Áfangastaðaáætlun Norðurlands

Málsnúmer 2604079

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1277. fundur - 04.05.2026

Lögð fram beiðni Markaðsstofu Norðurlands um skilgreiningu forgangsverkefna í Áfangastaðaáætlun Norðurlands fyrir árið 2026.

Undanfarin ár hafa eftirfarandi verkefni verið skilgreind sem forgangsverkefni í Húnaþingi vestra:

Vatnsnes.
Borðeyri.
Reykjatangi.
Kolugljúfur.
Stígakerfi við Hvammstanga og víðar.

Sveitarstjóra er falið að auglýsa eftir tillögum íbúa að forgangsverkefnum og gera tillögu að áherslum sveitarfélagsins í áfangastaðaáætlun byggt á þeim og leggja fyrir byggðarráð.

Byggðarráð - 1286. fundur - 17.08.2026

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra vegna forgangsverkefna áfangastaðaáætlunar 2026. Áður á dagskrá 1277. fundar þann 4. maí 2026.
Auglýst var eftir tillögum að forgangsverkefnum áfangastaðaáætlunar 2026 frá íbúum á heimasíðu og samfélagsmiðlum sveitarfélagsins. Engar tillögur bárust.

Byggðarráð samþykkir að forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar 2026 verði eftirtalin svæði: Vatnsnes (óbreytt), Borðeyri (óbreytt), Hvítserkur (nýtt), Kolugljúfur (óbreytt) og Bergárfoss (nýtt).

Sveitarstjóra er falið að koma uppfærðum forgangsverkefnum á framfæri við Markaðsstofu Norðurlands.
Var efnið á síðunni hjálplegt?