Byggðarráð

1277. fundur 27. apríl 2026 kl. 14:30 - 15:55 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Þorleifur Karl Eggertsson
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kom til fundar kl. 14:31.

1.Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kemur til fundar

Málsnúmer 2502042Vakta málsnúmer

Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda og helstu verkefni á döfinni á sviðinu. Byggðarráð þakkar Ingimar greinargóða yfirferð.
Þorleifur Karl Eggertsson vék af fundi kl. 14:50.

2.Aðstöðuhús - Kirkjuhvammi

Málsnúmer 2601040Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar vegna framkvæmda við þak á aðstöðuhúsi í Kirkjuhvammi.
Alls bárust 3 tilboð:

Tveir smiðir ehf., kr. 24.918.157.
HFA smíði ehf., kr. 36.203.235.
Hvammstak ehf., kr. 34.729.172.

Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.
Þorleifur kom aftur til fundar kl. 14:56.
Bætt á dagskrá:

3.Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605001Vakta málsnúmer

Fyrir hönd framkvæmdaráðs leggur sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fram tillögu að viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026 vegna endurnýjunar stofns hitaveitu á Hvammstangabraut og endurbóta á heitum potti við íþróttamiðstöð.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Eignasjóður
Íþróttamiðstöð, endurbætur heitur pottur



kr. 12.000.000

Hitaveita
Endurnýjun á stofni hitaveitulagna Hvammstangabrautar


kr. 22.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar




kr. 34.000.000


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Endurbótum á heitum potti var ekki lokið fyrir síðustu áramót líkt og áformað var.

Við opnun tilboða í endurnýjun stofns hitaveitulagna á Hvammstangabraut kom í ljós að kostnaðaráætlun var vanáætluð.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.

4.Hvammstangabraut endurnýjun á stofni hitaveitu

Málsnúmer 2501043Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða útboðs á endurnýjun á stofni hitaveitu á Hvammstangabraut, Hvammstanga.
Fjögur tilboð bárust:

Sjótækni ehf., kr. 277.999.500.
Vinnuvélar Símonar ehf., kr. 143.163.310.
Línuborun ehf., kr. 155.807.958.
Þróttur ehf., kr. 221.314.600.

Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.

5.Brunahönnun Reykjaskóli

Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer

Lögð fram brunahönnun og brunatæknileg úttekt á húseignum á Reykjaskóla sem unnin var af Örugg verkfræðistofu.
Byggðarráð felur sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkið í samræmi við þá forgangsröðun sem fram kemur í úttektinni.

6.Viljayfirlýsing um lóð fyrir saltvinnslu úr sjó og aðgang að heitu vatni til vinnslunnar.

Málsnúmer 2604039Vakta málsnúmer

Lögð fram viljayfirlýsing milli Húnaþings vestra og Saltberg ehf. um lóð á Hvammstanga fyrir saltvinnslu úr sjó og aðgang að heitu vatni til slíkrar vinnslu.
Saltberg ehf. undirbýr uppsetningu verksmiðju til saltvinnslu úr sjó á Hvammstanga. Í viljayfirlýsingunni lýsa Húnaþing vestra og Saltberg yfir sameiginlegum vilja til að finna starfseminni heppilega lóð sem og um aðgengi að heitu vatni og sjótöku til framleiðslunnar.
Byggðarráð fagnar verkefninu enda mun það leiða til fjölgunar starfa og aukinna umsvifa í sveitarfélaginu. Byggðarráð samþykkir framlagða viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra undirritun hennar fyrir hönd Húnaþings vestra.
Ingimar Ingimarsson vék af fundi kl. 15:34.

7.Lyfta á Höfðabraut 6

Málsnúmer 2604029Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Húsfélagsins Höfðabraut 6 varðandi tilboð í kaup og uppsetningu á lyftu í húsið.
Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 11 milljónir og hlutur sveitarfélagsins í samræmi við eignahlut, 29,43%. Verkefnið er brýnt en ekki er gert ráð fyrir fjármunum til þess á fjárhagsáætlun ársins 2026. Sveitarstjóra er falið að kanna styrkjamöguleika til verkefnisins áður en ákvörðun er tekin auk þess að afla upplýsinga um vilja annarra eigenda hússins að þátttöku í verkefninu.

8.Áfangastaðaáætlun Norðurlands

Málsnúmer 2604079Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Markaðsstofu Norðurlands um skilgreiningu forgangsverkefna í Áfangastaðaáætlun Norðurlands fyrir árið 2026.

Undanfarin ár hafa eftirfarandi verkefni verið skilgreind sem forgangsverkefni í Húnaþingi vestra:

Vatnsnes.
Borðeyri.
Reykjatangi.
Kolugljúfur.
Stígakerfi við Hvammstanga og víðar.

Sveitarstjóra er falið að auglýsa eftir tillögum íbúa að forgangsverkefnum og gera tillögu að áherslum sveitarfélagsins í áfangastaðaáætlun byggt á þeim og leggja fyrir byggðarráð.

9.Mál til umsagnar: Loftslagslög, 595. mál

Málsnúmer 2604057Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 595. mál, Loftslagslög.
Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

10.Ársreikningur 2025 - Náttúrustofa Norðurlands vestra

Málsnúmer 2604056Vakta málsnúmer

Ársreikningur Náttúrustofu Norðurlands vestra lagður fram til kynningar.

11.Ársreikningur 2025 - Félagsheimilið Ásbyrgi

Málsnúmer 2604066Vakta málsnúmer

Ársreikningur Félagsheimilisins Ásbyrgis fyrir 2025 lagður fram til kynningar.

12.Fundargerð Fjallskiladeildar Víðdælinga 21. apríl 2026

Málsnúmer 2604045Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð Fjallskiladeildar Víðdælinga frá 21. apríl 2026.

13.Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Norðurlands vestra 2026

Málsnúmer 2604055Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar Náttúrustofu Norðurlands vestra frá 25. mars 2026.

14.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:55.

Var efnið á síðunni hjálplegt?