Ungmennaráð

79. fundur 28. apríl 2026 kl. 15:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Jóhanna Maj Júlíusdóttir aðalmaður
  • Birta Ögn Alfreðsdóttir aðalmaður
  • Bríet Anja Birgisdóttir aðalmaður
  • Ari Karl Kárason aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Tanja Ennigarð embættismaður
  • Jóhann Örn Finnsson
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Marín Rós Eyjólfsdóttir mætti til fundarins á Teams kl. 15:00

1.Kynnig Unicef fyrir ungmennaráð um barnvænt sveitarfélag

Málsnúmer 2604048Vakta málsnúmer

Marín Rós Eyjólfsdóttir frá Unicef kynnti verkefnið barnvænt sveitarfélag.
Marín Rós Eyjólfsdóttir vék af fundi kl. 15:38

2.Erindisbréf ungmennaráðs og þagnarheit

Málsnúmer 2604046Vakta málsnúmer

Ungmennaráð undirritaði þagnarheit og kynnt var erindisbréf ungmennaráðs. Ræddar hugmyndir um barnaþing sem stefnt er að halda næsta haust. Fulltrúar ungmennaráðs eru reiðubúnir að vinna að skipulagi þingsins á komandi vikum.

3.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

Málsnúmer 2604028Vakta málsnúmer

Ungmennaráð skorar á framboð í Húnaþingi vestra fyrir komandi kosningar að boða til fundar þar sem ungmenni og börn geti rætt við frambjóðendur. Ungmennaráð telur að mikill áhugi sé á slíku.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?