Viljayfirlýsing um lóð fyrir saltvinnslu úr sjó og aðgang að heitu vatni til vinnslunnar.

Málsnúmer 2604039

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1277. fundur - 27.04.2026

Lögð fram viljayfirlýsing milli Húnaþings vestra og Saltberg ehf. um lóð á Hvammstanga fyrir saltvinnslu úr sjó og aðgang að heitu vatni til slíkrar vinnslu.
Saltberg ehf. undirbýr uppsetningu verksmiðju til saltvinnslu úr sjó á Hvammstanga. Í viljayfirlýsingunni lýsa Húnaþing vestra og Saltberg yfir sameiginlegum vilja til að finna starfseminni heppilega lóð sem og um aðgengi að heitu vatni og sjótöku til framleiðslunnar.
Byggðarráð fagnar verkefninu enda mun það leiða til fjölgunar starfa og aukinna umsvifa í sveitarfélaginu. Byggðarráð samþykkir framlagða viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra undirritun hennar fyrir hönd Húnaþings vestra.
Ingimar Ingimarsson vék af fundi kl. 15:34.
Var efnið á síðunni hjálplegt?