Prókúra

Málsnúmer 2605016

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 403. fundur - 13.05.2026

Staðfesting á prókúru sveitarfélagsins frá lokum kjörtímabils þar til ný sveitarstjórn tekur til starfa.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Með vísan til 4. og 5. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar sveitarstjórn sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni Húnaþings vestra prókúruumboð: Elín Jóna Rósinberg, kt. 250477-3259, Hlíðarvegi 24, 530 Hvammstanga. Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjóri veiti framangreindum starfsmanni fullt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið gildir til fyrsta fundar nýrrar sveitarstjórnar.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Sveitarstjórn - 404. fundur - 11.06.2026

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Með vísan til 4. mgr. 50. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024 og 4. og 5.mgr. 55.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 staðfestir sveitarstjórn heimild sveitarstjóra til að veita Elínu Jónu Rósinberg, kt. 250477-3259, til heimilis að Hlíðarvegi 24, 530 Hvammstanga, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og staðgengils sveitarstjóra, umboð til að koma fram fyrir hönd sveitarfélagsins í málum sem falla undir starfssvið hennar og þau verkefni sem sveitarstjóri felur henni að sinna og undirrita skjöl, samninga, umsóknir, staðfestingar, leyfi, lóðaleigusamninga, bréf og önnur gögn sem varða daglega stjórnsýslu, fjármál, starfsmannamál, rekstur sveitarfélagsins og önnur verkefni á verksviði sveitarstjóra, eftir því sem við á og innan þeirra marka sem lög, samþykktir sveitarfélagsins og ákvarðanir sveitarstjórnar kveða á um.

Umboðið tekur einnig til fyrirsvars og undirritunar fyrir hönd fyrirtækja og stofnana í B-hluta reikningsskila sveitarfélagsins, eftir því sem við á.

Umboðið gildir til fyrsta sveitarstjórnarfundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum 2030.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?