Sveitarstjórn

409. fundur 12. nóvember 2026 kl. 15:00 - 18:31 að Höfðabraut 6
Nefndarmenn
  • Sigurður Líndal Þórisson oddviti var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Dagrún Kristinsdóttir
  • Örn Arnarson varaoddviti
  • Eygló Hrund Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Nína Axelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Magnús Magnússon
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Varaoddviti kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort að athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram.

1.Byggðarráð - 1297

Málsnúmer 2610013FVakta málsnúmer

Fundargerð 1297. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 409. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson varaoddviti kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1297 Byggðarráð þakkar Magnúsi og Selmu greinargóðar kynningar. Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að óska eftir sameiginlegum fundi með öllum sveitarfélögunum í landshlutanum vegna málsins.
  • Byggðarráð - 1297 Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur með áorðnum breytingun og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1297 Málið hefur áður verið tekið fyrir á 272. og 273. fundum félagsmálaráðs.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að skila rekstarleyfi Félagsheimilisins Hvammstanga inn til sýslumanns. Með því er liðkað fyrir leyfisveitingum til annarra viðburðahaldara.
    Bókun fundar Örn Arnarson og Viktor Ingi Jónsson véku af fundi kl. 15:02. Magnús Magnússon aldursforseti tók við stjórn fundarins.

    Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum.

    Örn og Viktor komu til fundar að nýju kl. 15:05 og tók Örn við fundarstjórn að nýju.
  • Byggðarráð - 1297 Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar þeirri vinnu sem fram fer við mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga og telur mikilvægt að fyrir liggi góðar, áreiðanlegar og samanburðarhæfar upplýsingar sem geti stutt við stefnumótun og ákvarðanatöku til lengri tíma. Ráðið leggur hins vegar ríka áherslu á að við mótun og beitingu viðmiðanna verði tekið fullt tillit til þess hversu ólíkar aðstæður sveitarfélaga eru um allt land. Landfræðileg stærð, dreifing byggðar, vegalengdir, fjöldi byggðarkjarna og mismunandi framkvæmd við veitingu grunnþjónustu hafa veruleg áhrif á rekstur og þróun sveitarfélaga. Mikilvægt er að sameiginleg viðmið nái utan um þennan fjölbreytileika en leiði ekki til einfaldaðs eða villandi samanburðar milli sveitarfélaga sem búa við ólíkar rekstrarforsendur. Sveitarfélagið tekur heilshugar undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum Skagafjarðar og Múlaþings. Sérstaklega er mikilvægt að mat á fjárhagslegri sjálfbærni taki mið af umfangi lögbundinnar þjónustu, kostnaði við rekstur innviða og getu sveitarfélaga til að veita íbúum örugga og góða þjónustu til lengri tíma, en eins og fram kemur í umræðuskjalinu liggur ekki fyrir sameiginleg niðurstaða um hvaða kennitölur lýsi fjárhagslegri sjálfbærni best. Jafnframt leggur sveitarfélagið áherslu á að viðmiðin verði fyrst og fremst hagnýtt stjórntæki sem byggi á fyrirliggjandi gögnum, en leiði alls ekki til aukinnar stjórnsýslubyrði eða nýrra skýrslugjafarkvaða fyrir sveitarfélögin. Þá er nauðsynlegt að niðurstöður mælinganna nýtist ríkisvaldinu við eigin áætlanagerð og forgangsröðun í innviðafjármögnun, enda ráðast forsendur sjálfbærrar byggðaþróunar ekki eingöngu af ákvörðunum sveitarfélaganna sjálfra. Að síðustu leggur ráðið ríka áherslu á að mótun og innleiðing viðmiða sem þessara auki ekki beinan eða óbeinan kostnað sveitarfélaga. Skal þess sérstaklega gætt að nýjar kröfur, kerfi eða vöktun leiði ekki til útgjaldaauka sveitarstjórnarstigsins, heldur verði slíkur kostnaður að fullu borinn af ríkissjóði í samræmi við meginreglur um fjárhagslegt forræði sveitarfélaga. Sveitarfélagið styður áframhaldandi samstarf um mótun viðmiðanna með þeirri skýru áherslu að þau verði einföld, gagnleg og sveigjanleg, endurspegli raunverulegan aðstöðumun og án viðbótarkostnaðar fyrir sveitarfélög.
  • Byggðarráð - 1297 Byggðarráð Húnaþings vestra hefur yfirfarið áformaskjal innviðaráðuneytis vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar byggðatengdra veiðiheimilda. Ráðið leggur ríka áherslu á að við frumvarpssmíðina verði tryggt að byggðakvóti þjóni upphaflegum markmiðum sínum um að efla atvinnu, treysta búsetu og styðja við staðbundna útgerð og vinnslu í sjávarbyggðum landsins. Af þessu tilefni ítrekar byggðarráð sjónarmið sín sem fram komu í ítarlegri umsögn frá því í sumar vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar byggðakvótakerfisins. Fylgir sú umsögn hér með í heild sinni sem óaðskiljanlegur hluti athugasemda Húnaþings vestra við hið kynnta mál, með ósk um að áherslur hennar verði lagðar til grundvallar við áframhaldandi vinnu ráðuneytisins.
  • Byggðarráð - 1297

2.Byggðarráð - 1298

Málsnúmer 2611002FVakta málsnúmer

Fundargerð 1298. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 409. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson varaoddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Skipulagsráð - 390

Málsnúmer 2610003FVakta málsnúmer

Fundargerð 390. fundar skipulagsráðs lögð fram til afgreiðslu á 409. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Nína Axelsdóttir varaformaður skipulagsráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 390 Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu staðfangsins úr Stóri-Ós lóð í Stóri-Ós 1 og fela skipulagsfulltrúa að sjá um uppfærslu skráningar í samræmi við samþykktina Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 390 Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu staðfangsins úr Syðsti-Ós lóð í Syðsti-Ós 1 og fela skipulagsfulltrúa að sjá um uppfærslu skráningar í samræmi við samþykktina. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 390 Skipulagsráð samþykkir ekki staðfangið og leggur til við umsækjanda að endurskoða staðfangið Syðsti-Fjós. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 390 Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu staðfangsins úr Syðsti Ós lóð 3 í Syðsti-Ós 2 og fela skipulagsfulltrúa að sjá um uppfærslu skráningar í samræmi við samþykktina. Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulagsráð - 390 Skipulagsráð leggur til að skipulagsfulltrúa og sveitarstjóra verði falið í samráði við lögmann sveitarfélagsins að yfirfara gögn og réttindagrundvöll reiðvegar um Hulduhvamm í Leiti.
    Málið verði lagt að nýju fyrir ráðið með tillögu að afgreiðslu að lokinni þeirri vinnu.
  • Skipulagsráð - 390 Skipulagsráð tekur jákvætt í áform um uppbyggingu tjaldsvæðis á Staðarflöt og breytta notkun bílgeymslu í aðstöðuhús.
    Áformin falla að almennri stefnu Aðalskipulags Húnaþings vestra 2014-2026 um eflingu ferðaþjónustu og bætta aðstöðu til móttöku ferðamanna.

    Ráðið felur skipulagsfulltrúa að yfirfara samræmi fyrirhugaðrar starfsemi við gildandi skipulag og meta þörf að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við skipulagslög.

    Við yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins verði landnotkun á Staðarflöt afmörkuð með ítarlegri hætti og sett skýrari ákvæði um umfang og fyrirkomulag ferðaþjónustu, þar á meðal tjald- og hjólhýsasvæðis og tilheyrandi þjónustubygginga.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulagsráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5

Málsnúmer 2611001FVakta málsnúmer

Fundargerð 5. fundar umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs lögð fram til afgreiðslu á 409. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Magnús Magnússon formaður umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5 Ráðið þakkar verkefnastjóra umhverfismála kynninguna og leggur til við sveitarstjórn að haldinn verði íbúafundur þar sem mismunandi sviðsmyndir verða kynntar íbúum sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5 Ráðið þakkar yfirferðina.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5 Ráðið leggur til við sveitarstjórn að uppfærsla verklagsreglna vegna framkvæmda og framkvæmdasamninga verði samþykkt.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5 Ráðið leggur til við sveitarstjórn að starfshópur um hitaveitu í Hrútafirði verði stofnaður, erindisbréf vegna starfshópsins samþykkt og tilnefnir: Kolbrúnu Stellu Indriðadóttur, fulltrúa meirihluta sveitarstjórnar, sem jafnframt yrði formaður, Viktor Inga Jónsson, fulltrúa minnihluta sveitarstjórnar og Gunnar Þórarinsson, sem fulltrúa íbúa í Hrútafirði. Starfshópurinn heyri undir umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð og leggi fundargerðir sínar fyrir ráðið.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5 Ráðið leggur til við sveitarstjórn að ráðhúsið við Hvammstangabraut 5 verði selt í núverandi ástandi og felur sviðsstjóra að leggja fram minnisblað um framtíðar húsnæðismöguleika fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins. Bókun fundar Fulltrúar B- og D- lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

    „Ráðhúsinu við Hvammstangabraut 5 var lokað 12. október eftir að úttektir sýndu myglu á öllum hæðum hússins. Niðurstaða Ferils verkfræðistofu er að húsið henti ekki í núverandi ástandi til að taka á móti almenningi og að úrbætur jafngildi nánast því að rífa það inn að burðarvirki.

    Viðgerð af þeirri stærðargráðu er áhættusöm fyrir sveitarfélag. Raunverulegt umfang kemur ekki í ljós fyrr en við niðurrif, og viðbótarverk og kröfur sem af því leiða falla á almannafé. Sveitarfélagið er jafnframt bundið af reglum um opinber innkaup og af þeim kröfum sem gerðar eru til húsnæðis opinberrar stjórnsýslu. Einkaaðili hefur meira svigrúm. Hann getur valið húsinu nýtt hlutverk, ráðið umfangi og áfangaskiptingu endurbóta og unnið verkið á eigin forsendum. Hús sem er sveitarfélaginu byrði getur því verið öðrum tækifæri.

    Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði á 5. fundi sínum til við sveitarstjórn að húsið verði selt í núverandi ástandi og fól sviðsstjóra að leggja fram minnisblað um framtíðarhúsnæði stjórnsýslunnar. Auglýst verður eftir tilboðum í húsið með fresti til 30. nóvember 2026 og væntanlegir kaupendur fá skýrslu Ferils um ástand þess. Í tilboði skal koma fram hvernig kaupandi hyggst nýta húsið. Kostnað við endurbætur meta kaupendur sjálfir út frá eigin áformum, enda ræðst hann af því hlutverki sem húsinu er ætlað. Með sölunni er engin ákvörðun tekin um framtíðarhúsnæði ráðhúss sveitarfélagsins að öðru leyti.

    Það er trú meirihlutans að með sölu hússins sé áhættu létt af sveitarsjóði, húsinu gefið færi á nýju hlutverki og sveitarstjórn gert kleift að velja stjórnsýslunni húsnæði til framtíðar án þess að vera bundin af ástandi gamla hússins.“

    Varaoddviti samþykkti beiðni fulltrúa N-lista um fundarhlé kl. 15:29.

    Fundur hófst að nýju kl. 15:36.

    Fulltrúar N-listans lögðu fram eftirfarandi bókun:

    „Fulltrúar N-listans telja mikilvægt að framtíðarfyrirkomulag húsnæðismála stjórnsýslu Húnaþings vestra verði tekið til heildstæðrar umræðu og að minnisblað sviðsstjóra umhverfis- veitu- og framkvæmdasviðs liggi fyrir áður en ákvörðun um sölu ráðhússins verði tekin.

    Fulltrúar N-lista sýna því fullan skilning að flytja þurfti starfsemi ráðhússins tímabundið vegna aðstæðna í núverandi húsnæði og telja eðlilegt að skoða þá möguleika sem eru, eða gætu verið, í stöðunni. Áður en tekin er afstaða til sölu ráðhússins þurfi að liggja fyrir skýrari framtíðarsýn um hvar starfsemi sveitarfélagsins eigi að vera til húsa til lengri tíma. Einnig leggja fulltrúar N-lista til að fyrir liggi annað álit á ástandi hússins í dag áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Fyrir fundinum í dag liggur aðeins eitt kostnaðarmat á endurbótum þess.

    Það er stór ákvörðun að selja ráðhús sveitarfélagsins og möguleg bygging nýs ráðhúss, kaup á öðru eða aðrar lausnir geta haft veruleg áhrif á framtíðarskipulag, þjónustu og fjárhag sveitarfélagsins. Eins þarf að huga að áhrifunum á nærumhverfið, enda er ráðhúsið staðsett á einum besta stað á Hvammstanga. Því teljum við mikilvægt að fyrir liggi yfirsýn yfir mögulega valkosti, húsnæðisþörf og kostnað við mismunandi leiðir.

    N-listinn leggur áherslu á að málið verði unnið í réttri röð, af skynsemi og með heildarhagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi.“

    Afgreiðsla umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Magnús Vignir og Eygló Hrund sátu hjá við afgreiðslu málsins.

5.Öldungaráð - 14

Málsnúmer 2610011FVakta málsnúmer

Fundargerð 14. fundar öldungaráðs lögð fram til afgreiðslu á 409. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson varaoddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Öldungaráð - 14 Farið var yfir erindisbréf öldungaráðs. Guðmundur Sigurðsson var svo kjörinn formaður með öllum greiddum atkvæðum. Jón Haukdal Kristjánsson var kjörinn varaformaður með öllum greiddum atkvæðum.
  • Öldungaráð - 14 Sviðsstjóri kynnti framtíðarskipulag félagsheimilisins sem samþykkt var á félagsmálaráðsfundi þann 28. október 2026. Öldungaráð lýsir ánægju með skipulagið.
  • 5.3 2511018 Aðgengismál
    Öldungaráð - 14 Öldungaráð beinir eftirfarandi atriðum til sveitarstjórnar:
    -Aðgengi að Höfðabraut 6; háir kanntar á stétt fyrir utan, hátt frá stétt að inngangi og þungar hurðar.
    -Fara yfir aðgengi á gagnstéttum þar sem víða er hátt og ekki niðurtekið.
    -Bekkur ofarlega á Brekkugötu nýtist fáum og væri betur staðsettur út við Höfða.
    -Aðgengi meðfram íþróttahúsi frá Hlíðarvegi.
    -Tryggja merkingar og upplýsingar þegar framkvæmdir eru í gangi til að tryggja öryggi vegfarenda.

    Einnig leggur öldungaráð til að sveitarstjórn óski eftir tillögum frá ráðinu vegna fjárhagsáætlunargerðar. Þá leggur öldungaráð til að sveitarstjórn og eftir atvikum aðrar nefndir, vísi málum sem varða eldri borgara til umsagnar ráðsins.
  • 5.4 2410027 Lífsgæðakjarni
    Öldungaráð - 14 Byggingar- og skipulagsfulltrúi greindi frá stöðu skipulags lífsgæðakjarna fyrir neðan Nestún. Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar að gera ráð fyrir undirbúningi við gatnagerð og veitur á svæðinu í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

6.Félagsmálaráð - 274

Málsnúmer 2610010FVakta málsnúmer

Fundargerð 274. fundar félagsmálaráðs lögð fram til afgreiðslu á 409. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson varaoddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Félagsmálaráð - 274 Fríða Ósmann og Sindri kynntu teikningar af Félagsheimilinu Hvammstanga. Félagsmálaráð samþykkir framlagðar teikningar og leggur áherslu á að framkvæmdar verði breytingar á eldhúsi, suðursal og vesturenda eins og fjármagn leyfir fyrir áramót. Félagsmálaráð kallar jafnframt eftir ítarlegri teikningum af eldhúsi. Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu verkefna í félagsheimilinu. Bókun fundar Afgreiðsla félagsmálaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Reglur um veitingu launalausra leyfa til starfsmanna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2610072Vakta málsnúmer

Fulltrúar B- og D- lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Veiting launalausra leyfa er starfsmannamál. Tilgangur uppfærðra reglna er að þær séu svo skýrar að stjórnendur sveitarfélagsins geti afgreitt umsóknir eftir þeim án aðkomu kjörinna fulltrúa. Í reglunum kemur fram hver tekur ákvörðun, á hvaða forsendum leyfi er veitt eða því synjað, hve langt leyfi getur orðið og hvernig farið er með framlengingu og endurkomu til starfa. Starfsmenn vita þá að hverju þeir ganga og sitja allir við sama borð.

Þar sem reglurnar gera ráð fyrir mati er það bundið við þau sjónarmið sem þar eru tilgreind. Það er í samræmi við skyldu sveitarfélagsins til að meta hverja umsókn á málefnalegum forsendum.

Reglurnar voru til umfjöllunar á tveimur fundum byggðarráðs, 1296. fundi þann 26. október og 1297. fundi þann 2. nóvember 2026, og lögmaður sveitarfélagsins las þær yfir. Tekið var tillit til flestra þeirra athugasemda sem fram komu í ráðinu, þar á meðal skriflegra athugasemda fulltrúa N-lista.

Það er trú meirihlutans að breytingar þessar á reglunum skýri rétt starfsmanna, veiti stjórnendum betri leiðbeiningar og aðhald, og komi í veg fyrir pólitísk afskipti af einstökum starfsmannamálum.“

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir Reglur um veitingu launalausra leyfa til starfsmanna Húnaþings vestra.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Verklagsreglur vegna framkvæmda - framkvæmdasamningar

Málsnúmer 2607015Vakta málsnúmer

Lagðar fram uppfærðar verklagsreglur vegna framkvæmda til samþykktar sveitarstjórnar.
Fulltrúar B- og D- lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Verklagsreglur vegna verksamninga voru fyrst samþykktar í byggðarráði 10. ágúst 2026 að tillögu umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs. Þetta var fyrsta innleiðing slíkra reglna hjá sveitarfélaginu og eðlilegt að þær séu endurskoðaðar að fenginni reynslu.

Tilgangur breytinganna er að reglurnar uppfylli lög nr. 120/2016 um opinber innkaup og lög nr. 8/2015 um greiðsludrátt í verslunarviðskiptum, ennfremur að meðferð almannafjár sé gegnsæ og rekjanleg og að kjörnir fulltrúar séu upplýstir jafnharðan um tafir og kostnaðarauka. Verktakar, eftirlitsaðilar og breytingar á verkum verða skráð í fundargerðir. Reglurnar voru uppfærðar með hliðsjón af útboðs- og samningsskilmálum Reykjavíkurborgar og standast nú samanburð við reglur annarra sveitarfélaga.

Helstu breytingar eru að ekki má stofna til aukaverka nema fjárheimild liggi fyrir, aukaverk sem ná 15% af samningsfjárhæð fara fyrir byggðarráð og allir verksamningar yfir 2 milljónum króna eru lagðir fram til kynningar í umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráði.

Samningsformið hefur nú ákvæði um samningsfjárhæð, tryggingar, úttekt, ábyrgðartíma og keðjuábyrgð. Sérfræðingur hjá Ferli og lögmaður sveitarfélagsins lásu reglurnar yfir og umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði á 5. fundi sínum til við sveitarstjórn að þær yrðu samþykktar.

Það er trú meirihlutans að reglurnar veiti starfsfólki og verktökum skýran ramma og aðhald, óháð því hver á í hlut, og tryggi að allir verktakar sitji við sama borð.“

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir uppfærðar verklagsreglur vegna framkvæmda.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Þjónustustefna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2403070Vakta málsnúmer

Þjónustustefna Húnaþings vestra lögð fram til annarrar umræðu í sveitarstjórn.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir Þjónustustefnu Húnaþings vestra, en fyrri umræða fór fram þann 29. október sl.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Hagsmunaskráning kjörtímabilið 2026-2030

Málsnúmer 2611013Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir Reglur og sniðmát um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum kjörinna fulltrúa og lykilstarfsmanna.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Endurskoðun á reglugerð - Hitaveita Húnaþings vestra

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Uppfærð reglugerð fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra lögð fram til fyrri umræðu.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþins vestra samþykkir uppfærða Reglugerð fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra og vísar til síðari umræðu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

12.Starfshópur um málefni hitaveitu í Hrútafirði

Málsnúmer 2610058Vakta málsnúmer

Lagt fram erindisbréf fyrir starfshóp um málefni hitaveitu í Hrútafirði ásamt tillögu umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs frá 5. nóvember sl.
Fulltrúar B- og D- lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Lagning hitaveitu í austanverðum Hrútafirði var til umræðu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í vor. Meirihlutinn vill að málið fái vandaða skoðun áður en ákvarðanir eru teknar um framhaldið.

Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði á 5. fundi sínum til við sveitarstjórn að stofnaður verði starfshópur um málið og erindisbréf hans samþykkt. Í hópnum sitja fulltrúi meirihluta, sem er formaður, fulltrúi minnihluta og fulltrúi íbúa í Hrútafirði. Með hópnum starfa sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs og forstöðumaður veitna.

Hlutverk hópsins er skýrt afmarkað í erindisbréfi. Hann á að kanna lagningu hitaveitu til suðurs frá Reykjum, þar á meðal fjölda hugsanlegra notenda, tiltækt vatnsmagn, framkvæmdakostnað og hagkvæmni. Hann á einnig að kanna fýsileika þess að dýpka borholuna við Laugarholt og möguleika á styrkjum og annarri fjármögnun. Fundargerðir hópsins eru lagðar fyrir ráðið að hverjum fundi loknum og niðurstöðum og tillögum skilar hann þangað. Hópurinn starfar frá skipunardegi til 1. febrúar 2028 og er á þeim tíma heimilt að halda allt að 12 fundi.

Það er trú meirihlutans að með þessu fái málið skýran farveg, íbúar í Hrútafirði beina aðkomu að vinnunni og sveitarstjórn traustan grunn til ákvarðana.“

Fulltrúar N-lista lögð fram eftirfarandi bókun:

„Fulltrúar N-listans fagna stofnun starfshópsins.“

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir stofnun starfshóps um málefni hitaveitu í Hrútafirði og framlagt erindisbréf hans. Sveitarstjórn staðfestir skipan starfshópsins í samræmi við tillögu ráðsins:

Kolbrún Stella Indriðadóttir, fulltrúi meirihluta, formaður
Viktor Ingi Jónsson, fulltrúi minnihluta
Gunnar Þórarinsson, fulltrúi íbúa í Hrútafirði

Starfshópurinn heyrir stjórnsýslulega undir umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð og leggur fundargerðir sínar fyrir ráðið.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

GJALDSKRÁ FASTEIGNAGJALDA OG ÚTSVARS
Lögð fram eftirfarandi tillaga að gjaldskrá fasteignagjalda og útsvars, ásamt reglum um afslátt af fasteignaskatti árið 2027:

„Útsvar 14,97 %
Fasteignaskattur A-gjald 0,439 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur B-gjald 1,32 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur C-gjald 1,33 % af fm. húss og lóðar

Lóðarleiga, almennt gjald 11,32 kr. pr. m2
Lóðarleiga, ræktað land 1,58 kr. pr. m2

Fráveitugjald 0,19% af fm.húss og lóðar

Vatnsgjald 0,24% af fm. húss og lóðar

Aukavatnsgjald 35 kr. pr. m3

Hreinsun rotþróa:
0-3999 lítra 11.000 kr. pr. þró
4000-5999 lítra 23.190 kr. pr. þró
6000 lítra og stærri 36.000 kr. pr. þró


Sorpgjald á íbúðarhúsnæði, regluleg sorphirða 100.000 kr.
Sorpeyðingargjald, sumarbústaðir og íbúðir í dreifbýli þar sem ekki er hirt sorp 44.375 kr.

Lóðarleigu og fasteignaskatt skv. A-, B- og C- gjaldi skal innheimta frá fyrstu skráningu hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, en fráveitugjald, vatnsgjald og sorpgjöld skal innheimta frá þeim tíma að fasteign hefur verið skráð með byggingarstig BS 2.

Gjalddagar
Gjalddagi gjalda undir kr. 20.000 er 1. maí.
Gjalddagar gjalda sem eru á bilinu kr. 20.001 - 38.000 eru 1. apríl og 1. júlí.
Fasteignagjöld eigna sem eru hærri en kr. 38.000 hafa 8 gjalddaga, frá 1. febrúar 2027 til 1. september 2027.

Reglur um afslátt af fasteignaskatti árið 2027.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru vegna íbúðarhúsnæðis þeirra til eigin nota og fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnaþingi vestra. Afslátturinn er tekjutengdur og miðaður við árstekjur 2025 samkvæmt skattframtali 2026, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjur og tekur einungis til fasteignaskatts.

Hámark afsláttar er 115.000 kr.

Tekjuviðmiðun:
Fyrir einstaklinga:
a) Með heildartekjur allt að 5.670.000 kr. fær 100% afslátt, þó að hámarki 115.000 kr.
b) Með tekjur umfram 7.650.000 kr. enginn afsláttur.

Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a) Með heildartekjur allt að 7.650.000 kr. fær 100% afslátt, þó að hámarki 115.000 kr.
b) Með heildartekjur umfram 10.117.000 kr. enginn afsláttur.

Hlutfallslegur afsláttur er veittur samkvæmt framangreindu tekjubili.

Skilyrði fyrir afslætti er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur. Sé fasteign skráð með leyfi til heimagistingar fellur afsláttur af fasteignagjöldum með öllu niður árið 2027. Í tilfelli hjóna eða sambýlisfólks, ræður aldur þess sem fyrr verður 67 ára án tillits til þess hvort þeirra er skráð fyrir eigninni.

Við andlát maka styrkir sveitarsjóður eftirlifandi um sömu upphæð og nemur álögðum fasteignaskatti ársins að fullu.“

Varaoddviti samþykkti beiðni fulltrúa N-lista um fundarhlé kl. 16:14.

Fundur hófst að nýju kl. 16:20.

N-listinn leggur fram eftirfarandi bókun:

„Fulltrúar N-lista óskuðu eftir því á 408. fundi sveitarstjórnar að lagt yrði mat á áhrif hóflegrar 2,5% hækkunar almennra gjaldskráa. Með hliðsjón af því mati sem nú liggur fyrir telja fulltrúar N-lista ekki ráðlegt að frysta gjaldskrá fasteignagjalda og vatnsveitu.

N-listinn stendur hins vegar með frystingu annarra gjaldskráa, enda snúa þær fyrst og fremst að málaflokkum sem tengjast lýðheilsu og barnafjölskyldum.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Magnús Vignir og Eygló Hrund greiddu atkvæði gegn tillögunni.

GJALDSKRÁR TIL EINNAR UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra og fjarnámsstofu.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Bóka- og héraðsskjalasafns Húnaþings vestra og Félagsmiðstöðvarinnar Óríon.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá geymslusvæða í Grænulaut.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá þjónustumiðstöðvar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

GJALDSKRÁR TIL SEINNI UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Magnús Vignir og Eygló Hrund greiddu atkvæði á móti tillögunni.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki.
Fulltrúar B- og D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Fjárhagsáætlun Húnaþings vestra fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 er lögð fram við erfiðar aðstæður í rekstri sveitarfélaga. Verðbólga er enn há, vextir háir og verðlag hátt. Fjármagnskostnaður er því þungur og hver ný lántaka dýr. Á sama tíma hafa útgjöld í lögbundnum málaflokkum vaxið hraðar en tekjustofnar sveitarfélagsins.

Víða hafa sveitarfélög svarað þessari stöðu með uppsögnum, frystingu ráðninga og niðurskurði í þjónustu. Sú leið var ekki valin í Húnaþingi vestra.

Þá hefur sveitarfélagið á undanförnum árum ráðist í mikilvægar framkvæmdir og endurbætur á innviðum sem nauðsynlegt var að sinna og sem skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins.

Við vinnslu fjárhagsáætlunarinnar hefur verið lögð rík áhersla á að mæta auknum rekstrarkostnaði án þess að sækja viðbótarfjármagn í vasa íbúa. Þess í stað er lögð áhersla á ábyrga fjármálastjórn, aðhald í rekstri, forgangsröðun verkefna og markvissa leit að leiðum til hagræðingar án þess að skerða grunnþjónustu við íbúa.

Sveitarstjórn hafði fjögur leiðarljós við gerð áætlunarinnar:
- Að standa vörð um hag íbúa og íþyngja þeim ekki með óþarfa álögum.
- Að verja störf hjá sveitarfélaginu.
- Að tryggja góða þjónustu.
- Að lágmarka, og helst útiloka, lántökur.
Þessi markmið toga hvert í sína átt og vandasamt að samræma þau. Sveitarstjórn taldi það engu að síður skyldu sína, og eftir mikla vinnu liggur hér fyrir áætlun sem gefur raunhæfan möguleika á að ná þeim öllum.

Óbreyttar gjaldskrár og álögur á íbúa
Sveitarstjórn hefur ákveðið að hækka ekki almennar gjaldskrár sveitarfélagsins á árinu 2027. Með þeirri ákvörðun gengur sveitarstjórn lengra en ályktað var á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga og leggur þannig sitt af mörkum til að draga enn frekar úr verðbólguþrýstingi og koma til móts við heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu. Þá er rotþróargjald lækkað vegna hagstæðari samninga við hreinsun þeirra.

Útsvarsprósenta verður áfram óbreytt, eða 14,97%. Álagningarhlutföll fasteignaskatts lækka og verða 0,439% í A-flokki og 1,33% í C-flokki í stað 0,45% og 1,42% á árinu 2026. Þrátt fyrir breytingar á fasteignamati er þannig stefnt að því að fasteignagjöld verði nær óbreytt í krónutölu á milli ára. Þó getur í einstaka tilfellum munað einhverju í krónutölu vegna mismunandi breytinga á fasteignamati á milli svæða innan sveitarfélagsins. Tekjuviðmið vegna afsláttar af fasteignaskatti til tekjulágra, elli- og örorkulífeyrisþega verða vegna þessa óbreytt frá fyrra ári.

Með þessum ákvörðunum er sveitarstjórn að leggja áherslu á fyrirsjáanleika og hóflegar álögur á íbúa og atvinnulíf. Þannig er leitast við að skapa stöðugleika fyrir heimili og fyrirtæki á sama tíma og sveitarfélagið tekst á við aukinn rekstrarkostnað.

N-listinn óskaði við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun eftir upplýsingum um áhrif þess á rekstur sveitarfélagsins að gjaldskrár séu ekki hækkaðar á milli ára. Hækkun gjaldskráa um 2,5% í takt við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga hefði skilað 14,8 milljónum króna. Meirihluti sveitarstjórnar ítrekar vilja sinn til að halda álögum í lágmarki til að koma til móts við heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu á tímum verðbólgu og hás vaxtastigs en það er fyrst og fremst mögulegt vegna ábyrgrar fjármálastjórnunar undanfarinna ára. Meirihlutinn lítur ekki á þessa fjárhæð sem tap. Sveitarfélagið getur ekki tapað fé sem það á ekki. Þetta eru fjármunir íbúa og fyrirtækja. Minni álögur geta því aldrei talist tapað fé, og að taka sífellt stærri sneið af kökunni er ekki leiðin til velsældar.

Rekstur sveitarfélagsins
Samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að rekstrartekjur samstæðu A- og B-hluta verði um 2.768 milljónir króna árið 2027 og að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 44,3 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er jákvæð öll ár áætlunartímabilsins. Áætlun áranna 2028-2030 er þó háð mikilli óvissu, einkum vegna húsnæðismála skrifstofu sveitarfélagsins.

Áætlað veltufé frá rekstri samstæðunnar er 164,7 milljónir króna, eða um 6% af rekstrartekjum. Framlegð samstæðunnar er áætluð um 192,8 milljónir króna, eða 7,0%.

Jákvæð rekstrarniðurstaða samstæðunnar er mikilvæg, ekki síst í ljósi þess kostnaðarþrýstings sem sveitarfélög hafa staðið frammi fyrir. Hún breytir þó ekki því að fjárhagslegt svigrúm er þröngt og áfram þarf að gæta aðhalds og skýrrar forgangsröðunar. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja rekstur A-hluta til lengri tíma litið og tryggja getu hans til að standa undir lögbundinni þjónustu, nauðsynlegu viðhaldi og framtíðarskuldbindingum.

Þjónusta við íbúa og forgangsröðun verkefna
Sveitarstjórn leggur áfram ríka áherslu á öfluga grunnþjónustu, ekki síst í skóla-, félags- og velferðarmálum. Fjölgun barna í Leikskólanum Ásgarði hefur kallað á aukna mönnun og hærri rekstrarkostnað en er um leið ánægjuleg vísbending um þróun samfélagsins og mikilvægi þess að byggja áfram upp góða þjónustu við barnafjölskyldur. Áætlað er að foreldrar greiði sem samsvarar 9,3% af rekstrarkostnaði leikskólans á næsta ári.

Í grunnskólanum er gert ráð fyrir endurnýjun húsgagna í tveimur kennslustofum og fjárveitingu til tölvukaupa. Jafnframt er gert ráð fyrir lengri opnun bókasafnsins einn dag í viku. Þannig er áfram unnið að því að bæta aðstöðu og þjónustu þrátt fyrir þröngan fjárhagsramma.

Málefni fatlaðs fólks eru áfram umfangsmikill og kostnaðarsamur málaflokkur. Óvissa er um endanlega kostnaðarþróun og fjárhagslega hlutdeild sveitarfélagsins í sameiginlegri þjónustu. Mikilvægt er að áfram verði unnið að því að tryggja bæði góða þjónustu og gagnsæi í kostnaðarskiptingu ásamt því að ríkið mæti kostnaði við þennan mikilvæga málaflokk að fullu.

Sveitarstjórn leggur áherslu á að varðveita þann öfluga grunn sem byggður hefur verið upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi og er gert ráð fyrir óbreyttum stuðningi við starfsemina á árinu 2027. Einnig er áfram veitt fjármunum til ýmissa menningar- og samfélagslegra verkefna. Sveitarstjórn telur mikilvægt að hlúa að því fjölbreytta starfi sem er einn af styrkleikum samfélagsins. Framlög til stjórnmálasamtaka árið 2027 eru 100 krónur, í ljósi aðstæðna. Framlögin eru veitt samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, en þau gera sveitarfélaginu skylt að styðja stjórnmálasamtök. Þeim skal einnig úthlutað í hlutfalli við atkvæðamagn í sveitarstjórnarkosningunum 2026, til þeirra samtaka sem uppfylla skilyrði 5. gr. a laganna.

Framkvæmdir og fjárfestingar
Áfram verður unnið að nauðsynlegri uppbyggingu og endurnýjun innviða sveitarfélagsins. Í fjárhagsáætluninni er meðal annars gert ráð fyrir fjármunum til gatna, veitna og annarra framkvæmda sem nauðsynlegar eru til að tryggja öryggi og þjónustu til framtíðar.

Jafnframt er gert ráð fyrir fjármunum til að hefja vinnu við varanlega lausn á húsnæðismálum skrifstofu sveitarfélagsins. Stefnt er að því að mæta útgjöldum vegna húsnæðismálanna á árinu 2027 án lántöku ef þess er nokkur kostur. Endanleg útfærsla liggur ekki fyrir en mikilvægt er að vinna markvisst að lausn sem tryggir starfsfólki viðunandi vinnuaðstöðu og styður við skilvirka stjórnsýslu til framtíðar.

Áfram veitir sveitarfélagið fjármunum til styrkvega, heiðagirðinga, fjallaskála og rétta, enda eru þessi verkefni mikilvæg fyrir landbúnað og atvinnulíf í dreifbýli sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið hefur ekki tekið ný lán frá árinu 2022, þrátt fyrir að gert hafi verið ráð fyrir lántökuheimildum í fjárhagsáætlunum undanfarinna ára. Sú staða hefur verið mikilvægur þáttur í að halda fjármagnskostnaði í skefjum. Áfram verður lögð áhersla á að nýta eigið fé til fjárfestinga eftir því sem kostur er og fresta nýrri lántöku þar til lánakjör verða ásættanlegri. Miðað við núverandi forsendur er þó ljóst að fjárfestingar komandi ára kunna að kalla á lántöku. Því verður áfram gætt að jafnvægi milli nauðsynlegrar uppbyggingar, greiðslugetu og skuldsetningar.

Sveitarstjórn leggur jafnframt áherslu á að fylgst verði náið með þróun skuldahlutfalls, veltufjár frá rekstri og handbærs fjár á áætlunartímabilinu.

Ábyrg fjármálastjórn og framtíðarsýn
Fjárhagsáætlunin endurspeglar þá áherslu sveitarstjórnar að standa vörð um fjárhagslegan stöðugleika sveitarfélagsins, tryggja góða grunnþjónustu og skapa forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu. Jákvæð rekstrarniðurstaða samstæðunnar og sú staðreynd að ekki hefur þurft að grípa til nýrrar lántöku frá árinu 2022 eru mikilvægir þættir í þeirri stöðu.

Áskoranirnar eru engu að síður verulegar. Svigrúm til ófyrirséðra útgjalda er takmarkað og aukin skuldsetning myndi hafa áhrif á fjármagnskostnað og afborganir næstu ára. Það verður því áfram eitt af meginverkefnum sveitarstjórnar að styrkja rekstrargrunninn, byggja upp fjárhagslegt svigrúm og halda lántökum í lágmarki.

Sveitarstjórn telur því mikilvægt að áfram verði unnið markvisst að hagræðingu, bættri nýtingu fjármuna og styrkingu reglulegrar rekstrarafkomu.

Á sama tíma verður áfram lögð áhersla á að efla atvinnulíf, fjölga íbúum og skapa skilyrði fyrir frekari uppbyggingu í sveitarfélaginu. Fjölgun íbúa og fjölbreyttari atvinnutækifæri eru meðal mikilvægustu forsendna þess að styrkja tekjugrunn sveitarfélagsins til framtíðar. Þar skiptir uppbygging íbúðarhúsnæðis síðustu misseri afar miklu og áfram verður leitað leiða til að fjölga íbúðum.

Sveitarstjórn horfir björtum augum til framtíðar Húnaþings vestra. Á undanförnum árum hefur verið lagður mikilvægur grunnur að frekari uppbyggingu, meðal annars með fjárfestingum í innviðum og fjölgun íbúðarhúsnæðis. Þau atvinnutækifæri sem nú eru í farvatninu gefa jafnframt tilefni til bjartsýni um fjölgun starfa og aukin umsvif í samfélaginu. Húnaþing vestra býr yfir fjölmörgum styrkleikum og tækifærum sem mikilvægt er að nýta til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar.

Markmið sveitarstjórnar er skýrt: að tryggja sjálfbæran og ábyrgan rekstur sem gerir sveitarfélaginu kleift að veita góða þjónustu, standa undir nauðsynlegri uppbyggingu og nýta þau tækifæri sem framtíðin ber í skauti sér. Þótt fjárhagslegt svigrúm sé þröngt nú er full ástæða til að horfa fram á veginn af bjartsýni og festu.

Sveitarstjórn þakkar stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir mikla vinnu við gerð fjárhagsáætlunarinnar og fyrir þann metnað sem lagður er í að veita íbúum góða þjónustu við krefjandi fjárhagslegar aðstæður.“

Varaoddviti samþykkti beiðni fulltrúa N-lista um fundarhlé kl. 16:43.

Fundur hófst að nýju kl. 17:14.

Fulltrúar N-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Fulltrúar N-lista geta tekið undir mörg þeirra markmiða sem fram koma í bókun B- og D-lista, svo sem að standa vörð um störf hjá sveitarfélaginu og tryggja góða þjónustu við íbúa. Þó skal nokkrum atriðum haldið til haga.

Fulltrúar N-lista þakka fyrir þær upplýsingar sem fylgdu því mati sem óskað var eftir á 408. fundi sveitarstjórnar. Matið gaf sveitarstjórnarfulltrúum öllum betri yfirsýn yfir útreikninga og heildarmyndina og var gagnlegt öðrum gögnum til hliðsjónar. Sveitarstjórnarfulltrúar eru bundnir af eigin sannfæringu og er það álit fulltrúa N-lista að hófleg hækkun gjaldskráa hefði verið eðlilegt skref í þeim aðstæðum sem blasa við.

Fulltrúar N-lista hafa haft takmörkuð áhrif á mótun og forgangsröðun fjárhagsáætlunar. Þó svo að fulltrúar N-lista hafi setið fundi aukins byggðarráðs og tekið þátt í báðum umræðum í sveitarstjórn tók áætlunin stórum breytingum á milli umræðna. Fulltrúar N-lista hafa því upplifað sig sem áheyrendur í stað þess að vera þátttakendur og telja mikilvægt að allir kjörnir fulltrúar fái raunverulegt tækifæri til að koma að mótun fjárhagsáætlunar og forgangsröðun.

Fulltrúar N-lista lýsa yfir áhyggjum af svigrúmi fjárhagsáætlunar til nauðsynlegra framkvæmda og viðhalds á komandi árum. Áætlunin byggir á verulegum lántökuheimildum og handbært fé er lítið.

Með hliðsjón af framangreindu telja fulltrúar N-lista sig ekki geta samþykkt fjárhagsáætlun ársins 2027. Fulltrúar N-lista munu því sitja hjá við afgreiðslu hennar.“

Varaoddviti samþykkti beiðni Nínu Axelsdóttur um fundarhlé kl. 17:18.

Fundur hófst að nýju kl. 17:26.

Fulltrúar B- og D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Breytingar á áætlun á milli umræðna fólust fyrst og fremst í hækkun á styrkjum til íþrótta-, menningar- og atvinnumála frá því sem gert hafði verið ráð fyrir við fyrri umræðu. Sú breyting og aðrar smávægilegar breytingar voru kynntar á fundi byggðarráðs mánudaginn 9. nóvember og hafði þá fulltrúi minnihluta tækifæri til að gera athugasemdir. Engar athugasemdir komu fram heldur samþykkt samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í sveitarstjórn.“

Varaoddviti samþykkti beiðni N-lista um fundarhlé kl. 17:27.

Fundur hófst að nýju kl. 17:43.

Viktor Ingi Jónsson fulltrúi N-lista í byggðarráði lagði fram eftirfarandi bókun:

„Þegar farið var yfir breytingar á fjárhagsáætlun á 1298. fundi byggðarráðs samþykkti ég að vísa henni til síðari umræðu sveitarstjórnar. Með þeirri aðgerð lít ég ekki svo á að ég sé að samþykkja þær breytingar sem á fundinum voru kynntar. Ég greiði atkvæði með því að vísa fjárhagsáætlun áfram með það að leiðarljósi að hún fái eðlilega málsmeðferð.“

Varaoddviti samþykkti beiðni Magnúsar Magnússonar um fundarhlé kl. 17:44.

Fundur hófst að nýju kl. 17:47.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Magnús Vignir og Eygló Hrund sátu hjá við afgreiðslu málsins.

15.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2311018Vakta málsnúmer

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri, fór yfir helstu verkefni sín frá síðasta fundi sveitarstjórnar.

Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:31.

Var efnið á síðunni hjálplegt?