135,2 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða A-hluta: 75,8 millj. kr.
Rekstrartekjur A- og B-hluta: 2.558 millj. kr.
Eigið fé A- og B-hluta í árslok: 2.143 millj. kr.
Eiginfjárhlutfall A- og B-hluta: 56,8%.
Veltufé frá rekstri: 293 milljónir fyrir A- og B-hluta, eða 11,5%.
Skuldahlutfall 64%.
Skuldaviðmið 32%.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A- og B-hluta: 305 millj. kr.

9.Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605001Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Eignasjóður
Íþróttamiðstöð, endurbætur heitur pottur kr. 12.000.000

Hitaveita
Endurnýjun á stofni hitaveitulagna Hvammstangabrautar kr. 22.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar kr. 34.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Endurbótum á heitum potti var ekki lokið fyrir síðustu áramót líkt og áformað var. Því er um að ræða færslu á fjármunum á milli ára.

Við opnun tilboða í endurnýjun stofns hitaveitulagna á Hvammstangabraut kom í ljós að kostnaðaráætlun var vanáætluð.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.

10.Umsókn um byggingarlóð

Málsnúmer 2605014Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Sjótækni ehf. á lóðunum Hafnarbraut 9 og 11 á Hvammstanga ásamt beiðni um breytingu á deiliskipulagi svæðisins vegna byggingar á atvinnuhúsnæði til þaravinnslu.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir að úthluta Sjótækni ehf. lóðunum Hafnarbraut 9 og 11 í samræmi við skilmála lóðaúthlutana. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að vísa beiðni um breytingu á deiliskipulagi svæðisins til skipulags- og umhverfisráðs.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2026

Málsnúmer 2605017Vakta málsnúmer

Lagt fram svarbréf félags- og húsnæðismálaráðuneytis vegna umsóknar Húnaþings vestra um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2026.
Sveitarstjórn fagnar þeirri ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins að veita Húnaþingi vestra framlag að fjárhæð allt að 7,6 millj. kr. úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2026 til viðhalds og endurbóta á einstaklingsrýmum og endurgerðar íbúða. Framlagið nemur 50% af áætluðum framkvæmdakostnaði.

Sveitarstjórn þakkar félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fyrir mikilvægan stuðning við verkefnið sem mun stuðla að bættri aðstöðu og auknum lífsgæðum íbúa.

12.Prókúra

Málsnúmer 2605016Vakta málsnúmer

Staðfesting á prókúru sveitarfélagsins frá lokum kjörtímabils þar til ný sveitarstjórn tekur til starfa.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Með vísan til 4. og 5. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar sveitarstjórn sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni Húnaþings vestra prókúruumboð: Elín Jóna Rósinberg, kt. 250477-3259, Hlíðarvegi 24, 530 Hvammstanga. Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjóri veiti framangreindum starfsmanni fullt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið gildir til fyrsta fundar nýrrar sveitarstjórnar.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2311018Vakta málsnúmer

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri fór yfir helstu verkefni sín frá síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:15.

Var efnið á síðunni hjálplegt?