Skipulagsráð

390. fundur 28. október 2026 kl. 15:00 - 16:45 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Fríða Marý Halldórsdóttir formaður
  • Nína Axelsdóttir aðalmaður
  • Guðni Þór Skúlason aðalmaður
  • Tómas Bergsteinn Arnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
  • Linda Sóley Guðmundsdóttir Fulltrúi á skipulags- og byggingadeild
Fundargerð ritaði: Linda Sóley Guðmundsdóttir
Dagskrá
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir boðaði forföll.

Fundurinn var haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga

1.Stóri-Ós-Umsókn um breytingu á staðfangi

Málsnúmer 2610011Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Sveins Óla Friðrikssonar, dags. 4. október 2026, um breytingu á staðfangi fasteignar nr. 2213943 á landeign nr. 221176 úr Stóri-Ós lóð í Stóri-Ós 1. Tilgangur breytingarinnar er að einfalda nafngift bæjarins.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu staðfangsins úr Stóri-Ós lóð í Stóri-Ós 1 og fela skipulagsfulltrúa að sjá um uppfærslu skráningar í samræmi við samþykktina

2.Umsókn um breytingu á staðfangi

Málsnúmer 2610012Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Jóns Böðvarssonar, dags. 4. október 2026, um breytingu á staðfangi fasteignar nr. 2133595 á landeign nr. 200369 úr Syðsti-Ós lóð í Syðsti-Ós 1. Tilgangur breytingarinnar er að gera bæjarheiti Ósbæjanna skýrari.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu staðfangsins úr Syðsti-Ós lóð í Syðsti-Ós 1 og fela skipulagsfulltrúa að sjá um uppfærslu skráningar í samræmi við samþykktina.

3.Umsókn um breytingu á staðfangi

Málsnúmer 2610013Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Ingibjargar Jónsdóttur, fyrir hönd Ósbúsins ehf., dags. 4. október 2026, um breytingu á staðfangi fasteignar nr. 2133603 á landeign nr. 225908 úr Syðsti Ós 4 í Syðsti-Fjós. Fasteignin er skráð sem fjós og hlöður.
Skipulagsráð samþykkir ekki staðfangið og leggur til við umsækjanda að endurskoða staðfangið Syðsti-Fjós.

4.Umsókn um breytingu á staðfangi

Málsnúmer 2610014Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Ingibjargar Jónsdóttur, dags. 4. október 2026, um breytingu á staðfangi fasteignar nr. 2133610 úr Syðsti Ós lóð 3 í Syðsti-Ós 2. Tilgangur breytingarinnar er að gera bæjarnöfn Ósbæjanna skýrari.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu staðfangsins úr Syðsti Ós lóð 3 í Syðsti-Ós 2 og fela skipulagsfulltrúa að sjá um uppfærslu skráningar í samræmi við samþykktina.

5.Hulduhvammur í Leiti, fyrirspurn um lagningu á reiðveg

Málsnúmer 2512079Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Arndísar Önnu K. Gunnarsdóttur lögmanns, dags. 12. október 2026, fyrir hönd landeigenda Hulduhvamms í Leiti (L233893), vegna legu reiðvegar um eignarland þeirra. Í erindinu er því haldið fram að reiðvegurinn hafi verið lagður án samþykkis landeigenda og fullnægjandi heimilda. Krafist er viðurkenningar á ólögmæti núverandi legu, að vegurinn verði fjarlægður af lóðunum og að kvaðir eða fyrirvarar vegna hans verði felld niður og skipulagsgögn leiðrétt. Landeigendur lýsa vilja til samstarfs um legu reiðvegar meðfram Vatnsnesvegi. Óskað er skriflegs svars og tillagna að úrbótum fyrir 13. nóvember 2026.
Skipulagsráð leggur til að skipulagsfulltrúa og sveitarstjóra verði falið í samráði við lögmann sveitarfélagsins að yfirfara gögn og réttindagrundvöll reiðvegar um Hulduhvamm í Leiti.
Málið verði lagt að nýju fyrir ráðið með tillögu að afgreiðslu að lokinni þeirri vinnu.

6.Umsókn um byggingarleyfi/byggingarheimild

Málsnúmer 2610025Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi/byggingarheimild, dags. 8. október 2026, vegna fyrirhugaðs tjaldsvæðis á Staðarflöt, landnúmer L144052. Sótt er um að breyta notkun bílgeymslu, matshluta 02, í aðstöðuhús fyrir húsbíla og tjaldsvæði. Jafnframt er sótt um að útbúa sérstakt svæði fyrir hjólhýsi, húsbíla og tjöld.
Skipulagsráð tekur jákvætt í áform um uppbyggingu tjaldsvæðis á Staðarflöt og breytta notkun bílgeymslu í aðstöðuhús.
Áformin falla að almennri stefnu Aðalskipulags Húnaþings vestra 2014-2026 um eflingu ferðaþjónustu og bætta aðstöðu til móttöku ferðamanna.

Ráðið felur skipulagsfulltrúa að yfirfara samræmi fyrirhugaðrar starfsemi við gildandi skipulag og meta þörf að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við skipulagslög.

Við yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins verði landnotkun á Staðarflöt afmörkuð með ítarlegri hætti og sett skýrari ákvæði um umfang og fyrirkomulag ferðaþjónustu, þar á meðal tjald- og hjólhýsasvæðis og tilheyrandi þjónustubygginga.

Fundi slitið - kl. 16:45.

Var efnið á síðunni hjálplegt?