Ársreikningur 2025

Málsnúmer 2602008

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1275. fundur - 09.04.2026

Lögð fram drög að ársreikningi sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2025.
Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, fór yfir drög að ársreikningi sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2025. Byggðarráð samþykkir ársreikninginn og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 402. fundur - 09.04.2026

Oddviti setti fund og óskaði eftir að Ársreikningur 2025 verði fyrsti dagskrárliður og að bæta 1275. fundi byggðarráðs við sem 4. dagskrárlið. Dagskrárliðir 1 - 2 á áður auglýstu fundarboði, verða dagskrárliðir 2-3, og dagskrárliðir 3-12 færast niður um einn dagskrárlið. Skýrsla sveitarstjóra verður því 13. dagskrárliður. Samþykkt samhljóða.
Ársreikningur sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2025 lagður fram til fyrri umræðu sveitarstjórnar ásamt sundurliðunarbók og skýrslu um stjórnsýsluskoðun.
Kristján Jónasson og Helgi Níelsson endurskoðendur KPMG mættu til fundar við sveitarstjórn. Kristján og Helgi lögðu fram og skýrðu ársreikning fyrir árið 2025. Í framhaldinu svöruðu Kristján og Helgi fyrirspurnum sveitarstjórnarmanna.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa ársreikningi sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2025 til síðari umræðu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Kristján og Helgi véku af fundi kl. 16:11.

Sveitarstjórn - 403. fundur - 13.05.2026

Ársreikningur Húnaþings vestra fyrir árið 2025 er hér lagður fram til síðari umræðu ásamt áritun óháðs endurskoðanda. Reikningurinn er gerður samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, lögum um ársreikninga nr. 3/2006 og reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Húnaþings vestra, þ.e. A- og B-hluta, var jákvæð um 135,2 millj. kr. á árinu 2025, þar af 18,6 milljónir vegna söluhagnaðar fastafjármuna. Fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir 32,9 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 75,8 millj. kr. samanborið við áætlað tap upp á 5,6 millj. kr.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu 2.558 millj. kr. í A- og B-hluta og jukust milli ára. Skatttekjur námu samtals 1.838 millj. kr. í samstæðunni. Laun og launatengd gjöld voru stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og námu 1.176 millj. kr.

Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt efnahagsreikningi A- og B-hluta nam 2.143 millj. kr. í árslok 2025 og eiginfjárhlutfall var 56,8%. Skuldahlutfall sveitarfélagsins var 64% þegar heimild sveitarstjórnarlaga er 150%. Engin ný lán voru tekin á árinu þrátt fyrir 145 millj. kr. lánsheimild í fjárhagsáætlun. Ekki hafa verið tekin lán síðan 2022 þegar tekið var 45 millj. kr. lán þegar lánaheimild var 150 millj. kr. Fjármagnskostnaður sveitarfélagsins var 24,6 millj. kr. samanborið við 39,3 millj. árið 2024, 88,5 millj. kr. árið 2023 og 103 millj. kr. árið 2022. Skuldaviðmið er nú 32%.

Á árinu 2025 var áfram lögð áhersla á uppbyggingu innviða og fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu alls 305 millj. kr. í A- og B-hluta. Meðal stærri verkefna voru framkvæmdir við grunnskóla, gatnagerð, hitaveitu, vatnsveitu og endurbætur á félagslegu húsnæði sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn telur niðurstöðu ársreikningsins staðfesta að rekstur sveitarfélagsins sé í jafnvægi þrátt fyrir áframhaldandi verðbólgu, hækkandi kostnað og umfangsmikil verkefni sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaðan er jákvæð og fjárhagsstaða sveitarfélagsins góð, sem skapar mikilvægan grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins og þjónustu við íbúa. Sveitarstjórn leggur áherslu á að fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins sé ávallt skynsöm og ábyrg, með það að markmiði að lágmarka lántökur eins og kostur er. Með því skapast aukið svigrúm til að standa undir framkvæmdum með eigin fé og nýta fjármuni sveitarfélagsins frekar til uppbyggingar og mikilvægra verkefna í þágu íbúa en til vaxtagreiðslna. Rekstur sveitarfélagsins er viðkvæmur fyrir utanaðkomandi áhrifum, ekki síst verðbólgu og háu vaxtastigi, og því skiptir áframhaldandi aðhald og ábyrgð í fjármálum miklu máli.

Sveitarstjórn þakkar stjórnendum stofnana og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir gott samstarf og ábyrgð í rekstri sveitarfélagsins á árinu 2025.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagðan ársreikning Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2025 við síðari umræðu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Helstu tölur úr ársreikningi 2025
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta: 135,2 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða A-hluta: 75,8 millj. kr.
Rekstrartekjur A- og B-hluta: 2.558 millj. kr.
Eigið fé A- og B-hluta í árslok: 2.143 millj. kr.
Eiginfjárhlutfall A- og B-hluta: 56,8%.
Veltufé frá rekstri: 293 milljónir fyrir A- og B-hluta, eða 11,5%.
Skuldahlutfall 64%.
Skuldaviðmið 32%.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A- og B-hluta: 305 millj. kr.

Var efnið á síðunni hjálplegt?