Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5
Málsnúmer 2611001F
Vakta málsnúmer
-
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5
Ráðið þakkar verkefnastjóra umhverfismála kynninguna og leggur til við sveitarstjórn að haldinn verði íbúafundur þar sem mismunandi sviðsmyndir verða kynntar íbúum sveitarfélagsins.
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5
Ráðið þakkar yfirferðina.
-
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að uppfærsla verklagsreglna vegna framkvæmda og framkvæmdasamninga verði samþykkt.
-
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að starfshópur um hitaveitu í Hrútafirði verði stofnaður, erindisbréf vegna starfshópsins samþykkt og tilnefnir: Kolbrúnu Stellu Indriðadóttur, fulltrúa meirihluta sveitarstjórnar, sem jafnframt yrði formaður, Viktor Inga Jónsson, fulltrúa minnihluta sveitarstjórnar og Gunnar Þórarinsson, sem fulltrúa íbúa í Hrútafirði. Starfshópurinn heyri undir umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð og leggi fundargerðir sínar fyrir ráðið.
-
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 5
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að ráðhúsið við Hvammstangabraut 5 verði selt í núverandi ástandi og felur sviðsstjóra að leggja fram minnisblað um framtíðar húsnæðismöguleika fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Bókun fundar
Fulltrúar B- og D- lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Ráðhúsinu við Hvammstangabraut 5 var lokað 12. október eftir að úttektir sýndu myglu á öllum hæðum hússins. Niðurstaða Ferils verkfræðistofu er að húsið henti ekki í núverandi ástandi til að taka á móti almenningi og að úrbætur jafngildi nánast því að rífa það inn að burðarvirki.
Viðgerð af þeirri stærðargráðu er áhættusöm fyrir sveitarfélag. Raunverulegt umfang kemur ekki í ljós fyrr en við niðurrif, og viðbótarverk og kröfur sem af því leiða falla á almannafé. Sveitarfélagið er jafnframt bundið af reglum um opinber innkaup og af þeim kröfum sem gerðar eru til húsnæðis opinberrar stjórnsýslu. Einkaaðili hefur meira svigrúm. Hann getur valið húsinu nýtt hlutverk, ráðið umfangi og áfangaskiptingu endurbóta og unnið verkið á eigin forsendum. Hús sem er sveitarfélaginu byrði getur því verið öðrum tækifæri.
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði á 5. fundi sínum til við sveitarstjórn að húsið verði selt í núverandi ástandi og fól sviðsstjóra að leggja fram minnisblað um framtíðarhúsnæði stjórnsýslunnar. Auglýst verður eftir tilboðum í húsið með fresti til 30. nóvember 2026 og væntanlegir kaupendur fá skýrslu Ferils um ástand þess. Í tilboði skal koma fram hvernig kaupandi hyggst nýta húsið. Kostnað við endurbætur meta kaupendur sjálfir út frá eigin áformum, enda ræðst hann af því hlutverki sem húsinu er ætlað. Með sölunni er engin ákvörðun tekin um framtíðarhúsnæði ráðhúss sveitarfélagsins að öðru leyti.
Það er trú meirihlutans að með sölu hússins sé áhættu létt af sveitarsjóði, húsinu gefið færi á nýju hlutverki og sveitarstjórn gert kleift að velja stjórnsýslunni húsnæði til framtíðar án þess að vera bundin af ástandi gamla hússins.“
Varaoddviti samþykkti beiðni fulltrúa N-lista um fundarhlé kl. 15:29.
Fundur hófst að nýju kl. 15:36.
Fulltrúar N-listans lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Fulltrúar N-listans telja mikilvægt að framtíðarfyrirkomulag húsnæðismála stjórnsýslu Húnaþings vestra verði tekið til heildstæðrar umræðu og að minnisblað sviðsstjóra umhverfis- veitu- og framkvæmdasviðs liggi fyrir áður en ákvörðun um sölu ráðhússins verði tekin.
Fulltrúar N-lista sýna því fullan skilning að flytja þurfti starfsemi ráðhússins tímabundið vegna aðstæðna í núverandi húsnæði og telja eðlilegt að skoða þá möguleika sem eru, eða gætu verið, í stöðunni. Áður en tekin er afstaða til sölu ráðhússins þurfi að liggja fyrir skýrari framtíðarsýn um hvar starfsemi sveitarfélagsins eigi að vera til húsa til lengri tíma. Einnig leggja fulltrúar N-lista til að fyrir liggi annað álit á ástandi hússins í dag áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Fyrir fundinum í dag liggur aðeins eitt kostnaðarmat á endurbótum þess.
Það er stór ákvörðun að selja ráðhús sveitarfélagsins og möguleg bygging nýs ráðhúss, kaup á öðru eða aðrar lausnir geta haft veruleg áhrif á framtíðarskipulag, þjónustu og fjárhag sveitarfélagsins. Eins þarf að huga að áhrifunum á nærumhverfið, enda er ráðhúsið staðsett á einum besta stað á Hvammstanga. Því teljum við mikilvægt að fyrir liggi yfirsýn yfir mögulega valkosti, húsnæðisþörf og kostnað við mismunandi leiðir.
N-listinn leggur áherslu á að málið verði unnið í réttri röð, af skynsemi og með heildarhagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi.“
Afgreiðsla umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Viktor Ingi, Magnús Vignir og Eygló Hrund sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Magnús Magnússon formaður umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs kynnti fundargerð.