Öldungaráð

13. fundur 05. maí 2026 kl. 10:00 - 11:25 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Guðmundur Haukur Sigurðsson formaður
  • Jóna Halldóra Tryggvadóttir aðalmaður
  • Eggert Karlsson aðalmaður
  • Ólafur Bergmann Óskarsson aðalmaður
  • Kristbjörg Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Sesselja Kristín Eggertsdóttir aðalmaður
  • Kristín R. Guðjónsdóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Áherslur LEB vegna sveitarstjórnarkosninga

Málsnúmer 2604080Vakta málsnúmer

Áhersluatriði Landsambands eldri borgara lögð fram til kynningar. Öldungaráð leggur til að sveitarstjórnarfulltrúi sitji í öldungaráði á nýju kjörtímabili til að styrkja tengingu sveitarstjórnar við ráðið. Öldungráð leggur einnig til að við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði viðmiðunarmörk afsláttar fasteignagjalda hækkuð í takt við krónutöluhækkun fasteignagjalda undanfarin ár.

2.Aðgengismál

Málsnúmer 2511018Vakta málsnúmer

Öldungaráð vekur enn á ný athygli sveitarstjórnar á slæmu ástandi gangstétta og sumra göngustíga í sveitarfélaginu. Nauðsynlegt er að þessir mikilvægu innviðir þjóni öllum íbúum og ekki síst þeim sem eru fatlaðir og/eða hreyfihamlaðir. Eins þurfa allir íbúar að hafa greitt aðgengi að stofnunum sveitarfélagsins t.d. bókasafninu. Öldungráð óskar eftir samráði við undirbúning og hönnun þessara innviða. Einnig leggur öldungaráð áherslu á umferðaröryggi og fagnar gerð umferðaröryggisáætlunar og hvetur til þess að hún verði lögð fyrir ráðið áður en hún verður samþykkt.
Öldungaráð vill ítreka staðsetningu bekkja og umhverfi þeirra.

3.Lífsgæðakjarni

Málsnúmer 2410027Vakta málsnúmer

Öldungaráð fagnar eftirfarandi bókun sveitarstjórnar frá 11. sept. s.l. og leggur til að deiliskipulagi verði lokið á þessu ári þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir samkvæmt því árið 2027.

"Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna að deiliskipulagstillögu við Nestún sem kallað er „Lífsgæðakjarni“ sem hefur það markmið að skapa fjölbreytt og aðgengilegt búsetuúrræði fyrir íbúa 50 ára og eldri. Verkefnið er hugsað sem heildstæð lausn þar sem lögð er áhersla á lífsgæði, nálægð við náttúru og virka samfélagslega þátttöku. Með það að leiðarljósi að móta framtíðarúrræði sem samrýmist stefnu sveitarfélagsins um fjölbreytt búsetuskilyrði og bætt lífsgæði eldri íbúa."

4.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

Málsnúmer 2601078Vakta málsnúmer

Yfirlit um helstu verkefni fjölskyldusviðs lagt fram til kynningar. Sesselja Kristín fór einnig yfir helstu verkefni Snældunnar heimaþjónustu.

Fundi slitið - kl. 11:25.

Var efnið á síðunni hjálplegt?