Byggðarráð

1298. fundur 09. nóvember 2026 kl. 14:00 - 14:50 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Oddviti kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram.

1.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðra umræðu í sveitarstjórn.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætluninni til sveitarstjórnar til síðari umræðu.

2.Reglur og sniðmát um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum

Málsnúmer 2611011Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum og sniðmáti um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum kjörinna fulltrúa og lykilstarfsmanna.
Þó ekki sé gerð krafa í núgildandi sveitarstjórnarlögum um að birt sé hagsmunaskráning kjörinna fulltrúa og lykilstarfsmanna leggur meirihluti sveitarstjórnar til að slíkar upplýsingar verði engu að síður birtar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur og sniðmát og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Bréf varðandi ágóðahlut EBÍ 2026

Málsnúmer 2611012Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands dagsett 28. október 2026.
Í bréfinu kemur fram að ekki komi til arðgreiðslu á árinu.

4.Skýrsla um starfsemi Flugklasans AIR 66N frá apríl til október 2026

Málsnúmer 2611019Vakta málsnúmer

Skýrsla um starfsemi Flugklasans AIR 66N frá apríl til október 2026 lögð fram til kynningar.

5.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer

Fundargerð 146. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 3. nóvember 2026 lögð fram til kynningar.

6.Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601077Vakta málsnúmer

Fundargerð 487. fundar Hafnasambands Íslands frá 21. október 2026 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:50.

Var efnið á síðunni hjálplegt?