Lyfta á Höfðabraut 6

Málsnúmer 2604029

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1277. fundur - 04.05.2026

Lagt fram erindi Húsfélagsins Höfðabraut 6 varðandi tilboð í kaup og uppsetningu á lyftu í húsið.
Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 11 milljónir og hlutur sveitarfélagsins í samræmi við eignahlut, 29,43%. Verkefnið er brýnt en ekki er gert ráð fyrir fjármunum til þess á fjárhagsáætlun ársins 2026. Sveitarstjóra er falið að kanna styrkjamöguleika til verkefnisins áður en ákvörðun er tekin auk þess að afla upplýsinga um vilja annarra eigenda hússins að þátttöku í verkefninu.

Byggðarráð - 1279. fundur - 15.06.2026

Lagt fram erindi frá Húsfélaginu Höfðabraut 6, dags. 1. júní 2026, vegna fyrirhugaðrar uppsetningar á lyftu í húsið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða þátttöku í kostnaði vegna fyrirhugaðrar uppsetningar á lyftu að Höfðabraut 6 í samræmi við viðauka þann sem samþykktur var í 5. dagskrárlið. Samþykkið er skilyrt við að meirihluti eigenda hússins samþykki þátttöku í verkefninu.
Var efnið á síðunni hjálplegt?