Byggðarráð

1276. fundur 20. apríl 2026 kl. 14:00 - 16:02 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Umsókn um afslátt af leigu á Félagsheimilinu á Hvammstanga

Málsnúmer 2604026Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra um afslátt af húsaleigu Félagsheimilisins Hvammstanga vegna vorskemmtunar félaga eldri borgara á Norðurlandi vestra þann 6. maí 2026.
Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu.

2.Hreinsun rotþróa útboð 2026

Málsnúmer 2601034Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa sem unnið var af Consensa fyrir Húnaþing vestra, Húnabyggð og Skagafjörð.
Lögð fram niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa sem unnið var af Consensa fyrir Húnaþing vestra, Húnabyggð og Skagafjörð. Byggðarráð samþykkir mat umsjónarmanns útboðs og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir vék af fundi kl. 14:18.

3.Vinnuskóli 2026

Málsnúmer 2601107Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá verkefnisstjóra umhverfismála vegna aldurstakmarka nemenda í Vinnuskóla Húnaþings vestra.
Í minnisblaðinu kemur fram að með nýjum lögum sem tóku gildi 1. janúar 2025 er Vinnueftirlitinu heimilt að leggja stjórnvaldssektir á atvinnurekanda þegar ítrekað er brotið gegn vinnuverndarlögum. Á það til dæmis við þegar börn yngri en 13 ára eru ráðin til vinnu eða ungmenni ráðin til að vinna við hættulegar aðstæður. Leitað var upplýsinga frá Vinnueftirlitinu vegna málsins og í þeirra svari kom skýrt fram að börn 13 ára og yngri má ekki ráða til vinnu, nema til að taka þátt í menningar- eða listviðburðum, íþróttastarfsemi eða auglýsingastarfsemi en þá þarf ávallt að sækja um leyfi frá Vinnueftirlitinu. Í minnisblaðinu er óskað eftir afstöðu byggðarráðs til þess hvort láta eigi afmælisdag nemenda sem verða 13 ára á árinu gilda við ráðningu í vinnuskóla eða hvort vinnuskóli verði eingöngu fyrir nemendur 14 - 16 ára.
Byggðarráð samþykkir að við ráðningu barna til vinnuskólans verði miðað við nemendur sem verða 14 - 16 ára á árinu.
Unnur Valborg kom til fundar að nýju kl. 14:29.

4.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

Málsnúmer 2604028Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá umboðsmanni barna varðandi lýðræðislega þátttöku barna í sveitarstjórnarkosningum 2026.
Í bréfinu kemur m.a. fram hvatning til sveitarfélaga og ungmennaráða þeirra til þess að standa fyrir krakkakosningum í tengslum við komandi sveitarstjórnarkosningar. Byggðarráð vísar erindinu til ungmennaráðs.

5.Ársfundur 2026

Málsnúmer 2604004Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á ársfund Stapa lífeyrissjóðs.

6.Aðalfundur 2026 - Veiðifélag Víðidalsár

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á aðalfund Veiðifélags Víðidalsár 2026.
Fundurinn fór fram 19. apríl 2026. Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri, var fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.

7.Samningur um skólatún Laugarbakkaskóla

Málsnúmer 2604027Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Elínar Önnu Skúladóttur um endurnýjun leigusamnings í samræmi við forleiguákvæði gildandi samnings vegna ræktarlands við Laugarbakka.
Byggðarráð samþykkir endurnýjun leigusamningsins til sömu nota og verið hefur til 5 ára í samræmi við framlengingarákvæði samningsins.

8.Gangbraut yfir Norðurbraut

Málsnúmer 2604035Vakta málsnúmer

Lagt fram afrit erindis frá Guðrúnu Ragnarsdóttur til Vegagerðarinnar um að sett verði upp gangbraut og hraðahindrun við gatnamót Norðurbrautar og Hvammavegar.
Byggðarráð tekur undir athugasemdir bréfritara varðandi umferðaröryggi við Norðurbraut. Umferðarmál eru á höndum skipulags- og umhverfisráðs. Ráðið vísar erindinu til skipulags- og umhverfisráðs og starfandi starfshóps um gerð umferðaröryggisáætlunar.

9.Aðalfundarboð Landskerfis bókasafna 2026

Málsnúmer 2604038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna 2026.

10.Ársreikningur 2025 Verslunarminjasafnið á Hvammstanga

Málsnúmer 2604019Vakta málsnúmer

Ársreikningur Verslunarminjasafnsins á Hvammstanga fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar.

11.Ársreikningur 2025 Veiðifélag Arnarvatnsheiðar og Tvídægru

Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer

Ársreikningur Veiðifélags Arnarvatnsheiðar og Tvídægru fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar.

12.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2601028Vakta málsnúmer

Fundargerð 138. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lögð fram til kynningar.

13.Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601077Vakta málsnúmer

Fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:02.

Var efnið á síðunni hjálplegt?