-
Byggðarráð - 1277
Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda og helstu verkefni á döfinni á sviðinu. Byggðarráð þakkar Ingimar greinargóða yfirferð.
-
Byggðarráð - 1277
Alls bárust 3 tilboð:
Tveir smiðir ehf., kr. 24.918.157.
HFA smíði ehf., kr. 36.203.235.
Hvammstak ehf., kr. 34.729.172.
Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.
Bókun fundar
Þorleifur Karl Eggertsson vék af fundi kl. 15:16 og Magnús Magnússon, varaoddviti tók við stjórn fundarins.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Þorleifur Karl kom til fundar að nýju kl. 15:18 og tók við stjórn fundarins að nýju.
-
Byggðarráð - 1277
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Eignasjóður
Íþróttamiðstöð, endurbætur heitur pottur
kr. 12.000.000
Hitaveita
Endurnýjun á stofni hitaveitulagna Hvammstangabrautar
kr. 22.000.000
Hækkun eignfærðrar fjárfestingar
kr. 34.000.000
Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
Endurbótum á heitum potti var ekki lokið fyrir síðustu áramót líkt og áformað var.
Við opnun tilboða í endurnýjun stofns hitaveitulagna á Hvammstangabraut kom í ljós að kostnaðaráætlun var vanáætluð.
Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.
-
Byggðarráð - 1277
Fjögur tilboð bárust:
Sjótækni ehf., kr. 277.999.500.
Vinnuvélar Símonar ehf., kr. 143.163.310.
Línuborun ehf., kr. 155.807.958.
Þróttur ehf., kr. 221.314.600.
Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda.
Bókun fundar
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Byggðarráð - 1277
Byggðarráð felur sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkið í samræmi við þá forgangsröðun sem fram kemur í úttektinni.
-
Byggðarráð - 1277
Saltberg ehf. undirbýr uppsetningu verksmiðju til saltvinnslu úr sjó á Hvammstanga. Í viljayfirlýsingunni lýsa Húnaþing vestra og Saltberg yfir sameiginlegum vilja til að finna starfseminni heppilega lóð sem og um aðgengi að heitu vatni og sjótöku til framleiðslunnar.
Byggðarráð fagnar verkefninu enda mun það leiða til fjölgunar starfa og aukinna umsvifa í sveitarfélaginu. Byggðarráð samþykkir framlagða viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra undirritun hennar fyrir hönd Húnaþings vestra.
Bókun fundar
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Byggðarráð - 1277
Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 11 milljónir og hlutur sveitarfélagsins í samræmi við eignahlut, 29,43%. Verkefnið er brýnt en ekki er gert ráð fyrir fjármunum til þess á fjárhagsáætlun ársins 2026. Sveitarstjóra er falið að kanna styrkjamöguleika til verkefnisins áður en ákvörðun er tekin auk þess að afla upplýsinga um vilja annarra eigenda hússins að þátttöku í verkefninu.
-
Byggðarráð - 1277
Undanfarin ár hafa eftirfarandi verkefni verið skilgreind sem forgangsverkefni í Húnaþingi vestra:
Vatnsnes.
Borðeyri.
Reykjatangi.
Kolugljúfur.
Stígakerfi við Hvammstanga og víðar.
Sveitarstjóra er falið að auglýsa eftir tillögum íbúa að forgangsverkefnum og gera tillögu að áherslum sveitarfélagsins í áfangastaðaáætlun byggt á þeim og leggja fyrir byggðarráð.
-
Byggðarráð - 1277
Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
-
Byggðarráð - 1277
-
Byggðarráð - 1277
-
Byggðarráð - 1277
-
Byggðarráð - 1277
-
Byggðarráð - 1277