Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605001

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1277. fundur - 04.05.2026

Bætt á dagskrá:
Fyrir hönd framkvæmdaráðs leggur sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fram tillögu að viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026 vegna endurnýjunar stofns hitaveitu á Hvammstangabraut og endurbóta á heitum potti við íþróttamiðstöð.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Eignasjóður
Íþróttamiðstöð, endurbætur heitur pottur



kr. 12.000.000

Hitaveita
Endurnýjun á stofni hitaveitulagna Hvammstangabrautar


kr. 22.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar




kr. 34.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Endurbótum á heitum potti var ekki lokið fyrir síðustu áramót líkt og áformað var.

Við opnun tilboða í endurnýjun stofns hitaveitulagna á Hvammstangabraut kom í ljós að kostnaðaráætlun var vanáætluð.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.

Sveitarstjórn - 403. fundur - 13.05.2026

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Eignasjóður
Íþróttamiðstöð, endurbætur heitur pottur kr. 12.000.000

Hitaveita
Endurnýjun á stofni hitaveitulagna Hvammstangabrautar kr. 22.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar kr. 34.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Endurbótum á heitum potti var ekki lokið fyrir síðustu áramót líkt og áformað var. Því er um að ræða færslu á fjármunum á milli ára.

Við opnun tilboða í endurnýjun stofns hitaveitulagna á Hvammstangabraut kom í ljós að kostnaðaráætlun var vanáætluð.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?