Umsókn um byggingarlóð

Málsnúmer 2605014

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 403. fundur - 13.05.2026

Lögð fram umsókn Sjótækni ehf. á lóðunum Hafnarbraut 9 og 11 á Hvammstanga ásamt beiðni um breytingu á deiliskipulagi svæðisins vegna byggingar á atvinnuhúsnæði til þaravinnslu.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir að úthluta Sjótækni ehf. lóðunum Hafnarbraut 9 og 11 í samræmi við skilmála lóðaúthlutana. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að vísa beiðni um breytingu á deiliskipulagi svæðisins til skipulags- og umhverfisráðs.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Skipulagsráð - 387. fundur - 01.07.2026

Sjótækni ehf. hefur óskað eftir lóðum undir atvinnuhúsnæði við Hafnarbraut 9 og 11 á Hvammstanga fyrir þaravinnslu og jafnframt óskað eftir breytingu á deiliskipulagi svæðisins svo fyrirhuguð uppbygging geti rúmast innan skipulagsskilmála.



Sveitarstjórn hefur þegar samþykkt að úthluta Sjótækni ehf. lóðunum Hafnarbraut 9 og 11 í samræmi við skilmála lóðaúthlutana og vísað beiðni um breytingu á deiliskipulagi svæðisins til skipulags- og umhverfisráðs. Málið er því lagt fyrir ráðið til umfjöllunar um næstu skref í skipulagsferlinu.
Skipulagsráð tekur til umfjöllunar erindi sveitarstjórnar vegna beiðni Sjótækni ehf. um breytingu á deiliskipulagi við Hafnarbraut á Hvammstanga, í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu atvinnuhúsnæðis fyrir þaravinnslu á lóðunum Hafnarbraut 9 og 11.

Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010, kalla eftir nauðsynlegum gögnum frá umsækjanda og undirbúa tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðisins til frekari umfjöllunar ráðsins.
Var efnið á síðunni hjálplegt?