Byggðarráð

1297. fundur 02. nóvember 2026 kl. 14:00 - 16:00 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá
Magnús Barðdal og Selma Barðdal komu til fundar kl. 14:01.

1.Viðbygging verknámshús FNV

Málsnúmer 2605071Vakta málsnúmer

Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar og Selma Barðdal skólameistari Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra komu til fundar í gegnum fjarfundabúnað til að ræða fyrirhugaða viðbyggingu við verknámshús skólans.
Byggðarráð þakkar Magnúsi og Selmu greinargóðar kynningar. Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að óska eftir sameiginlegum fundi með öllum sveitarfélögunum í landshlutanum vegna málsins.
Magnús og Selma véku af fundi kl. 14:34.

2.Reglur um veitingu launalausra leyfa til starfsmanna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2610072Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að uppfærðum reglum um veitingu launalausra leyfa til starfsmanna Húnaþins vestra. Áður á dagskrá 1296. fundar byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur með áorðnum breytingun og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Örn Arnarson og Viktor Ingi Jónsson véku af fundi kl. 15:19 vegna vanhæfis við afgreiðslu 3. dagskrárliðar. Sigríður Ólafsdóttir varamaður tók á sama tíma sæti við meðferð og afgreiðslu málsins á grundvelli 31. gr. og 48. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Nína Axelsdóttir varaformaður tók við fundarstjórn.

3.Rekstrarleyfi Félagsheimilið Hvammstanga

Málsnúmer 2502055Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um rekstrarleyfi Félagsheimilisins Hvammstanga.
Málið hefur áður verið tekið fyrir á 272. og 273. fundum félagsmálaráðs.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að skila rekstarleyfi Félagsheimilisins Hvammstanga inn til sýslumanns. Með því er liðkað fyrir leyfisveitingum til annarra viðburðahaldara.
Sigríður vék aftur af fundi kl. 15:28. Örn og Viktor komu til fundar að nýju á sama tíma og tók Örn þá við fundarstjórn að nýju.

4.Mál til umsagnar: Tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer 2610045Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá innviðaráðuneytinu um tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.

Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar þeirri vinnu sem fram fer við mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga og telur mikilvægt að fyrir liggi góðar, áreiðanlegar og samanburðarhæfar upplýsingar sem geti stutt við stefnumótun og ákvarðanatöku til lengri tíma. Ráðið leggur hins vegar ríka áherslu á að við mótun og beitingu viðmiðanna verði tekið fullt tillit til þess hversu ólíkar aðstæður sveitarfélaga eru um allt land. Landfræðileg stærð, dreifing byggðar, vegalengdir, fjöldi byggðarkjarna og mismunandi framkvæmd við veitingu grunnþjónustu hafa veruleg áhrif á rekstur og þróun sveitarfélaga. Mikilvægt er að sameiginleg viðmið nái utan um þennan fjölbreytileika en leiði ekki til einfaldaðs eða villandi samanburðar milli sveitarfélaga sem búa við ólíkar rekstrarforsendur. Sveitarfélagið tekur heilshugar undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum Skagafjarðar og Múlaþings. Sérstaklega er mikilvægt að mat á fjárhagslegri sjálfbærni taki mið af umfangi lögbundinnar þjónustu, kostnaði við rekstur innviða og getu sveitarfélaga til að veita íbúum örugga og góða þjónustu til lengri tíma, en eins og fram kemur í umræðuskjalinu liggur ekki fyrir sameiginleg niðurstaða um hvaða kennitölur lýsi fjárhagslegri sjálfbærni best. Jafnframt leggur sveitarfélagið áherslu á að viðmiðin verði fyrst og fremst hagnýtt stjórntæki sem byggi á fyrirliggjandi gögnum, en leiði alls ekki til aukinnar stjórnsýslubyrði eða nýrra skýrslugjafarkvaða fyrir sveitarfélögin. Þá er nauðsynlegt að niðurstöður mælinganna nýtist ríkisvaldinu við eigin áætlanagerð og forgangsröðun í innviðafjármögnun, enda ráðast forsendur sjálfbærrar byggðaþróunar ekki eingöngu af ákvörðunum sveitarfélaganna sjálfra. Að síðustu leggur ráðið ríka áherslu á að mótun og innleiðing viðmiða sem þessara auki ekki beinan eða óbeinan kostnað sveitarfélaga. Skal þess sérstaklega gætt að nýjar kröfur, kerfi eða vöktun leiði ekki til útgjaldaauka sveitarstjórnarstigsins, heldur verði slíkur kostnaður að fullu borinn af ríkissjóði í samræmi við meginreglur um fjárhagslegt forræði sveitarfélaga. Sveitarfélagið styður áframhaldandi samstarf um mótun viðmiðanna með þeirri skýru áherslu að þau verði einföld, gagnleg og sveigjanleg, endurspegli raunverulegan aðstöðumun og án viðbótarkostnaðar fyrir sveitarfélög.

5.Mál til umsagnar - Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir, mál nr. S-2232026

Málsnúmer 2610092Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá innviðaráðuneytinu um mál nr. S-223/2026, Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir.
Byggðarráð Húnaþings vestra hefur yfirfarið áformaskjal innviðaráðuneytis vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar byggðatengdra veiðiheimilda. Ráðið leggur ríka áherslu á að við frumvarpssmíðina verði tryggt að byggðakvóti þjóni upphaflegum markmiðum sínum um að efla atvinnu, treysta búsetu og styðja við staðbundna útgerð og vinnslu í sjávarbyggðum landsins. Af þessu tilefni ítrekar byggðarráð sjónarmið sín sem fram komu í ítarlegri umsögn frá því í sumar vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar byggðakvótakerfisins. Fylgir sú umsögn hér með í heild sinni sem óaðskiljanlegur hluti athugasemda Húnaþings vestra við hið kynnta mál, með ósk um að áherslur hennar verði lagðar til grundvallar við áframhaldandi vinnu ráðuneytisins.

6.Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601077Vakta málsnúmer

Fundargerð 486. fundar Hafnasambands Íslands sem fram fór þann 2. október 2026 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?